Fréttablaðið - 10.08.2012, Qupperneq 24
2 • LÍFIÐ 10. ÁGÚST 2012
Útgáfufélag 365 miðlar ehf.
Útlitshönnun Arnór Bogason
Auglýsingar Sigríður Dagný
Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Lífið Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík, sími 512 5000
www.visir.is/lifid
UMSJÓN
Ellý Ármanns elly@365.is
Kolbrún Pálína Helgadóttir
kolbrunp@365.is
HVERJIR
VORU
HVAR?
Forsíðumynd: Elena Litsova
Förðun: Elín Reynisdóttir
Það var þétt setið í brekkunni í
Eyjum síðastliðna helgi á vel
heppnaðri Þjóðhátíð. Mörg
þjóðþekkt andlit sáust á há-
tíðinni en meðal þeirra voru
sjónvarpskonan Eva María
Jónsdóttir en hún mætti ásamt
sambýlismanni sínum Sigur-
páli Scheving og öllum börn-
um þeirra. Einnig sást til lottó-
stjórnandans Vignis Freys
Andersen í brekkunni í
góðum félagsskap. Anna Lilja
Johansen skemmti sér einnig vel
ásamt sambýlismanni sínum
og lögfræðingnum Vil-
hjálmi Vilhjálmssyni og
svo mátti sjá vinina Sverri
Bergmann, Auðunn Blön-
dal, Hjörvar Hafliðason og
Egil Egilsson í góðum gír.
Það munaði litlu að Karl
Bjarni Guðmundsson, sem
kenndur er við Idolið, næði
ekki á spítalann í tæka tíð
daginn sem stúlkan hans
og Brynhildar Söru Brynj-
ólfsdóttur kom í heiminn
þann 28. júní síðastliðinn.
„Það gekk ekki snurðulaust að
koma þeim mæðgum upp á spítala
því ég varð bensínlaus á Reykja-
nesbraut rétt við Grindarvíkur-
afleggjara vegna þess að það er
ekki hægt að taka bensín með
seðlum eftir klukkan 18.00 í
Grindavík. Brynhildur bar sig vel
þrátt fyrir tvær til þrjár mínútur á
milli hríða. Hún sagði við mig á
milli hríðanna: „Alveg týpískt fyrir
þig Kalli!“. Þá var mamma mín
ræst út sem ræsti Hrefnu vinkonu
sína sem skutlaðist með okkur
á spítalann og þar mætti krútt-
sprengjan rúmum klukkutíma síðar,
3850 grömm og 52 sentímetrar,“
segir Kalli Bjarni glaður í bragði.
Þess má geta að Kalli spilar á
Eyrar bakkahátíðinni um helgina.
BENSÍNLAUS OG BARNIÐ AÐ FÆÐAST
Það gengur vel hjá leikkonunni
Ísgerði Gunnarsdóttur sem flutti
til Englands í byrjun sumars til að
reyna fyrir sér í kvikmyndabransan-
um þar en hún landaði nýlega hlut-
verki í breskri bíómynd sem aftur-
ganga.
„Tökur byrjuðu núna í vikunni og
fyrsti dagurinn minn var á mánudag-
inn. Þetta er spennumynd sem ber
vinnuheitið Four Walls. Leikstjórinn
heitir JP Davidson og er líka hand-
ritshöfundur. Framleiðandi er Eye-
line Entertainment. Ég leik aftur-
göngu sem dó á dularfullan hátt svo
þetta er mjög blóðugt hlutverk. Ég
veit ekki hvort mamma eigi eftir að
vilja sjá þetta,“ segir Ísgerður.
„Ég fékk sent handritið og las það
áður en ég fór í inntökuprófið. Svo
var mér sagt hvaða senu við færum
í og við gerðum hana á nokkra mis-
munandi vegu og svo stuttu seinna
var haft samband við umboðsmann-
inn minn og mér boðið hlutverkið“.
Það hlýtur að taka á að leika
hlutverk þar sem þú
ert útötuð í blóði?
„Jú, það var svo-
lítið erfitt af því það
var svo rosalega
mikið blóð. Það
var þrædd slanga
í gegnum hárið á
mér sem lét blóð-
ið leka niður and-
litið á mér svo það
var svolítið erf-
itt að halda aug-
unum opnum en maður gerir
auðvitað allt til að þetta líti
sem best út.“
LEIKUR AFTURGÖNGU
Ísgerður leikur
afturgöngu í
bíómynd.
Þórunn Antonía Magnúsdótt-
ir, sem gaf nýverið út plötuna
Star-Crossed, hitti enga aðra en
Kelly Osbourne á tónlistarhátíð-
inni Lollapalooza í Chicago. Of
Monsters and Men og Sigur rós
komu fram á hátíðinni sem og
Þórunn. Hún söng með hljóm-
sveit inni Thenewno2. Þór-
unn er gestasöngkona á plötu
hljómsveitarinnar sem kom út
í Bandaríkjunum í sumar. Þór-
unn hefur í nægu að snúast um
þessar mundir því hún planar
að halda útgáfutónleika á næst-
unni. Þá kemur hún fram á Gay
Pride í lok skrúðgöngunnar á
morgun.
HITTI KELLY
OSBOURNE
Í CHICAGO
Þórunn og Kelly Osbourne á góðri
stundu.
Öll jakkaföt
15.000 kr.
Herra Hafnarfjörður
lokar?
Stakir jakkar
10.000 kr.
Kakí buxur
5.000 kr.
Bolir
1.000-2.000 kr.
Gallabuxur
2.000-5.000 kr.
Skyrtur
5.000 kr.