Fréttablaðið - 10.08.2012, Page 32
10 • LÍFIÐ 10. ÁGÚST 2012
1 Farðu út að labba, skokka eða synda. Á meðan veðrið
er svona gott þá er um að gera að
nýta það. Það er mjög góð æfing að
fara út í hreint loft að taka góða æf-
ingu til að koma sér af stað. 30-50
mínútna ganga, skokk eða sund er
frábær hreyfing.
2 Ekki byrja of geyst því ef þú ferð of geyst af stað aukast
líkurnar á að þú gefist upp vegna
eymsla og þreytu eða jafnvel álags-
meiðsla. Best er að auka álag
smám saman, þannig finnur þú
stöðugt aukna vellíðan og hefur
ánægju af æfing unum.
3 Þetta verður að vera gaman. Þú ert mun líklegri til að halda þig
við æfingarnar ef þú hefur gaman
af þeim. Ef þér leiðist þjálfun-
in prófaðu þá eitthvað nýtt. Hafðu
líka í huga að hugarfarið skipt-
ir máli. Oft fer manni fljótt að
finnast gaman að æfingun-
um þegar maður
finnur fyrir aukn-
um styrk, þoli
og vellíðan sem
þessu fylgir.
4 Fjölbreytni er mik i l -
væg. Komdu í
veg fyrir að þú fáir
leið á æfingakerfinu
þínu með fjölbreyttum
æfingum. Það eru ótal margar leið-
ir til að hreyfa sig og þjálfa líkam-
ann. Það er þess virði að prófa sig
áfram og finna það sem hentar þér.
5 Mataræðið. Eigum við að ræða það eitthvað? HÆTTU AÐ
SVINDLA. Ef þú neytir fleiri hita-
eininga á dag en líkaminn brennir
þá að sjálfsögðu fitnar þú. Þetta
er ekki flókið dæmi. Ef þú vilt
léttast hratt og örugglega –
haltu þig þá við þann hitaein-
ingafjölda sem áætlaður er fyrir
hvern dag. Gerðu þér grein fyrir
því að ef þú borðar eina súkkulaði-
kexköku á dag til viðbótar við það
sem þú borðar venjulega þá eru
líkur á því að þú bætir á þig fimm
kílóum á einu ári.
6 Hreyfðu þig. Ef þú vilt léttast hratt – byrjaðu í líkamsrækt.
Allar tegundir af líkamsþjálfun sem
fá þig til að hækka hjartsláttinn
þinn, BRENNA FITU. Hreyfðu þig af
krafti í 20-30 mínútur á góðum
hraða þannig að þú verðir
móð/ur og heit/ur og
þú munt brenna hita-
einingum af krafti.
Regluleg styrkt-
a rþ já l fun eykur
grunnbrennslu lík-
amans sem þýðir
að þú brennir fleiri
hitaeiningum allan sól-
arhringinn. Líkamleg þjálf-
un gefur þér aukinn styrk,
betri líðan, eykur brennsluna og
þar með fjúka kílóin fyrr.
7 Ekki stoppa í sjoppunni. Tíma-skortur getur orðið til þess að
við neytum tilbúinna rétta í aukn-
um mæli. En með því að elda sjálf/
ur hefur þú meiri möguleika á að
gera máltíðina hollari og betri.
Það þarf ekki að taka
svo langan tíma – hægt
er að finna fjölmargar
góðar uppskriftir að rétt-
um sem er einfalt og fljót-
legt að matreiða. Svo er
um að gera að virkja börn-
in, fá þau með í eldamennskuna
og fræða þau um mikilvægi þess að
elda holla fæðu.
8 5-6 litlar máltíðir á dag. Þú hefur heyrt þetta áður er það ekki?
Þetta skiptir öllu máli. Það að und-
irbúa hvern dag fyrir sig er ekki svo
mikið vesen. 5-6 litlar máltíðir á dag
viðhalda brennslu líkamans og þú
hættir þessu kvöldsnarli. Morgun-
matur er mikilvægasta máltíð dags-
ins. Borðaðu ávexti og grænmeti
milli mála. Borðaðu ágætis hádeg-
ismat og próteinríkan kvöldmat.
9 Drekktu VATN og neyttu áfengis í hófi. Hóflegt magn af áfengi er
ekki skaðlegt en mikil neysla þess
hefur án efa slæm áhrif á heilsuna.
Áfengi veikir ekki aðeins mótstöðu-
aflið heldur eykur einnig matarlyst.
Neyttu því áfengis í hófi ef þú vilt
léttast hratt. Vatnsdrykkja, aftur á
móti, er góð fyrir heilsuna. Drekktu
því meira vatn – það verður aldrei
of oft sagt.
KOMDU ÞÉR Í FORM EFTIR SUMARFRÍIÐ
Sumarið er yndislegur tími en því fylgir grill, sósur, vín og gos, svo ekki sé minnst á eftirréttina. Við erum fljót að telja okkur trú um að við eig-
um skilið að dekra við okkur en nú fer daginn að stytta og ráð að koma sér aftur í heilbrigða góða rútínu eftir sumarfríið. Freyja Sigurðardóttir,
margfaldur Íslandsmeistari í fitness, veit hvernig hægt er að komast í form eftir sumarfríið.
Gerðu þér grein fyrir því að ef þú borðar
eina súkkulaðikexköku á dag til viðbótar
við það sem þú borðar venjulega þá eru líkur á
því að þú bætir á þig fimm kílóum á einu ári.
MÆJA SIF DANÍELSDÓTTIR
Listakona
„Ég er nýbyrjuð í einkaþjálfun
hjá Steinari í Bootcamp. Hann er
æðislegur og svo er ég núna að
borða allt grænt.“
HVAÐ GERA ÞÆR?
ÁSDÍS OLSEN
Háskólakennari í lífsleikni og
núvitund
„Ég er með gerikomplex eins og
dætur mína kalla það. Ég þarf
alltaf að vera að. Ég skokka og er
í gönguhópi og stunda svo hug-
leiðslu til að halda mér á jörðinni.
Svo er ég í jógakennaranámi og
kenni núvitund úti um allan bæ.“
ÁGÚSTA JOHNSON
Framkvæmdastjóri
„Leiðin til að koma sér í form eftir
sumarfríið er að skipuleggja sig,
koma líkamsræktinni inn í dag-
skrána og huga að því að koma
góðri reglu á mataræðið og fækka
hitaeiningum aðeins.“
Póstdreifing | Suðurhraun 1 | 210 Garðabær | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
365 miðlar treysta okkur fyrir
öruggri dreifingu á Fréttablaðinu
Við flytjum þér góðar fréttir