Fréttablaðið - 10.08.2012, Page 6
10. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR6
DELL
komið í
nú er
Hátækni!
Taktu þátt
í Facebook-
leik Hátækni
PIPA
PIPAPA
RR
\\\\\
TBW
A
T
A
SÍ
SÍA
12
2
0
49
12
2
0
49
2
2
0
499
SAMGÖNGUR Vetraráætlun Strætó
bs. tekur gildi viku fyrr en van-
inn er og hefst akstur samkvæmt
henni á sunnudaginn. Með þessu
er reynt að koma til móts við
farþega með því að auka tíðni og
hagræða í leiðakerfinu.
„Notkun á Strætó eykst jafnan
þegar sumarleyfi klárast og skól-
ar hefjast,“ segir Reynir Jónsson,
framkvæmdastjóri Strætó bs.
Helstu úrbæturnar sem vetrar-
áætlunin hefur í för með sér er að
leiðir 13, 24 og 28 aka á fimmtán
mínútna fresti á annatíma virka
daga og allar leiðir sem aka á
kvöldin aka klukkustund lengur.
Leiðaáætlun Strætó má nálgast
á vefnum á www.straeto.is. - bþh
Vetraráætlunin tekur gildi:
Tíðni ferða
Strætó eykst
STRÆTÓ Vetrarakstur hefst á sunnudag-
inn með fjölgun ferða.
FÉLAGSMÁL Fötluðu fólki gefst nú
kostur á að taka þátt í tilrauna-
verkefni þar sem það fær greiðslur
í stað þjónustu og getur þar með
ákveðið sjálft hvernig féð nýtist
og auk þess valið sér sjálft aðstoð-
arfólk.
Um er að ræða tilraunaverk-
efni sem felur í sér samning
um svokallaða notendastýrða,
persónulega aðstoð (NPA) til handa
fötluðum og er gert ráð fyrir að
verkefnið standi næstu tvö árin.
NPA-samningarnir verða í boði á
þjónustusvæði Reykjavíkur og Sel-
tjarnarness. Lokatakmarkið er að
NPA verði bundin í lög árið 2014.
„Fyrir fatlað fullorðið fólk mun
þetta gjörbreyta lífi margra, sem
hingað til hafa ekki haft tök á því
að fara á vinnumarkaðinn, fara
í háskóla, eignast fjölskyldu og
ferðast um heiminn. Fyrir fötluð
börn mun þetta hafa þau áhrif að
þau munu upplifa eðlilegra uppeldi,
þar sem þau öðlast hægt og rólega
sjálfstæði í sínu lífi,“ segir Freyja
Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri
NPA miðstöðvar.
Freyja hefur sjálf reynslu af
muninum á hefðbundinni þjónustu
og þeirri notendastýrðu.
„Eftir að ég fékk þessa aðstoð
hef ég lokið háskólanámi, leigt
mína eigin íbúð og farið út á vinnu-
markaðinn í fullt starf. Ég er ekki
lengur bótaþegi vegna þess að ég
er í fullri vinnu. Þetta hefur fært
mig úr því að vera annars flokks
þjóðfélagsþegn, notandi sjálfboða-
starfs foreldra og vina, í að vera
fyrsta flokks þjóðfélagsþegn, sem
hefur réttindi og skyldur í samfé-
laginu,“ segir Freyja.
Björk Vilhelmsdóttir, formaður
velferðarráðs Reykjavíkurborgar,
er einnig ánægð með verkefnið.
„Ég er svakalega spennt fyrir
verkefninu og vona að við munum
sjá einhver sólskinsdæmi koma út
úr þessu hérna í Reykjavík. Við
vonum að þetta verði árangursríkt
fyrir notendurna, fyrst og fremst,“
segir Björk.
Hún gerir þó ekki ráð fyrir að
þeir sem geri slíkan samning við
yfirvöld, fái alla þá þjónustu sem
þeir óska.
„Það verður að nást samkomu-
lag um stuðningsþörfina á milli
notenda og borgarinnar. Ég veit að
margir eru með miklar væntingar
og vonast kannski eftir því að fá
töluvert meiri aðstoð en hægt verð-
ur að veita. En við munum reyna að
gera eins vel og við getum,“ segir
Björk.
Þeir sem vilja taka þátt í verk-
efninu geta sent inn umsókn þess
efnis, en fresturinn rennur út 10.
september. katrin@frettabladid.is
Fatlaðir eru loksins
fyrsta flokks þegnar
Fatlað fólk í Reykjavík og á Seltjarnarnesi getur sótt um að gera samning um
persónulega aðstoð sér til handa. Freyja Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri NPA,
segir hið nýja form aðstoðar munu gjörbreyta lífi fatlaðra og ekki síst barna.
FRAMFARIR Freyja Haraldsdóttir hefur sjálf ráðið sinni þjónustu, fyrst að hluta til frá
árinu 2007 og að öllu leiti frá því í fyrra. Hún segir líf sitt hafa tekið stakkaskiptum
eftir breytinguna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SVEITARSTJÓRNIR Reykjavíkurborg
hefur óskað eftir viðræðum við
Kópavogsbæ um málefni Foss-
vogsdals. Ræða á um hugsanlega
sundlaug og göngu- og hjólateng-
ingu yfir Fossvog.
Hugmyndir um sundlaug í
Fossvogsdal hafa áður komið til
tals á þessum vettvangi en þær
voru lagðar til hliðar eftir hrunið
2008. Bæjarráð Kópavogs segist
gera fyrirvara um hugmyndir
borgarinnar um kostnaðarskipt-
ingu en hefur falið bæjarstjóra
að vinna að málinu. - gar
Borgin biðlar til Kópavogs:
Vilja ræða laug
í Fossvogsdal
LÖGREGLUMÁL Lögreglan leitar
enn tveggja manna í tengslum við
nauðganir sem hafa verið kærð-
ar eftir nýliðna Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum. Lögreglan á Selfossi
og í Vestmannaeyjum rannsakar
málin en alls kærðu þrjár konur
nauðgun á hátíðinni. Málin eru
óskyld, tvær nauðganir áttu sér stað
í tjaldi og ein á víðavangi.
Nú er verið að skoða upptökur úr
öryggismyndavélum og yfirheyra
vitni til þess að fá nánari lýsingar á
mönnunum tveimur sem leitað er að.
Þeir eru taldir um eða yfir tvítugt.
Að sögn Elísar Kjartanssonar,
lögreglufulltrúa á Selfossi, er rann-
sókn enn í fullum gangi. „Við erum
að yfirheyra vitni enn frekar til að
fá gleggri mynd af þessu öllu saman
og af þeim,“ segir hann. „Við erum
ekki búnir að gefast upp.“
Elís segir lýsingar á mönnunum
heldur óljósar og byggir lögreglan
því rannsókn sína að miklu leyti á
upptökum eftirlitsmyndavéla til að
fylgjast með ferðum fórnarlamb-
anna og sjá hverja konurnar hittu.
„Við bindum vonir við að myndavél-
arnar komi að gagni,“ segir Elís. „Ef
þær væru ekki til staðar væri þetta
mun erfiðara.“
Búið er að taka skýrslu af einum
manni sem neitar alfarið sök, og að
sögn lögreglu ber sögum kæranda
og hins grunaða ekki saman. Verið
er að yfirheyra frekari vitni í því
máli og verður það síðan sent til
ákæruvaldsins þegar niðurstöður
úr DNA-rannsóknum eru komnar.
- sv
Lögregla yfirheyrir vitni og skoðar upptökur í kjölfar nauðganakæra á Þjóðhátíð:
Tvær í tjaldi og ein á víðavangi
UMHVERFISMÁL Ýmsum spurning-
um er ósvarað í Landsáætlun um
meðhöndlun úrgangs fyrir 2013
til 2024 að því er kemur fram í
athugasemdum umhverfis- og
samgöngunefndar Skagafjarðar.
„Ekki kemur fram hvernig
bregðast skuli við smithættu
á sóttmenguðum úrgangi sem
flytja á á milli svæða,“ segir
nefndin sem finnur að því að ekki
komi fram hvernig kostnaðar-
skiptingu skuli háttað varðandi
byggingu, rekstur og flutnings-
kostnað úrgangs. Þá vilji nefndin
vita hvaða rök liggi að baki því
að afnema eigi undanþágu vegna
afskekktra byggða. - gar
Úrgangsáætlun gagnrýnd:
Vantar rök fyrir
undanþágum
NÁTTÚRA Árleg kúmentínsla í
Viðey fer fram þriðjudaginn 14.
ágúst og hefur henni verið flýtt
miðað við undanfarin ár. Það er
gert vegna mikillar blíðu í sumar
en kúmentínslan hefur verið
geysilega fjölmenn síðustu ár.
Viðeyjarkúmenið þykir mjög
gott og er þekkt fyrir einstök
gæði. Það er fínna en búðar-
kúmen, bragðmeira og sætara.
Fólk mætir því ár hvert með
plastpoka og skæri og sækir sér
kúmen fyrir veturinn.
Þeir sem ekki kunna til verka
geta fengið leiðsögn og aðstoð við
komuna í eyjuna. - bþh
Viðeyjarkúmenið þykir gott:
Kúmentínslunni
í Viðey flýtt
VIÐEYJARSTOFA Í Viðey er rekið kaffihús
og ferðaþjónusta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NÁTTÚRA Heildarmagn frjókorna í
lofti á Akureyri var yfir meðallagi
í júlí. Grasfrjóin voru sérstaklega
mörg, 832 frjó á rúmmetra sem er
talsvert meira en síðastliðin tvö ár.
Búast má við áframhaldandi
háum frjótölum fyrir gras út
ágúst. Fjöldi frjóa í Reykjavík var
einnig yfir meðaltali í síðasta mán-
uði. Grasfrjóin voru algengust eða
1300 frjó á rúmmetra. Hámark
grasfrjóa var mun fyrr en oft áður
og mældust flest frjó í lofti 15.
júlí. - ktg
Frjótölur fyrir júlí gefnar út:
Mikið magn
frjóa í lofti í júlí
KJÖRKASSINN
Þetta hefur fært
mig úr því að vera
annars flokks þjóðfélagsþegn,
notandi sjálfboðastarfs for-
eldra og vina, í að vera fyrsta
flokks þjóðfélagsþegn, sem
hefur réttindi og skyldur í
samfélaginu.
FREYJA HARALDSDÓTTIR
FRAMKVÆMDASTJÓRI
NPA MIÐSTÖÐVAR.
Líst þér vel á hugmyndir
ríkisstjórnarinnar um að auka
útgjöld til vaxta- og barnabóta
auk Fæðingarorlofssjóðs?
JÁ 55%
NEI 45%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér menningarlegur
ávinningur tónlistarhússins
Hörpu réttlæta taprekstur?
Segðu skoðun þína á Visir.is
Við erum ekki búnir
að gefast upp.
ELÍS KJARTANSSON
LÖGREGLUFULLTRÚI Á SELFOSSI