Fréttablaðið - 10.08.2012, Side 42
10. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR26
Á dögunum var skáldsagan
Vögguvísa eftir Elías Mar
endurútgefin, en hún kom
fyrst út árið 1950. Ekki er
víst að allir þekki bókina,
sem jafnan er talin fyrsta
Reykjavíkursagan, en gangi
áætlanir eftir verður raunin
önnur strax í haust.
Vögguvísa verður í brennidepli
á lestrarhátíð Reykjavíkur Bók-
menntaborgar Unesco í október og
verður slagorðið „ein borg, ein bók“
í hávegum haft. Hugmyndin er að
allir borgarbúar lesi Vögguvísu og
umræðan um hana verði alltum-
lykjandi – á öllum skólastigum, í
fjölmiðlum, á bókasöfnum, hvar
sem er verði fólk að velta fyrir sér
Vögguvísu. „Þegar þú ferð í klipp-
ingu áttu meira að segja að vera að
tala um hana við manneskjuna sem
situr við hliðina á þér,“ segir Svav-
ar Steinarr Guðmundsson hjá bóka-
útgáfunni Lesstofunni, sem stend-
ur fyrir endurútgáfunni.
Vögguvísa er annað verkið sem
kemur út á vegum Lesstofunnar
og kemur í kjölfar Angantýs eftir
Elínu Thorarensen. „Öfugt við
flestar aðrar skáldsögur sem komu
út í kringum 1950 er Vögguvísa
ekki full af fortíðarþrá og stöðugt
að miða borgina við sveitina. Sveit-
in er ekki til í hugmyndaheimi ung-
linganna í bókinni. Þarna nær Elías
að fanga þessa nýju borg, sem er að
verða til beint fyrir framan nefið á
honum,“ segir Svavar, beðinn um
að útskýra hvað geri söguna svo
einstaka.
Við skriftirnar fór Elías út á
meðal unglinga, rannsakaði þeirra
tungutak og bjó sér til safn yfir
slangurorð og orðasambönd þeirra.
Bókin er öll skrifuð á því tungutaki
og er því einstök heimild um tján-
ingarmáta unglinga þessa tíma.
Slangurorðasafnið er birt í heild
sinni í endurútgáfu bókarinnar,
en áður hefur einungis brot af því
birst, í viðtalsbók Hjálmars Sveins-
sonar við Elías frá árinu 2007, Nýr
26
menning@frettabladid.is
Nýtt verk eftir Kjartan Sveinsson
úr Sigur Rós verður frumflutt á
hinum árlegu Kammertónleikum
á Kirkjubæjarklaustri, sem haldnir
verða nú um helgina.
Þetta er í 22. sinn sem hátíðin
er haldin en listrænn stjórnandi
er Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
Fjöldi tónlistarmanna kemur fram
á hátíðinni, bæði einsöngvarar og
kórar. Á föstudag flytja Hrólf-
ur Sæmundsson baritón, Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópr-
an og Francisco Javier Jáuregui
gítarleikari tónlist eftir Benjam-
in Britten, Mátyás Seiber, Carlo
Domeniconi og Matthias von Holst,
sem öll er byggð á þjóðlagaarfi
ólíkra þjóða. Á laugardag flytja
Bjarni Thor Kristinsson bassi og
Ástríður Alda Sigurðardóttir Álfa-
kónginn og fleiri sönglög og ballöð-
ur. Á sunnudag lætur Kammerkór
Suðurlands til sín taka á lokatón-
leikum hátíðarinnar og flytur tón-
list eftir sir John Tavener og ýmis
íslensk tónskáld. Þá frumflytur
kórinn ásamt Guðrúnu Jóhönnu
Ólafsdóttur verkið Stríð eftir
Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós,
við ljóð Halldórs Laxness úr Sjálf-
stæðu fólki, en verkið var samið
sérstaklega fyrir Kammertónleika
á Kirkjubæjarklaustri. Hörður
Arnarsson stýrir kórnum.
Allir tónleikarnir eru haldnir
í félagsheimilinu Kirkjuhvoli á
Kirkjubæjarklaustri.
Kammertónleikar á
Kirkjubæjarklaustri
AUSTUR Á KLAUSTUR Fjölmargir listamenn taka þátt í kammerhátíðinni á Kirkju-
bæjarklaustri sem haldin verður í 22. sinn um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIOR
Nýr deildar-
forseti í LHÍ
Sigrún Birgisdóttir arki-
tekt hefur verið ráðin í stöðu
deildarforseta hönnunar- og
arkitektúrdeildar Listaháskóla
Íslands.
Sigrún stundaði fyrrihluta-
nám í arkitektúr við arki-
tektúrdeild Tækniháskólans í
Mílanó og við arkitektúrdeild
Oxford Brookes-háskólans í
Oxford á Englandi. Síðari hlut-
ann stundaði hún við Arkitekt-
úrháskóla Arkitektasamtak-
anna (AA) í London þaðan sem
hún lauk lokaprófi 2001.
Ferill Sigrúnar hefur fyrst
og fremst verið innan háskóla-
samfélagsins, en hún hefur
starfað sem kennari og fag-
stjóri í arkitektúr við háskóla í
Bretlandi og við Listaháskóla
Íslands. Sérsvið hennar og við-
fangsefni eru einkum borgar-
fræði með áherslu á samspil
einka- og almenningsrýma
annars vegar og hins vegar
samhengi byggðar og náttúru.
SIGRÚN BIRGISDÓTTIR.
UPPSKERUTÓNLEIKAR fyrsta norræna kóramóts Norbusang fyrir 16 til 25 ára verða
í Hörpu á morgun klukkan fimm síðdegis. Kórarnir flytja tónleikadagskrá ásamt frumsömdu
verki eftir tónlistarmennina Þóru Marteinsdóttur og Gunnar Ben.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 10. ágúst 2012
➜ Tónleikar
17.00 Rannveig Káradóttir sópran,
Kristján Jóhannesson baritón og
Matthildur Anna Gísladóttir píanó-
leikari flytja íslenskar einsöngsperlur í
Kaldalóni Hörpu.
➜ Sýningar
20.00 Sýningin Heimsendir opnar
í Artíma gallerí, galleríi listfræðinema,
að Skúlagötu 28. 23 listamenn sem
hafa lokið námi í myndlistardeild
Listaháskóla Íslands sýna verk sín sem
fjalla um endi heimsins. Muck spilar á
opnuninni.
20.00 Opnuð verður sýning á verkum
listamannanna Lars Ravn, Holger
Bunk og Helga Þorgils Friðjónssonar í
Listasafni ASÍ.
➜ Tónlist
12.30 Tríó rússneska harmonikku-
leikarans Vadim Fyodorov leikur á
ljúfum nótum í Háteigskirkju. Aðgangs-
eyrir er kr. 1.000.
12.30 Félagar í Tríó Vadim Fyodorov
flytja rússneskan sígaunadjass á næstu
hádegistónleikum í Háteigskirkju. Miða-
verð er kr. 1.000.
17.30 Hljómsveitin Moses Hightower
heldur síðdegistónleika í verslun 12
Tóna við Skólavörðustíg til að fagna
útgáfu nýrrar plötu sinnar sem ber
heitið Önnur Mósebók. Allir velkomnir.
20.00 Söngvaskáldin Uni og Jón
Tryggvi halda tónleika á heimili sínu að
Merkigili, Eyrarbakka, í tilefni af Alda-
mótahátíð á Eyrarbakka. Ásamt þeim
koma fram Myrra Rós, Danimal, Owls of
the Swamp og Magnús Leifur. Aðgangur
er ókeypis en frjáls framlög vel þegin.
21.00 Tríó rússneska harmonikku-
leikarans Vadims Fyodorov leikur á
Café Rosenberg. Aðgangseyrir er kr.
1.500.
22.00 Hljómsveitin Lame Dudes
flytur eigin lög á Hressó. Hljómsveitin
Brimlar hitar upp. Aðgangur er ókeypis.
23.00 Dúettinn Eiki og Bleiki
skemmta á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakka-
stíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
➜ Leiðsögn
12.10 Boðið er upp á hádegis-
leiðsögn í Listasafni Íslands.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
Vögguvísa komin aftur í bókabúðir
Andi lekandi (kyn-
sjúkd.; oftast notað
með greini)
Asskabla afskaplega
(alg. framburður í
munni kvenfólks)
Augnalok andartak,
stuttur tími (notað í
staðinn fyrir › bíddu
svolítið)
Bakarí vandi, vand-
ræði, uppsteytur
Beibí ung stúlka
Beygla léleg fólksflutn-
ingsbifreið
Bjútí fögur stúlka
Blakkt svart, illt (útlit,
ástand o.s.frv.)
Bless vertu blessaður!
Blesspartí kveðjuhóf
Deyja að sofna fast
sökum ofurölvunar
Digga að koma kven-
manni til › að digga
við e-a
Djók skemmtun,
góðlátlegt gaman eða
blekking, útúrsnúningur
Dræva að aka bifreið
Dýraríkið Áfengis-
verslun ríkisins
Fóna að hringja í síma
Fótabað kvennafar,
samfarir
Gleimorboj tísku-
klæddur unglingur og
tilhaldssamur
Glerfínn vel til fara,
glæsilegur í útliti
Glommugangur fyrir-
gangur, ólæti, asi
Græj nokk ágætur ›
hann er græj nokk;
ágætur náungi
NOKKUR SLANGUR ORÐ ÚR SAFNI ELÍASAR MARAR
penni í nýju lýðveldi. Svavar segir
stórskemmtilegt að velta fyrir sér
orðunum í safninu. „Mörg þessara
orða lítum við ekki á sem slang-
ur lengur, heldur sem góð og gild
íslensk orð, svo sem orðið brand-
ari. En svo er líka slangur þarna
sem við þekkjum alls ekki í dag, og
nokkur kjánaleg orð inn á milli.“
Vögguvísa er önnur bókin sem
kemur út á vegum Lesstofunnar
frá því hún var sett á stofn fyrir
rúmu ári síðan. Að útgáfunni
standa fimm fyrrverandi skóla-
félagar við Háskóla Íslands, sem
vildu vinna að sameiginlegum
áhugamáli sínu að námi loknu og
láta að sér kveða í íslenskri bók-
menntaumræðu. Svavar segir
megináherslu lagða á endurútgáfu
mikilvægra verka í íslenskri bók-
menntasögu, sem fyrir einhverjar
sakir hafi týnst eða gleymst. Fleiri
endurútgáfur séu væntanlegar frá
útgáfunni, auk bæði nýrra þýddra
og íslenskra skáldverka.
holmfridur@frettabladid.is
FÓLKIÐ Í LESSTOFUNNI Þorsteinn Surmeli, Sigrún
Margrét Guðmundsdóttir, Anna Lea Friðriksdóttir,
Þórunn Kristjánsdóttir og Svavar Steinarr Guðmundsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Krakkasíðan er í
helgarblaði Fréttablaðsins
krakkar@frettabladid.is
Jófríður Ísdís Skaftadóttir er
kraftakona sem gæti grýtt
kúlu langt. Kringlukast á þó
hug hennar allan enda setti
hún nýtt landsmótsmet í
því um síðustu helgi.
BESTU BROTIN
ÚR ÞÁTTUM
FM 957
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag