Fréttablaðið - 17.08.2012, Side 44

Fréttablaðið - 17.08.2012, Side 44
17. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR28 BAKÞANKAR Björns Þórs Sigbjörns- sonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. margs konar, 6. hætta, 8. sjór, 9. egna, 11. númer, 12. tími, 14. skýli, 16. sjó, 17. fiskilína, 18. tímabil, 20. tvíhljóði, 21. gón. LÓÐRÉTT 1. fnæs, 3. tveir eins, 4. fugl, 5. dýra- hljóð, 7. vinsæll, 10. í viðbót, 13. til sauma, 15. innyfli, 16. verkfæri, 19. rot. LAUSN LÁRÉTT: 2. ýmsu, 6. vá, 8. mar, 9. æsa, 11. nr, 12. stund, 14. skáli, 16. sæ, 17. lóð, 18. öld, 20. au, 21. gláp. LÓÐRÉTT: 1. hvæs, 3. mm, 4. sand- lóa, 5. urr, 7. ástsæll, 10. auk, 13. nál, 15. iður, 16. sög, 19. dá. Jæja, þetta var notalegt Sissa! Ótrúlegt hvað litla svarta bókin hans Jóa getur gert! Eða hvað? Mót- tekið! Hún er með nokkur Tourette einkenni! Stóð í smáaletrinu! Sorry! Víetnam Watergate Mannréttindi Írak Kjarn- orkuvopn Innflytjendur Jæja, tón- listin okkar var allavega betri. Við vitum hvernig á að nálgast hana frítt. OPIÐ Skrifstofa Tímaflakks-Júlíu. Ár: 2075 Ef þú heldur áfram að gretta þig svona getur andlitið frosið í grettunni. Ég trúi því ekki. Það er satt. Spurðu bara pabba. Ha? Svo það var það sem kom fyrir þig. Fjandans! Hef fulla trú á sjálfum mér Gylfi Þór Sigurðsson er tilbúinn fyrir tímabilið með Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. Bylting frá því sem áður var Sigurður P. Sigmundsson hagfræðingur þótti sérviskulegur þegar hann sást hlaupa í vegarköntum á áttunda áratugnum, en nú eru allir úti að skokka. Meðal annars efnis: Sambandsslit eru yfirleitt erfið og reyna á þá sem í hlut eiga. Sérstaklega eru þau erfið ef sambandið hefur staðið lengi og aðilar hafa gengið saman í gegnum þykkt og þunnt. Ég veit hvað ég er að tala um því nýlega lauk sambandi sem ég átti í í þrettán ár. VIÐ kynntumst vorið 1999 og eyddum fyrstu vikum sumarsins saman. Vinnu minnar vegna þurfti ég að dvelja úti á landi í júlímánuði það ár og sá tími reynd- ist erfiður. Endurfundirnir í byrjun ágúst voru afskaplega ánægjulegir. ALDREI hefði ég trúað að samband manns og grills gæti orðið jafn náið og innilegt og raunin varð í tilviki okkar Char Broilsins sem ég keypti í Olís árið 1999. ALLT hafði gengið eins og í sögu en engu að síður féll ég í freistni sum- arið 2002. Grillgrind Argentínu var sögð leysa öll vandamál grillarans enda afrakstur tólf ára reynslu kokkanna á Argentínu steikhúsi. Hún var fokdýr og ég held að ég hafi verið eini maðurinn sem keypti hana. Allavega var hún stutt í sölu. Með nýju grindinni jókst enn ánægja mín með grillið og ég notaði það kvölds og morgna allan ársins hring. MEÐ tíð og tíma fór Char Broil að láta á sjá. Ytra byrðið varð ljótt, kveikibúnaður- inn og brennararnir biluðu og efri grindin ryðgaði í sundur. Argentínugrindin var hins vegar alltaf eins og ný. Þar sem ég hafði myndað náin tilfinningatengsl við grillið kom ekki til greina að kaupa nýtt. Hótanir vina og ættingja um að hætta að koma í mat til mín bitu ekki á mig. Ég endurnýjaði það nauðsynlegasta og man að þegar ég keypti nýja brennara tilkynnti ég afgreiðslumanninum í grillbúðinni hróð- ugur að ég ætlaði aldrei að eignast annað grill. Hann horfði á mig undrandi. Hafði greinilega aldrei heyrt af sönnum trúnaði manns við grillið sitt. UM daginn gerðist það svo að mér var fært nýtt grill að gjöf. Áður en ég fékk rönd við reist var búið að setja það saman, kveikja upp og setja á það steikur. Þær voru mjög góðar. Ég hef grillað á nýja grillinu kvölds og morgna síðan og til- finningar mínar til Char Broilsins eru kulnaðar. Nú skil ég raunar ekki hvern- ig hægt er að bindast dauðum hlut svona sterkum böndum. SAUTJÁN ára Volvóinn minn ætla ég samt aldrei að selja. Á milli okkar er nefnilega alveg einstakt samband. Ástarsaga úr garðinum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.