Fréttablaðið - 17.08.2012, Blaðsíða 52
17. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR36
with Love, og tvinnar saman fjór-
um aðskildum sögum sem eiga
það eitt sameiginlegt að sögusvið
þeirra er Rómaborg. Við fylgjumst
með ástarævintýrum og framhjá-
höldum, útfararstjórum og port-
konum, miðaldra arkitekt sem
gerist sérstakur ráðunautur yngri
útgáfu af sjálfum sér í kvennamál-
um og óperusöngvara sem getur
ekki sungið utan sturtunnar. Að
ógleymdri skrifstofublókinni Leo-
poldo sem dag einn verður frægur
fyrir nákvæmlega ekki neitt.
Það telst vart til tíðinda þegar
Woody setur saman öflugan leik-
hóp. Hér er allt eins og það á að
vera og best eru þau Eisenberg,
Mastronardi og tenórinn Fabio
Armilato. Stíllinn er skemmtilega
losaralegur og minnir til skiptis
á fyrstu verk leikstjórans og það
sem hann hefur aðhafst í ellinni.
Sögurnar eru misgóðar og á
stöku stað er brandaralopinn
teygður helst til mikið. En miðl-
ungsgóður Allen er þrátt fyrir allt
betri en flest það sem ratar í bíó-
húsin frá Bandaríkjunum, og sé To
Rome with Love borin saman við
eitthvað annað en fyrri verk leik-
stjórans er styrkur hennar augljós.
Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Fágunin og fáránleik-
inn ganga í eina sæng og úr verður
skemmtilegur hræringur sem ætti að
höfða til flestra aðdáenda leikstjórans.
36
popp@frettabladid.is
Bíó ★★★★ ★
To Rome with Love
Leikstjórn: Woody Allen
Leikarar: Alec Baldwin, Roberto
Benigni, Jesse Eisenberg, Woody
Allen, Ellen Page, Alessandra
Mastronardi, Penélope Cruz,
Judy Davis, Fabio Armiliato, Greta
Gerwig, Alison Pill, Flavio Parenti
Kvikmyndir leikstjórans Woodys
Allen eru orðnar fleiri en 40 tals-
ins og á hverju ári bætir hann að
minnsta kosti einni í bunkann.
Mynd hans frá því í fyrra, Mid-
night in Paris, þykir ein hans allra
besta í seinni tíð og skilaði hún
meiru í kassann en nokkur önnur
mynd leikstjórans frá upphafi. Það
voru því töluverðar líkur á að sú
næsta á eftir myndi ekki standa
undir væntingum.
Og nú er hún komin, To Rome
Betri en flest
VEL GERT Nýjasta mynd Woody Allen
To Rome with Love er skemmtilegur
hræringur.
Jennifer Aniston trúlofaðist
á föstudaginn mörgum til
mikillar hamingju, en hún
á að baki mörg misheppnuð
ástarsambönd eftir skilnað
sinn við Brad Pitt.
Eftir ski lnað draumapars
Hollywood í janúar 20 05
hefur Jennifer Aniston leitað í
margan karlmannsfaðminn. Aðdá-
endur gamanleikkonunnar glödd-
ust því þegar kærasti hennar Just-
in Theroux fór niður á skeljarnar á
afmælisdegi sínum á föstudaginn.
Bónorðið var borið upp á töku-
stað nýjustu myndar Aniston,
We‘re the Millers. Á sama tíma
spá fjölmiðlar vestra að Brad Pitt
muni ganga að eiga Angelinu Jolie
um helgina í húsi þeirra í Suður-
Frakklandi, en framhjáhald Brads
með Angelinu eyðilagði hjónaband
þeirra Aniston.
Nýi unnustinn er 41 árs leikari og
handritshöfundur. Þau eru sögð
hafa fallið hvort fyrir öðru við
tökur á Wanderlust í maí 2011 en
Aniston sagði það einungis orð-
róm. Ástin virðist þó hafa kvikn-
að því þau komu opinberlega fram
sem par 6. júní í eftirpartíi kvik-
myndaverðlauna MTV. Þetta er
fyrsta hjónaband hans en áður var
hann með stílistanum Heidi Biven
til fjórtán ára.
Strax eftir skilnað Aniston og
Pitt hóf slúðurpressan að segja frá
stuttum kynnum hennar við ýmsar
þekktar stjörnur. Fyrsta mislukk-
aða sambandið var við mótleikar-
ann Vince Vaughn sem hófst við
tökur á The Break Up og varði í
fimmtán mánuði á meðan blekið
þornaði á skilnaðarpappírunum.
Þaðan sigldi hún á ný mið og hitti
bresku fyrirsætuna Paul Sculfor í
nokkra mánuði árið 2007. Skömmu
síðar bættist Owen Wilson í hóp-
inn sem mótleikari og kærasti
við tökur á Marley & Me en log-
inn slokknaði að tökum loknum. Í
mars 2008 hófst samband hennar
við söngvarann John Mayer sem
varði í ár og er mörgum minnis-
stætt. Í ágúst 2009 fór af stað
orðrómur um hana og mótleikar-
ann Gerard Butler úr The Bounty
Hunt er. Af þeim náðust mjög inni-
legar myndir en þau vildu ekkert
staðfesta. Mánuði síðar var hún
skriðin í faðm Aarons Eckhart í
kjölfar myndarinnar Love Happ-
ens. Nú virðist löng leit Aniston að
ástinni á enda og eru þau Theroux
á leið í hnapphelduna eftir rúm-
lega árs samband.
Aniston og leitin að ástinni
TRÚLOFUÐ Jennifer Aniston hefur loksins hitt drauma-
manninn eftir mörg misheppnuð sambönd frá árinu
2005. Það er leikarinn og handritshöfundurinn Justin
Theroux sem fór niður á skeljarnar fyrir viku.
ÁÐUR FYRR Draumapar
Hollywood giftist 29. júlí 2000
en skildi í byrjun árs 2005.
GAMAN Vince Vaughn átti hug
Aniston í ár frá nóvember 2005.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
EKKERT STAÐFEST Innilegar
myndir náðust af þeim Gerard
Butler en ekkert fékkst staðfest.
ÁSTFANGIN Margir héldu að
John Mayer væri sá eini rétti en
ástin logaði í ár til mars 2009.
Biblía sem var í eigu rokkkóngs-
ins Elvis Presley verður boðin upp
í Manchester í næsta mánuði. Talið
er að hún fari á hátt í fjórar milljón-
ir króna. Presley fékk hana að gjöf
frá frænda sínum Vester og frænku
sinni Clettes þegar hann hélt jólin
hátíðleg í fyrsta sinn á heimili sínu,
Graceland, árið 1957. Um eitt hundr-
að hlutir úr eigu Presley verða
boðnir upp. Nú eru 35 ár liðin síðan
kóngurinn lést, 42 ára að aldri.
Biblía Presley boðin upp
ROKKKÓNGUR 35 ár eru liðin síðan Elvis
Presley lést.
ÁR fyllir leikarinn Robert De Niro í dag. De Niro
fagnar eflaust með konu sinni og sex börnum. 69
Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu
með nöfnum sínum
og brúðkaupsdegi ísaumuðum.
Íslensk
kennslubók í
matreiðslu fylgir.
MIKIÐ ÚRVAL
BRÚÐARGJAFA
FOR THE WAY IT´S MADE
Gildir um KitchenAid
hrærivélar.