Fréttablaðið - 10.08.2012, Blaðsíða 20
10. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR20
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
„Kórinn ferðast um heim allan og
flytur fjölbreytta tónlist frá tíma
endur reisnar til nútímans og hefur
komið fram með heimsfrægum lista-
mönnum, til dæmis hinum frábæra
sellóleikara Yo-Yo Ma. Einnig hefur
kórinn á þrjátíu ára ferli sínum sungið
inn á fjölda geisladiska. Kórfélagar
hafa fengið nokkra reynslu á óperu-
sviðinu og hefur kórinn tekið þátt í
óperusýningunum Carmen og Tur-
andot við Hong Kong-óperuna árin
2005 og 2006,“ segir Margrét Jóhanna
Pálmadóttir, aðalstjórnandi og stofn-
andi Stúlknakórs Reykjavíkur, sem
tekur á móti hinum heimskunna Yip‘s-
barnakór frá Hong Kong á morgun.
Kórinn syngur í Hörpu á sunnudag
milli klukkan tvö til fjögur. „Þau verða
með eina tónleikadagskrá í Hörpu og
svo koma þau til okkar í þakklætis-
skyni og við skiljum eftir góða orku
í Grensáskirkju,“ segir Margrét. Kór-
arnir sameina krafta sína við guðs-
þjónustu klukkan ellefu á sunnudag-
inn og á kveðjutónleikum í kirkjunni á
þriðjudagskvöld klukkan hálf níu.
Sönglistastofnun
Dr. Yip Wai-Hong
í Hong Kong hefur
frá árinu 1983 alið
upp þúsundir tón-
listarnema og er
frumkvöðlastarf
hans á sviði söng-
uppeldis vel þekkt
víða um heim. Í
kórnum eru rúm-
lega 800 nemendur
og ferðast sérstakur tónleikakór
um heiminn, þar á meðal hingað til
lands. Í honum eru 42 söngvarar og
hljóðfæraleikarar á aldrinum níu til
sautján ára. Tónleikadagskrá Yip‘s-
kórsins er með fjölbreyttasta móti.
Hún inniheldur allt frá djassi, þjóð-
lagatónlist og trúarlegu efni til vel
valdra Broadway-söngleikjalaga og
hefur verið flutt í yfir 45 löndum í sex
heimsálfum frá árinu 1984.
Þetta er önnur heimsókn kórsins
til landsins en Margrét var gestgjafi
hans árið 1996. „Þá söng hann og
dansaði ógleymanlega á menningar-
nótt í Ráðhúsi Reykjavíkur,“ segir hún
glöð. Kórnum var þá stjórnað af stofn-
andanum en nú stýrir Sincere Yip,
dóttir hans, kórnum. Hún lauk meist-
aragráðu í tónlistarkennslu frá UCLA
í Los Angeles árið 1982.
„Stúlknakór Reykjavíkur er einnig
fjölmennur á okkar vísu og eru
félagar nú um 140 á aldrinum fimm til
25 ára. Kórinn tekur inn nýjar stúlkur
á hverju ári og er þeim skipt í deildir
eftir aldri og getu,“ segir Margrét og
bætir við að stofnandi Yip‘s-stofnun-
arinnar hafi ekki átt orð yfir hreinan
hljóm stúlknakórsins í fyrrnefndri
heimsókn. „Hann spurði mig hvern-
ig ég færi að því að búa til svona fal-
legan hljóm og ég sagði að það væri
hernaðar leyndarmál. Það er samt
staðreynd að börnin mín syngja mjög
hreint þó við séum ekki með svona
rosasýningu né æfum fimm sinnum
í viku eins og þessir krakkar en ég
segi alltaf að sama hvað þið syngið þá
nennir enginn að hlusta á ykkur ef það
er falskt,“ segir Margrét kokhraust.
hallfridur@frettabladid.is
MARGRÉT PÁLMADÓTTIR: TEKUR Á MÓTI YIP‘S-BARNAKÓRNUM FRÁ HONG KONG
Heimskunn frá Hong Kong
FJÖLSKRÚÐUG Yip‘s-barnakórinn hefur flutt fjölbreytta tónleikadagskrá í yfir 45 löndum í sex heimsálfum frá árinu 1984 og heimsækir Ísland um
helgina og tekur lagið með sínum einstaka hætti í Hörpu og Grensáskirkju.
MARGRÉT
PÁLMADÓTTIR
JÓN ÓTTAR RAGNARSSON næringarfræðingur á afmæli í dag.
„Uppeldi er spurning um ögun og sköpun.“67
Júdóglímukappinn Bjarni Friðriksson hlaut
bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í Los
Angeles þennan dag árið 1984. Hann
keppti í 95 kílógramma flokknum. „Það
var kominn tími til að íslenski fáninn færi
upp eftir flaggstönginni,“ sagði Bjarni
eftir að hann hafði tryggt sér verðlaunin.
Kóreumaðurinn Ha Hyoun-Zoo sigraði í
flokknum, annar varð Douglas Vieira frá
Brasilíu. Bjarni hlaut síðan bronsið ásamt
Vestur-Þjóðverjanum Günther Neureuther.
Glíman um verðlaunasætið gat staðið yfir
í sjö mínútur en það tók Bjarna aðeins
4,45 mínútur að leggja Ítalann Yuri Fazi og
bronsið var í höfn.
Reyndar var Bjarni aðeins einum sentí-
metra frá því að keppa um gullið því í
næstu viðureign áður, sem var við Douglas
Vieira frá Brasilíu, lenti hann örlítið út af
vellinum og ógilti með því glímuna.
ÞETTA GERÐIST: 10. ÁGÚST 1984
Bjarni Friðriks á verðlaunapall
á Ólympíuleikum
Bróðir okkar,
EIRÍKUR ÞORSTEINSSON
frá Blikalóni,
Aðalbraut 5, Raufarhöfn,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga,
Húsavík, laugardaginn 4. ágúst.
Útför fer fram frá Raufarhafnarkirkju
laugardaginn 11. ágúst kl.14.00.
Sigmar Þorsteinsson Þorbjörg Jónatansdóttir
Ingibjörg Þorsteinsdóttir Jóhann Kristinsson
Grétar Þorsteinsson
Sigríður Þorsteinsdóttir Árni St. Guðnason
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN ERLA OTTÓSDÓTTIR
Álakvísl 124, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
1. ágúst sl. Jarðarför verður auglýst síðar.
Jón Viðar Þormarsson
börn, barnabörn, barnabarnabörn og tengdabörn.
175 ára afmæli
11. ágúst nk. verður
Georg Ormsson
vélvirkjameistari
90 ára
og þann 11. október nk. verður
Ágústa Randrup
85 ára
Í tilefni þess langar okkur hjón að bjóða
ætting jum og vinum að samgleðjast okkur í
sal RKÍ að Smiðjuvöllum 8. Reykjanesbæ
kl. 15.00–18.00 laugardaginn 11. ágúst.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SVEINÍNU GUÐRÚNAR
JÓNSDÓTTUR
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
sem lést fimmtudaginn 26. júlí. Sérstakar
þakkir fær starfsfólk Dvalarheimilisins Höfða,
Akranesi.
Sverrir Haraldur Björnsson Ingibjörg Óladóttir
Anna Björnsdóttir Guðmundur Garðarsson
Sævar Rafn Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SIGMUNDAR PÁLS LÁRUSSONAR
múrarameistara,
Seljalandi 1, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lungnadeildar
A6 á Landspítalanum í Fossvogi fyrir frábæra umönnun.
Anna Hjörleifsdóttir
Sigdís Sigmundsdóttir Jón Óskarsson
Hjördís Sigmundsdóttir Kristinn Waagfjörð
Benedikt Sigmundsson Erna Þórunn Árnadóttir
Lárus Sigmundsson Sandra Pohl
Þóra Arnheiður Sigmundsdóttir Jóhannes Oddsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
LÁRUS JÓNASSON
(Lalli) á Hellu
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á
Hellu 29. júlí. Útförin fer fram frá Oddakirkju
laugardaginn 11. ágúst kl. 14.00.
Dröfn Lárusdóttir
Drífa Lárusdóttir
Örn Lárusson
Fjóla Lárusdóttir
Hrönn Lárusdóttir
Ari Lárusson
Sighvatur Lárusson
Ástkær systir og frænka,
ÞÓRUNN STEINUNN JÓNSDÓTTIR
Snorrabraut 32, Reykjavík,
lést á handlækningadeild Landspítalans,
þriðjdaginn 7. ágúst. Jarðsungið verður
frá Áskirkju 14. ágúst kl. 13.00.
Ósk Jónsdóttir og systrabörn.