Fréttablaðið - 10.08.2012, Síða 50
10. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR34
UTAN VALLAR
Eiríkur Stefán Ásgeirsson á ÓL Í London
segir sína skoðun
FÓTBOLTI FH-ingurinn Atli
Guðnason hefur verið á
skotskónum í Pepsi-deild karla
í sumar og er nú með tveggja
marka forskot á listanum
yfir markahæstu leikmenn
deildarinnar.
Atli skoraði sína aðra þrennu
í sumar í 5-2 sigri á Selfossi í
Kaplakrika í fyrrakvöld og varð
þar með sá fyrsti í sjö ár sem
nær að skora tvær þrennur á
sama tímabili. Atli er alls búinn
að skora 9 mörk í 13 leikjum
með FH-liðinu í Pepsi-deildinni í
sumar.
Atli skoraði einnig þrennu í
7-2 stórsigri á ÍA upp á Akranesi
í 9. umferð og er með tvær af
fjórum þrennum sumarsins.
Kjartan Henry Finnbogason í
KR og Christian Steen Olsen hjá
ÍBV hafa einnig skorað þrennu í
fyrstu fjórtán umferðunum.
Síðastir til að ná þessu á
undan Atla voru FH-ingarnir
Tryggvi Guðmundsson og
Allan Borgvardt sumarið 2005.
Þrennur Tryggva komu í upphafi
og lok sumars en báðar þrennur
Allans komu með stuttu millibili
um mitt sumar. - óój
Atli með tvær þrennur:
Ekki gerst síðan
sumarið 2005
ATLI GUÐNASON Skoraði sínar fyrstu
þrennur í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÓL 2012 Þó svo að vonbrigðin eftir tap
Íslands fyrir Ungverjalandi í fyrra-
dag hafi verið ólýsanlega mikil er
ekki annað hægt en að læra af mis-
tökunum og horfa fram á veginn.
Það segir Björgvin Páll Gústavsson,
landsliðsmarkvörður í handbolta.
Tap Íslands þýddi að liðið féll úr
leik á Ólympíuleikunum. Sérlega
grimm örlög, sérstaklega miðað við
að strákarnir unnu alla leiki sína
í riðlinum. Það var þó allt undir
í leiknum gegn Ungverjalandi í
körfuboltahöllinni á miðvikudaginn
og það sem hafði gerst fram að því
skipti engu máli.
„Mér hefur liðið betur,“ sagði
Björgvin þegar Fréttablaðið settist
niður með honum í Ólympíugarð-
inum í gær, rétt rúmum sólarhring
eftir leikinn umtalaða. Margir af
félögum hans í landsliðinu voru þá
þegar farnir úr Ólympíuþorpinu eða
á leið í burtu.
„En það þýðir ekkert annað en
að taka þessu með jafnaðargeði
og horfa fram á veginn. Þetta voru
mikil vonbrigði en það er ekki hægt
að dvelja við þetta endalaust,“ segir
hann.
Gerði sextán mistök í leiknum
Hann segist hafa eytt kvöldinu eftir
leik í að fara yfir atburði dagsins,
bæði með félögum sínum og í ein-
rúmi. „Við ræddum þetta í gegn.
Maður verður að reyna að koma
þessu frá sér svo maður sé ekki að
dvelja við þetta alla nóttina,“ segir
Björgvin Páll sem spilaði fyrri hálf-
leikinn og varði fjögur skot í honum.
„Ég fékk sextán mörk á mig og
ég fór yfir þau öll kvöldið eftir leik.
Maður gerir mörg mistök í sportinu
og ég gerði sextán mistök í þessum
leik,“ segir hann.
„Það þýðir samt ekki að dvelja of
lengi við það. Maður lærir af þessu
og hendir því svo frá sér. En þetta
var svo mikilvægur leikur að hver
mistök telja tvöfalt og er erfitt að
kyngja því.“
Lögðum hjartað að veði
Eins og gefur að skilja voru hand-
boltaunnendur og stuðningsmenn
íslenska landsliðsins í sárum í gær.
Leikmenn skilja það vel en Björg-
vin segir að enginn hafi tekið þessu
verr en leikmennirnir sjálfir.
„Við lögðum hjartað að veði fyrir
mótið og ætluðum okkur stærri
hluti. En við klikkuðum í stærsta
leiknum þó svo að við höfum náð
að spila frábærlega á mótinu fram
að því. Þetta var líklega besta mót
okkar til þessa. Við unnum bæði
Frakka og Svía í riðlinum sem eru
nú komin í undanúrslit – sem hjálpar
ekki til. Það er afar svekkjandi.“
Og hann segir að viðbrögð
Íslendinga á Facebook, Twitter og
öðrum netmiðlum hafi ekki farið
fram hjá sér. „Menn stjórna því
sjálfir hvað þeir vilja sjá og ekki.
Persónulega finnst mér gaman að
fá viðbrögð frá þjóðinni enda er
maður voðalega fljótur að stökkva
á netið eftir sigurleiki. Maður verð-
ur því líka að geta tekið gagnrýn-
inni þegar hún kemur. Auðvitað er
líka stutt í neikvæðnina en maður
má ekki taka það inn á sig. Mótlæt-
ið gerir mann bara sterkari.“
Á Guðmundi margt að þakka
Guðmundur Guðmundsson er nú
hættur sem landsliðsþjálfari og
líkur eru á að Ólafur Stefánsson
hafi leikið sinn síðasta landsleik,
þó svo að hann hafi ekkert gefið út
um sína framtíð.
„Ég á Guðmundi margt að þakka.
Hann gaf mér mitt fyrsta tækifæri
í landsliðinu árið 2003 og valdi mig
til að spila á tveimur Ólympíuleik-
um. Þess fyrir utan er gríðarlegur
missir að manninum,“ segir hann.
„Guðmundur er búinn að byggja
upp lið í fjögur og hálft ár sem
hefur náð langt. Hans handbragð
er á liðinu, bæði í vörn og sókn, og
þó svo að við höfum allir lagt okkar
í púkkið er hann arkitektinn að öllu
saman.“
Björgvin Páll segir að leikmönn-
um annarra liða finnist leiðinlegt að
fara á svokallaða „vídeófundi“ þar
sem andstæðingurinn er greindur.
Guðmundur hefur haldið marga
slíka í gegnum tíðina. „Hver fundur
með Gumma hefur verið skemmti-
legur. Hann er mikill handbolta-
nörd og tekst að gera þetta mjög
skemmtilega.“
Enginn heimsendir
Björgvin neitar því ekki að landslið-
ið standi nú á tímamótum en að þó
svo að einhverjir séu á útleið verði
íslenska landsliðið áfram sterkt.
„Auðvitað eru það tímamót þegar
landsliðsþjálfarinn, og jafnvel fyrir-
liðinn líka, fer úr liðinu. En það
þarf ekki endilega að vera verra –
nú koma nýir menn inn og vonandi
verður hægt að gera gott enn betra.
Ég hef ekki áhyggjur enda þýðir
ekki að búa til heimsendi þó svo
að tveir menn hætti. Það er fullt af
færum þjálfurum og leikmönnum á
okkar litla klaka.“
MÓTLÆTIÐ GERIR MANN STERKARI
Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson segir að örlög íslenska liðsins á Ólympíuleikunum hafi
verið grimm en að það sé stundum eðli íþróttanna. Frammistaðan á mótinu sé þó ein sú besta frá upphafi.
BJÖRGVIN PÁLL Hér fyrir framan körfuboltahöllina í Ólympíugarðinum í London þar sem Ísland tapaði fyrir Ungverjalandi í fyrradag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
og Valgarður
Gíslason
fjalla um ÓL 2012
eirikur@frettabladid.is - valli@frettabladid.is
HANDBOLTI Þórir Hergeirsson
heldur áfram að gera frábæra
hluti með norska kvennalands-
liðið í handbolta en í gær stýrði
hann norska kvennaliðinu inn í
úrslitaleikinn um gullið á Ólymp-
íuleikunum í London.
Norsku stelpurnar unnu þá
sex marka sigur á Suður-Kóreu,
31-25, og eru komnar á mikið flug
eftir tap í fyrsta leik og erfiða
byrjun á mótinu. Sigurinn í gær
var öruggur og sannfærandi og
leikgleðin skein úr hverju andliti.
Þórir er þegar búinn að
gera norska liðið að Heims-
og Evrópumeisturum sem
aðalþjálfari og er nú aðeins
einum sigri frá því að ná
þrennunni fyrstur íslenskra
þjálfara.
Noregur vann Ólympíugull á
leikunum í Peking 2008 en þá
var Þórir aðstoðarþjálfari Marit
Breivik. - óoj
Þórir Hergeirsson:
Einum sigri frá
gull-þrennunni
ÞÓRIR HERGEIRSSON Fagnar hér sigri
norska kvennalandsliðsins í London.
NORDICPHOTOS/AFP
Nokkrum mínútum eftir leik Íslands
og Ungverjalands stóð ég andspænis
Ólafi Stefánssyni, einni mestu íþrótta-
hetju þjóðarinnar frá upphafi, og
reyndi að orða hálfviturlega spurn-
ingu svo viðtalið gæti hafist.
Við slíkar aðstæður verða allar
spurningar heimskulegar. Ólafur
hefur í vel á annan áratug farið fyrir
hópi manna, strákanna okkar, sem
hverju sinni hafa skipað íslenska
handboltalandsliðið. Þetta er hópur
sem hefur fært þjóðinni svo margar
góðar stundir. Um það þarf ekki að
fjölyrða.
Og nú var svo komið að þessi
ótrúlegi íþróttamaður, mögulega við
enda síns ferils, fékk að upplifa eitt
sárgrætilegasta tap landsliðsins frá
upphafi. Verðlaunapallurinn var innan
seilingar og í þetta sinn átti að fara í
efsta þrep. En það átti ekki að verða.
Ólafur gerði sitt besta til að svara
spurningum mínum. Hann reyndi
að koma tilfinningum sínum í orð
en stóð eftir með tárin í augunum,
klappaði mér á öxlina eins og að
hann væri að biðjast afsökunar á að
geta ekki gefið mér skýrari svör, sem
var auðvitað fásinna. Svo gekk hann
í burtu.
Það var margt við leik íslenska
liðsins í fyrradag sem betur hefði
mátt fara. En þannig er það alltaf og
það er alltaf hægt að vera vitur eftir á.
Íþróttir geta verið grimmar og í þetta
sinn var það hlutskipti strákanna að
tapa. „Það verður líka að kunna að
tapa,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson eftir að hafa stýrt sínum
síðasta landsleik og komst ég
ekki hjá því að leiða hugann að
badmintonkonunum átta sem var
vikið úr keppni fyrr á Ólympíuleik-
unum. Þær kunnu ekki að tapa.
Þegar fram líða stundir verður
leikurinn gegn Ungverjum minn-
ingin ein. Hún verður að vísu slæm
en við eigum sem betur fer margar
góðar. Margar tengjast Ólafi Stefáns-
syni með beinum hætti og fyrir það
er ég þakklátur.
Ólafur hefur í seinni tíð sagt
að vegferðin skipti meira máli en
áfangastaðurinn. Og vegferðin með
honum hefur verið frábær, hvort sem
henni lýkur nú eða ekki. Takk fyrir allt.
Takk fyrir allt