Fréttablaðið - 17.08.2012, Blaðsíða 44
17. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR28
BAKÞANKAR
Björns Þórs
Sigbjörns-
sonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. margs konar, 6. hætta, 8. sjór, 9.
egna, 11. númer, 12. tími, 14. skýli,
16. sjó, 17. fiskilína, 18. tímabil, 20.
tvíhljóði, 21. gón.
LÓÐRÉTT
1. fnæs, 3. tveir eins, 4. fugl, 5. dýra-
hljóð, 7. vinsæll, 10. í viðbót, 13. til
sauma, 15. innyfli, 16. verkfæri, 19.
rot.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ýmsu, 6. vá, 8. mar, 9.
æsa, 11. nr, 12. stund, 14. skáli, 16.
sæ, 17. lóð, 18. öld, 20. au, 21. gláp.
LÓÐRÉTT: 1. hvæs, 3. mm, 4. sand-
lóa, 5. urr, 7. ástsæll, 10. auk, 13. nál,
15. iður, 16. sög, 19. dá.
Jæja, þetta var
notalegt Sissa!
Ótrúlegt hvað litla
svarta bókin hans
Jóa getur gert!
Eða
hvað?
Mót-
tekið!
Hún er með
nokkur Tourette
einkenni! Stóð
í smáaletrinu!
Sorry!
Víetnam
Watergate
Mannréttindi
Írak
Kjarn-
orkuvopn
Innflytjendur
Jæja, tón-
listin okkar
var allavega
betri.
Við vitum
hvernig á að
nálgast hana
frítt.
OPIÐ
Skrifstofa
Tímaflakks-Júlíu.
Ár: 2075
Ef þú heldur
áfram að gretta
þig svona getur
andlitið frosið í
grettunni.
Ég trúi
því
ekki.
Það er satt. Spurðu
bara pabba.
Ha?
Svo það
var það
sem kom
fyrir þig.
Fjandans!
Hef fulla trú á
sjálfum mér
Gylfi Þór Sigurðsson er tilbúinn fyrir tímabilið með
Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.
Bylting frá því sem áður var
Sigurður P. Sigmundsson hagfræðingur þótti sérviskulegur
þegar hann sást hlaupa í vegarköntum á áttunda áratugnum,
en nú eru allir úti að skokka.
Meðal annars efnis:
Sambandsslit eru yfirleitt erfið og reyna á þá sem í hlut eiga. Sérstaklega eru
þau erfið ef sambandið hefur staðið lengi
og aðilar hafa gengið saman í gegnum
þykkt og þunnt. Ég veit hvað ég er að tala
um því nýlega lauk sambandi sem ég átti í
í þrettán ár.
VIÐ kynntumst vorið 1999 og eyddum
fyrstu vikum sumarsins saman. Vinnu
minnar vegna þurfti ég að dvelja úti á
landi í júlímánuði það ár og sá tími reynd-
ist erfiður. Endurfundirnir í byrjun ágúst
voru afskaplega ánægjulegir.
ALDREI hefði ég trúað að samband
manns og grills gæti orðið jafn náið og
innilegt og raunin varð í tilviki okkar
Char Broilsins sem ég keypti í Olís árið
1999.
ALLT hafði gengið eins og í sögu en
engu að síður féll ég í freistni sum-
arið 2002. Grillgrind Argentínu var
sögð leysa öll vandamál grillarans enda
afrakstur tólf ára reynslu kokkanna á
Argentínu steikhúsi. Hún var fokdýr
og ég held að ég hafi verið eini
maðurinn sem keypti hana.
Allavega var hún stutt í sölu.
Með nýju grindinni jókst
enn ánægja mín með
grillið og ég notaði það
kvölds og morgna allan ársins hring.
MEÐ tíð og tíma fór Char Broil að láta á
sjá. Ytra byrðið varð ljótt, kveikibúnaður-
inn og brennararnir biluðu og efri grindin
ryðgaði í sundur. Argentínugrindin var
hins vegar alltaf eins og ný. Þar sem ég
hafði myndað náin tilfinningatengsl við
grillið kom ekki til greina að kaupa nýtt.
Hótanir vina og ættingja um að hætta
að koma í mat til mín bitu ekki á mig. Ég
endurnýjaði það nauðsynlegasta og man að
þegar ég keypti nýja brennara tilkynnti ég
afgreiðslumanninum í grillbúðinni hróð-
ugur að ég ætlaði aldrei að eignast annað
grill. Hann horfði á mig undrandi. Hafði
greinilega aldrei heyrt af sönnum trúnaði
manns við grillið sitt.
UM daginn gerðist það svo að mér var
fært nýtt grill að gjöf. Áður en ég fékk
rönd við reist var búið að setja það saman,
kveikja upp og setja á það steikur. Þær
voru mjög góðar. Ég hef grillað á nýja
grillinu kvölds og morgna síðan og til-
finningar mínar til Char Broilsins eru
kulnaðar. Nú skil ég raunar ekki hvern-
ig hægt er að bindast dauðum hlut svona
sterkum böndum.
SAUTJÁN ára Volvóinn minn ætla ég samt
aldrei að selja. Á milli okkar er nefnilega
alveg einstakt samband.
Ástarsaga úr garðinum