Fréttablaðið - 10.08.2012, Síða 54
10. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR38
GOTT Á GRILLIÐ
„Lambainnralæri er í upp-
áhaldi núna, en svo er ég líka
mikið fyrir sterkar grillpylsur.
Mér finnst best að grilla þær
alveg í tætlur og helst þannig að
þær springi.“
Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR
og leikstjóri.
„Þetta eru Ólympíuleikarnir í orðaleik og það eru
tveir keppendur í úrslitum, íþróttafréttamennirnir
Þorkell Gunnar og Einar Örn, og þeir hafa staðið sig
alveg gríðarlega vel,“ segir grínistinn Gunnar Sig-
urðarson.
Gunnar er með leik í gangi á Twitter-síðu sinni
þar sem hann skorar á íþróttafréttamennina til að
láta viss orð falla í beinni útsendingu. „Ég lít á þetta
sem þjálfun í orðanotkun starfsmanna Ríkisútvarps-
ins,“ segir Gunnar sem hefur áður verið með sams
konar leiki í gangi fyrir fjölmiðlafólk og segir alla
hafa hlýtt kalli hingað til. Meðal orða sem þeir Þor-
kell Gunnar og Einar Örn hafa þurft að láta flakka
í beinni útsendingu eru þvagfærasýking, rotþróar-
hreinsiefni, brandugla og sækýr. „Þeir geta notað
orðin að vild en hafa staðið sig frábærlega í að koma
þeim inn í setningar,“ segir Gunnar. „Ég hef aldrei
orðið vitni að svona frábærri orðanotkun hjá nokkr-
um starfsmanni ríkisútvarps eða sjónvarps. Þeir eiga
heiður skilið fyrir þetta,“ bætir hann við.
Gunnar fylgir ströngum reglum þegar hann velur
orðin og segir þau aldrei vera íþyngjandi eða niður-
lægjandi fyrir neinn. Strákarnir fá bónusstig fyrir
gott samhengi í setningu og svo eru erfiðleikastig
á orðum og sum gefa fleiri stig en önnur. Þorkell
Gunnar leiðir nú keppnina með einu stigi, 10 á
móti 9, en Einar Örn á þó leik til góða. „Það verður
spennandi að fá þá heim og veita þeim verðlaun fyrir
framúrskarandi frammistöðu,“ segir Gunnar
og tilnefnir sjálfan sig til verðlauna Jón-
asar Hallgrímssonar fyrir verndun á
íslenskri tungu. „Það eru Nóbelsverð-
launin sem ég stefni á,“ segir hann. - trs
Ólympíuleikar í orðanotkun
FRÁBÆR ORÐANOTKUN Báðir
hafa þeir Þorkell Gunnar
og Einar Örn staðið sig með
prýði í orðaleik Gunnars.
Þorkell Gunnar leiðir
með einu stigi en
Einar Örn á leik
inni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Við erum í skýjunum yfir að fá svona reynslu-
bolta til liðs við okkur í ár,“ segir Hrönn Mar-
ínósdóttir hjá Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni
í Reykjavík, RIFF, en formaður dómnefndar á
hátíðinni í ár verður Geoffrey Gilmore, stjórn-
andi Tribeca-hátíðarinnar.
Gilmore er virt nafn innan kvikmynda-
iðnaðarins en hann stjórnaði Sundance-hátíð-
inni í 19 ár áður en hann hóf störf hjá Tribeca
fyrir þremur árum. Sundance er ein stærsta
óháða kvikmyndahátíðin í Bandaríkjunum og
segir Hrönn það mikils virði að fá að kynna
Gilmore fyrir því sem er gerast kvikmynda-
menningu hér á landi. Hann er einnig kennari
við kvikmyndadeild UCLA-háskólans í Los
Angeles og hefur verið í dómnefnd á kvik-
myndahátíðum um allan heim.
„Það verður mjög gaman að taka á móti
honum og kynna hann fyrir landi og þjóð.
Þetta snýst allt um að búa til tengslanet fyrir
áframhaldandi samstarf og er mikið tæki-
færi fyrir þá sem að hátíðinni koma,“ segir
Hrönn og fullyrðir að Gilmore hafi ekki tekið
sér langan tíma til umhugsunar eftir að RIFF
hafði samband. „Hann stökk á tækifærið og
er mjög spenntur yfir að koma.“
Í ár eru það tólf myndir sem keppa um
aðalverðlaun hátíðarinnar, gullna lundann,
en RIFF fer fram dagana 27. september til 7.
október næstkomandi. Þetta er í níunda sinn
sem hátíðin er haldin en ásamt Gilmore verða
tveir aðrir aðilar í dómnefnd sem ekki er búið
að staðfesta enn þá en undirbúningur fyrir
RIFF er í fullum gangi. - áp
Reynslubolti formaður dómnefndar á RIFF
REYNSLUBOLTI Geoffrey Gilmore, stjórnandi Tribeca-
kvikmyndahátíðarinnar, verður formaður dómnefndar á
RIFF, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík.
NORDICPHOTOS/GETTY
Áfangar í boði
AVV-323 verkleg vélvirkjun EÐL - 102 eðlisfræði
HSU-102/212 verkleg suða IRM - 102 iðnreikningur
HSU 232 verkleg þunnplötusuða, ál / stál / ryðfr. EFM - 103 efnisfræði málma
LSU-102/202 verkleg suða ITM - 213 tölvuteikning / inventor
RSU-102/202 verkleg suða RAF - 113 bókleg rafmagnsfræði
REN-103/203 rennismíði fyrir byrjendur REN - allir áfangar bókleg rennismíði
REN-344/443 rennismíði framhald VFR - 223 fagbókleg vélfræði
VÖK - 123 verkleg vökvatækni VÖK - 122 bókleg vökvatækni
TTÖ - 103 tölvuteikning f. byrjendur
Verklegir Bóklegir
Málmiðngreinar dreifnám - haustönn 2012
Innritun í dreifnám í málmiðngreinum verður eftirfarandi daga:
föstudag 10. ágúst kl. 17 - 19
laugardag 11. ágúst kl. 11 - 14
Kennt verður í dreifnámsformi og fá nemendur aðgang að moodle
þar sem verða próf og upplýsingar um námið.
Námið er góður kostur fyrir þá sem hyggjast taka sveinspróf í
málmiðngreinum. Allar suðugreinar, s.s. MIG/MAG, TIG, logsuða
og rafsuða, eru kenndar og að auki handa- og plötuvinna, aflvéla-
virkjun, rennismíði, grunnteikning, tölvuteikning og rafmagnsfræði.
Upphaf kennslu: miðvikudagur 22. ágúst.
Lok kennslu: þriðjudaginn 30. nóvember
Ath. Áfangar geta fallið niður, náist ekki nægur fjöldi í hópa.
Sjá einnig á vef skólans www. bhs.is
Skólameistari
„Ég samdi lag og texta, syng aðal-
röddina og bakraddirnar og spila
alla strengi, svo ég held að það sé
óhætt að segja að þetta lag sé svo-
lítið ég,“ segir Eurovision-farinn
Greta Salóme Stefánsdóttir hlæj-
andi.
Greta Salóme gefur út lagið
Everywhere Around Me í dag, en
það er hennar fyrsta lag frá því
að Eurovision-ævintýrinu lauk og
jafnframt fyrsta lagið af væntan-
legri plötu hennar sem kemur út
fyrir jól. Að sögn Gretu er lagið
mjög ólíkt Eurovision-laginu
Never Forget og töluvert harðara
en allt sem hún hefur gert hingað
til. „Við Þorvaldur Bjarni veltum
því lengi fyrir okkur í hvaða átt
við vildum stefna. Ég settist svo
niður við hljómborðið og þetta
varð afraksturinn,“ segir hún og
bætir við að Þorvaldur Bjarni hafi
líkt laginu við blöndu af henni,
Muse og Florence and the Mach-
ine. Hún segist alls ekki stress-
uð yfir að koma með nýtt lag til
að feta í fótspor Eurovision-lags-
ins vinsæla. „Það er svo frelsandi
að geta gert lag sem þarf ekki
að passa inn í neinar formúlur.
Í Eurovision eru manni settar
ákveðnar skorður en í þessu lagi
get ég einbeitt mér að því sem
ég vil gera. Þetta er miklu meira
svona popprokklag sem ég held að
komi til með að höfða til töluvert
breiðari hóps en bara Eurovision-
aðdáenda,“ segir hún.
Greta eignaðist mikið af erlend-
um aðdáendum þegar hún fór til
Bakú sem fulltrúi Íslands í Euro-
vision í maí. Margir þeirra hafa
fylgt henni eftir síðan þá og bíða
nýja lagsins með eftirvæntingu.
„Eftir að ég gaf það út að nýtt lag
væri væntanlegt er ég búin að fá
mikið af pósti og fyrirspurnum
frá fólki alls staðar að sem eru
að spyrja um það. Ég finn alveg
að það er verið að bíða eftir þessu
lagi,“ segir hún. Hún lítur þátttök-
una í Eurovision mjög jákvæðum
augum þrátt fyrir að stefna ekki
að því að taka þátt aftur. „Þessi
keppni er algjörlega frábær stökk-
pallur fyrir þá sem eru að vinna
með tónlist til að koma sér á fram-
færi. Það er bara mikilvægt að
nýta sér meðbyrinn eftir svona
keppni og halda áfram. Fyrir mér
var Eurovision bara rétt blábyrj-
unin og núna fyrst er partýið að
byrja,“ segir hún spennt.
Lagið verður frumflutt hjá
Rúnari Róberts á Bylgjunni í dag
klukkan 13.30. tinnaros@frettabladid.is
GRETA SALÓME: ÉG FINN AÐ ÞAÐ ER VERIÐ AÐ BÍÐA EFTIR ÞESSU LAGI
Gretu engar skorður settar í
nýju popprokklagi
EKKERT STRESSUÐ Gréta Salóme Stefánsdóttir sendir frá sér sitt fyrsta lag eftir
Eurovision-ævintýrið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Bandaríski söngvarinn Tony Benn-
ett kemur fram á tónleikum í Hörp-
unni í kvöld. Söngvarinn lenti
ásamt föruneyti sínu á Reykja-
víkurflugvelli í hádeginu í gær og
hélt þá strax út á land til að skoða
náttúru landsins.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins lá leið Bennetts og fjöl-
skyldu út fyrir borgarmörkin
skömmu eftir lendingu, en hann var
sagður spenntur fyrir því að virða
fyrir sér náttúrufegurð landsins.
Með honum í för voru eiginkona
hans, sonur og dóttir hans, Ant-
onia Bennett, sem mun einnig koma
fram á tónleikunum í kvöld.
Fréttablaðið hefur einnig heim-
ildir fyrir því að óskalisti söngv-
arans gamalkunna sé mjög hóf-
stilltur. Bennett fer meðal annars
fram á að í búningsherbergi hans
sé ávaxtaskál, nokkrar samlokur,
koffínlaust kaffi, vatnsflöskur og
tvær vínflöskur. Hann óskar einn-
ig eftir því að stór spegill sé í her-
berginu sem og stóll með beinu
baki og nokkur handklæði.
Ferill Bennetts spannar um sex-
tíu ár og á þeim tíma hefur hann
fengið sautján Grammy-verðlaun,
tvenn Emmy-verðlaun og selt um 50
milljón plötur um heim allan. - sm
Hógvær stórsöngvari
HÓGVÆR Tony Bennett kom til landsins í gær. Óskalisti söngvarans er stuttur og
kröfunum stillt í hóf. NORDICPHOTOS/GETTY