Fréttablaðið - 10.08.2012, Blaðsíða 38
10. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR22
BAKÞANKAR
Magnús
Þorlákur
Lúðvíksson
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. köttur, 6. frá, 8. aðstoð, 9. tækifæri,
11. mun, 12. kompa, 14. yfirbragð,
16. tónlistarmaður, 17. andmæli, 18. í
viðbót, 20. þys, 21. skjótur.
LÓÐRÉTT
1. steintegund, 3. á fæti, 4. eyja í
Miðjarðarhafi, 5. svelg, 7. svikull, 10.
kann, 13. vel búin, 15. kúnst, 16. kóf,
19. bókstafur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. kisi, 6. af, 8. lið, 9. lag, 11.
ku, 12. klefi, 14. stíll, 16. kk, 17. nei,
18. auk, 20. ys, 21. frár.
LÓÐRÉTT: 1. kalk, 3. il, 4. sikiley, 5.
iðu, 7. falskur, 10. get, 13. fín, 15. list,
16. kaf, 19. ká.
Getur þú hjálpað
mér með
dömurnar Jói?
Deilt þekkingu
þinn með mér!
Þú varst frægur
á sínum tíma!
Fræg-
ur og
fræg-
ur!
Ekki vera hóg-
vær! Þú þurftir
stundum að
taka höggin
en samt varstu
duglegur að
heilla döm-
urnar! Hvert er
leyndarmálið?
Jú, ég er nátt-
úrulega með
náttúrulegan
sjarma sem
heillar! Ég er
með blik í aug-
unum, flottan
danstakt og
söngrödd!
Sem og auð-
vitað hæfi-
leikann til að
drekka mig
blindfullan!
Frábært, ég
byrja þar! Hitt
kemur svo af
sjálfu sér!
Yeah
right!
Það er hægt að
dáleiða kjúkling með
því að snúa honum
á hvolf og strjúka á
honum hálsinn.
Flestir fróðleiks-
molar mínir
koma innan úr
kóktöppum.
Greinilega.
Þú mátt vera
í náttfötunum
ef þau eru
með hitavörn.
Bless
Anna!
Þetta var dóna-
legasta barn sem
ég hef hitt!
Ég veit.
En horfðu
á það
þannig...
...að núna, sama
hversu óþolandi ég er,
getur þú alltaf hugsað
„hún er allavega ekki
jafn slæm og Anna“!
Eftir grátlegt tap handboltalandsliðsins á miðvikudag og góða, en þó ekki frá-
bæra, frammistöðu Ásdísar Hjálmsdóttur
í spjótkasti er orðið ljóst að Ísland vinnur
ekki til verðlauna á þessum Ólympíuleik-
um. Nema auðvitað að Kári Steinn bæti sig
verulega í maraþonhlaupinu sem er ólíklegt.
(Við höfum samt fulla trú á þér Kári!). Þessi
uppskera er ólíðandi enda fátt betur til þess
fallið að vekja athygli á yfirburðum þjóðar
og menningar en medalíur. En hvernig
getum við eiginlega fjölgað íslenskum verð-
launum og jafnvel loks unnið fyrsta gullið?
TIL eru rannsóknir á því hvaða þættir hafa
áhrif á fjölda Ólympíuverðlauna sem lönd
vinna en þeirra áhrifamestir eru mannfjöldi
og auðlegð. Það hjálpar okkur þó ekki mikið
þar sem við getum vart haft mikil áhrif á þá
í bráð. Það er ekki þar með sagt að fámenn
og fátæk lönd geti ekki náð árangri í íþrótt-
um. Með markvissri fjárfestingu geta lönd
til dæmis stórbætt árangur sinn en bestu
dæmin um það eru sennilega gömlu ríki
Austur-Evrópu (þótt sterar hafi reynd-
ar hjálpað smá líka). Önnur leið er að
veita efnilegum erlendum íþrótta-
mönnum ríkisborgararétt (halló
Róbert Julian Duranona!) og enn
önnur að leggja áherslu á greinar þar
sem landið nýtur hlutfallslegra yfir-
burða. Lönd sem eru hátt yfir sjávarmáli
hafa til dæmis forskot í langhlaupum og
strandríkjum gengur vel í siglingum.
LOKS geta lönd einbeitt sér að íþróttum
þar sem hlutfallslega auðvelt er að vinna til
verðlauna. Tölfræðiseníið Nate Silver hefur
skoðað Ólympíuíþróttirnar með þessum
gleraugum og komist að þeirri niðurstöðu
að þær sex greinar sem „auðveldast“ er að
vinna til verðlauna í séu glíma, tae kwon
do, lyftingar, hnefaleikar, fimleikar og júdó,
í þessari röð. Þetta eru því hestarnir sem
rétt er að veðja á en á móti eru minnstar
líkur á því að vinna til verðlauna í hokkíi,
körfubolta, þríþraut, samhæfðri sundfimi,
hestaíþróttum og strandblaki.
HVER er þá niðurstaðan? Jú: a) verum
dugleg við að búa til börn svo Íslendingum
fjölgi, b) verum framtakssöm og stund-
um góða hagstjórn svo auka megi auðlegð
landsins, c) fjárfestum í afreksíþrótta-
mönnum, d) ráðum mannaveiðara til að
finna efnilega erlenda íþróttamenn sem eru
fáanlegir til þess að læra að elska Ísland,
e) leggjum rækt við handbolta sem virð-
ist henta Íslendingum vel og f) hættum að
keppa í íþróttum þar sem við eigum ekki
séns og einbeitum okkur að glímu, tae kwon
do, lyftingum, hnefaleikum, fimleikum og
júdó.
HINN möguleikinn er að taka Ólympíuleik-
ana ekki svona alvarlega, leyfa fólki sjálfu
að velja þær íþróttir sem það vill stunda og
hafa gaman af öllu saman. En nei, mig lang-
ar meira í Ólympíugull!
Ólympíugull í Ríó 2016!
Engin ástæða til
að vera áberandi
Önnur Mósebók, nýútkomin önnur breiðskífa hljóm-
sveitarinnar Moses Hightower, hefur hlotið góða dóma.
Nauðbitinn mói varð skógur
Margir leggja á sig langa leið til að heimsækja
Ólaf Njál Sturluson í Nátthaga í Ölfusi.
Þar sem varla var stingandi strá að sjá
fyrir 25 árum er nú skjólsæll skógur fullur
af framandi trjáplöntum.
Meðal annars efnis: