Fréttablaðið - 17.08.2012, Side 6

Fréttablaðið - 17.08.2012, Side 6
17. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR6 LÖGREGLUMÁL Tveir farþegar í flug- vélinni sem lenti óvænt á Íslandi vegna sprengjuhótunar í gær voru handteknir í tengslum við málið. Þeir verða látnir lausir að loknum yfirheyrslum. Sprengjuleit er lokið í flugvél- inni en engin sprengja fannst í vél- inni. Vélin var á leið frá New York til Rússlands. Í hótuninni kom fram að fimm ferðatöskur í vélinni inni- héldu sprengiefni og myndu springa við lendingu í Moskvu. Önnur flugvél kom og sótti far- þegana og fóru þeir í loftið um hálf sjö. Farþegarnir fengu ekki að fara inn í Leifsstöð, en þeir voru í góðu yfirlæti í flugskýli við Keflavíkur- flugvöll þar sem þeir fengu aðstoð frá Rauða krossinum. Það er lögreglustjórinn á Suður- nesjum sem stýrir rannsókn á mál- inu í samstarfi við greiningardeild Ríkislögreglustjóra, en bandarískir aðilar munu einnig koma að þeirri rannsókn. „Hótunin er gerð erlendis þann- ig að bandarísk stjórnvöld verða væntanlega með í því,“ segir Víðir Reynis son, deildarstjóri hjá almannavarnadeild Ríkislögreglu- stjóra. Flugvél á leið frá New York til Rússlands neyddist til að lenda í Keflavík: Tveir handteknir vegna sprengjuhótunar Í LEIFSSTÖÐ Um 20 fjöldahjálparstjórar og sjálfboðaliðar Rauða krossins á Suður- nesjum og höfuðborgarsvæðinu hlúðu að 238 farþegum og 17 manna áhöfn flug- vélar frá Aeroflot í flugskýli á öryggissvæði á Keflavíkurflugvelli. MYND/TEITUR ÞORKELSSON VIÐSKIPTI „Þetta er nokkuð borð- leggjandi, að meta tjónið sem Ice- land Express varð fyrir, svo að ég geri ráð fyrir að fljótlega verði hægt að setjast niður og semja um skaðabæturnar,“ segir Páll Rúnar Mikael Kristjánsson, lögmaður Ice- land Express. Kærunefnd útboðs- mála komst að þeirri niðurstöðu að Ríkis kaup væru skaðabótaskyld gagnvart fyrirtækinu þar sem það tók tilboði Icelandair í útboði um flugsæti fyrir ríkisstarfsmenn til og frá Íslandi. Iceland Express átti lægsta tilboð en þrátt fyrir það tóku Ríkiskaup tilboði Icelandair sem var töluvert óhagstæðara. „Í viðlíka málum hefur það stund- um reynst erfitt að sanna tjónið en svo er ekki í þessu máli,“ segir Páll. „Ég hef nú þegar óskað eftir upp- lýsingum frá Ríkiskaupum sem nauðsynlegar eru til að staðreyna umfang tjónsins. Þegar þær ber- ast förum við að reikna en svo er íslenska ríkinu veitt tækifæri til að gera upp við tjónþola. Og ég á nú ekki von á öðru en þeir geri það bara; tjónið er borðleggjandi og hér liggur fyrir skýr úrskurður stjórn- valdsins og það er ekki við öðru að búast en þeir uni honum.“ Ríkiskaup hafa sjö daga til að svara kröfunni um upplýsingarn- ar en hún var send þeim síðasta þriðjudag. - jse Lögmaður Iceland Express telur auðvelt að meta tjón sem Ríkiskaup olli fyrirtækinu: Nú er bara að reikna og semja ICELAND EXPRESS Lögmenn fyrirtækis- ins bíða nú upplýsinga frá Ríkiskaupun en svo verður farið að reikna og semja. KJÖRKASSINN Hefur þú áhyggjur af mögu- leikanum á eldgosi í byggð á Íslandi? JÁ 39,6% NEI 60,4% SPURNING DAGSINS Í DAG Ætlar þú að fylgjast með ensku deildinni í knattspyrnu í vetur? Segðu þína skoðun á Vísir.is FÓLK „Maður fær með móður- mjólkinni hvernig það er að búa við rætur eldfjalls,“ segir Elín Einars dóttir, oddviti sveitarstjórn- ar í Mýrdalshreppi og deildarstjóri í grunnskólanum í Vík í Mýrdal. „Þetta er svo sem ekkert öðruvísi en annars staðar. Að minnsta kosti ekki fyrir þá sem eru fæddir og uppaldir á svæðinu.“ Samkvæmt forgangsröðun Veður stofu Íslands yfir hættuleg eldfjallakerfi á landinu er Katla meðal þeirra fjalla sem eru í hæsta hættustigi. Hún gaus síðast 1918 og hefur gosið að jafnaði á um átta- tíu ára fresti. Eldstöðin sjálf er um áttatíu ferkílómetrar að flatarmáli. „Allir þekkja Kötlu og maður heyrir sögur af henni. Afi minn upplifði gosið árið 1918 og maður ólst upp við þessar aðstæður,“ segir Elín. „En við upplifum okkur örugg því við eigum mjög góðar viðbragðsáætlanir og það eru allir viðbragðsaðilar hér heima í hér- aði.“ Elín segir þó gagnrýnivert að engin lögregla sé lengur til staðar í Vík. Sveitarstjórnin hefur barist fyrir því síðustu misseri að fá lög- reglu í umdæmið. „Það er mikið öryggisatriði að hafa lögreglu því hún hefur formlegt vald,“ segir hún. „Björgunarsveitar maður hefur til dæmis ekki formlegt vald. Við upplifðum þetta sjónrænt þegar brúin yfir Múlakvísl fór og það var engin lögregla á staðnum. Þá lentu björgunarsveitarmenn í vandræðum með borgarana því þeir neituðu að stöðva fyrir þeim.“ Börn á svæðinu eru með allt á hreinu hvað varðar viðbragðsáætl- anir ef ske kynni að Katla færi að gjósa. Að sögn Elínar finnst þeim það miklu meira spennandi heldur en að þau séu óttaslegin við fjallið. Annað eldstöðvakerfi í efsta hættuflokki er Svartsengi á Reykjanesi, við Grindavík. Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í Grinda- vík, segir menn í bænum vel með- vitaða um náttúruna í kring, bæði það sem kemur inn af sjónum og hvað hraunið geymir undir sér. „Það eru rýmingaráætlanir í skólum og svo erum við í miklu samstarfi við lögreglustjórann á Suðurnesjum, sem er ein besta almannavarnamanneskja á svæð- inu,“ segir hann. sunna@frettabladid.is Ekkert öðruvísi að búa á eldfjallasvæði Íbúar í Vík í Mýrdal eru vanir því að búa í sátt og samlyndi við eitt virkasta eld- fjall á landinu, segir oddviti sveitarstjórnar. Gagnrýnivert að engin lögregla sé lengur á svæðinu. Bæjarstjóri Grindavíkur segir fólk meðvitað um náttúruna. FÉKK KÖTLU MEÐ MÓÐURMJÓLKINNI Elín Einars- dóttir segir íbúa í Vík í Mýrdal ekki óttast Kötlu, heldur búa með henni í sátt og samlyndi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.