Fréttablaðið - 17.08.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 17.08.2012, Blaðsíða 12
17. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR12 manna afhentu Oddnýju Harð- ardóttur á miðvikudagsmorgun segir að „samtökin hafna alfarið viðræðum um að núverandi vandi A-deildar verði leystur með rétt- indaskerðingu að neinu tagi eða með því að möguleg ný deild með breyttum forsendum verði nýtt til að rétta af hallann“. Auk þess kemur skýrt fram að útilokað sé af þeirra hálfu að til greina komi að gefa eftir með einhverjum hætti þá eign sem greiðendur í B-deild eiga. Þeir setja það sem forsendu fyrir viðræðum um breytingu á lífeyr- iskerfi sínu í átt að hinu almenna að „gerð verði greiðsluáætlun um það með hvaða hætti inngreiðslum vegna skuldbindinga ríkisins verði háttað.“ Því er komin upp ákveðin pattstaða. Viðmælendur Fréttablaðsins innan raða stéttarfélaga og lífeyr- issjóða óttast raunar að stjórnvöld muni halda áfram að velta vandan- um á undan sér með nýrri bráða- birgðalagasetningu í haust. Þann- ig yrði hægt að fresta vandanum fram yfir kosningar hið minnsta. sjóðnum færi á að jafna sig. Sú breyting var keyrð í gegn í desemb- er 2008 þegar ljóst var að sjóðurinn uppfyllti ekki lögbundin mörk. Fresta því að fara eftir lögum Til að laga hallann á A-deildinni þarf að hækka iðgjald atvinnu- rekenda, sem er að langstærstu leyti ríkið, í sjóðinn. Á síðasta ári voru greidd iðgjöld 15,6 milljarðar króna, en þau eru 15,5 prósent af launum. Því kostar hver prósentustigshækkun hið opinbera um milljarð króna. Til að koma stöðu sjóðsins undir tíu prósent markið þarf að hækka iðgjaldið um 1,1 pró- sentustig, í 16,6 prósent. Til að koma hallanum undir fimm prósent þarf að hækka þau um 2,8 pró- sentustig og til að laga hallann að fullu þyrfti að hækka iðgjöldin um 4,6 prósentustig, í 20,1 pró- sent. Þá þyrfti ríkið að greiða tæpa fimm milljarða króna á ári í sjóð- inn til að laga stöðuna. Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli Fjár- málaeftirlitsins (FME) og fulltrúa opinberra starfsmanna í stjórn LSR um að hækka iðgjaldið hefur það ekki verið gert. Stjórnvöld hafa frestað því að taka á vandanum og notað þær aðstæður sem ríkja í ríkis fjármálum vegna hrunsins sem afsökun. Vilji til breytinga Almennur vilji er hjá stjórnvöldum og öllum helstu hagsmunaaðilum í landinu að jafna lífeyrisréttindi í landinu. Viðræður um að sameina opinbera og almenna kerfið í eitt, sem myndi byggja á hinu almenna, hafa staðið yfir frá því í fyrra. Fréttablaðið greindi frá því á miðvikudag að meðal þess sem er til umræðu sé að hækka eftir- launaaldur í opinbera kerfinu úr 65 árum í 67 ár. Auk þess er vilji til þess að breyta lífeyrisrétt- indum þannig að þau verði línu- leg, líkt og er í almenna kerfinu. Gangi þetta eftir mun ríkissjóður þurfa að bæta opinberum starfs- mönnum þetta með einhverjum hætti, enda ljóst að lífeyriskjör þeirra myndu skerðast mikið. Á móti þyrfti að hækka laun opin- berra starfsmanna þar sem að litið hefur verið svo á að laun og lífeyr- ir séu hluti af sama kjarapakkan- um. Lág laun í opinbera geiranum hafa enda verið rökstudd með því að lífeyrisréttindi væru mun rík- ari en í almenna kerfinu. Auk þess er talið að ríkið myndi þurfa að inna af hendi verulega upphæð inn í opinbera kerfið. Um einskiptisaðgerð yrði að ræða. Ríkissjóður verður að borga Stéttarfélög opinberra starfs- manna eru tilbúin í þessar við- ræður að teknu tilliti til ákveðinna forsendna. Í fyrsta lagi vilja þau að stjórnvöld geri upp skuld sína við A og B-deild LSR. Í öðru lagi vilja þau að laun opinberra starfs- manna hækki í takt við þau líf- eyrisréttindi sem þeir missa við breytinguna. Í þriðja lagi vilja þau að sá hópur sem er þegar byrjaður að borga í sjóðinn fái val um hvoru kerfinu hann vilji tilheyra. Eldri greiðendur, sem eiga lítið eftir af starfsævi sinni, myndu ugglaust margir hverjir vilja frekar góðan lífeyri en hærri laun. Margir yngri myndu vilja hærri laun núna og væru tilbúnir til að gefa frá sér hærri lífeyri. Í bréfi sem forsvarsmenn stéttar félaga opinberra starfs- Sá uppsafnaði skuldabaggi sem hvílir á ríkissjóði vegna lífeyrisskuldbindinga sem hann hefur gengist í ábyrgð fyrir er eitt stærsta hagsmunamál íslenskra skattgreiðenda. Trygg- ingafræðileg skuld vegna A og B- deilda Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) er um 600 milljarðar króna. Ríkissjóður er í ábyrgð fyrir þorra þeirrar skuldar. Þrátt fyrir hina alvarlegu stöðu hefur því margsinnis verið frestað að taka almennilega á þessu vandamáli. Fréttablaðið greindi frá því á mið- vikudag að viðræður standi yfir milli stjórnvalda og stéttarfélaga opinberra starfsmanna um breyt- ingar á lífeyriskerfi þeirra, enda augljóst að ekki er hægt að hlaða upp skuldum vegna þeirra. Ef þær skila þeim árangri sem fjármála- ráðuneytið vonast til á að leggja fram frumvarp um breytingarnar í október. Viðmælendur Fréttablaðs- ins sem komið hafa að viðræðunum telja þó að ríkissjóður ætli sér að reyna að leysa uppsafnaðan vanda A-deildar LSR með því að skerða þegar áunnin lífeyrisréttindi sam- hliða breytingunni eða með því að ný deild, sem verði stofnuð, verði nýtt til að rétta af hallann. Stéttar- félög opinberra starfsmanna hafa hins vegar sett það sem ófrávíkj- anlega forsendu allra breytinga á kerfinu að þessar skerðingar muni ekki eiga sér stað. Því er í raun uppi pattstaða. Tvö kerfi í landinu Í dag eru tvö lífeyrissjóðakerfi í landinu, það opinbera og það almenna. Í mjög grófum dráttum er munurinn á þeim sá að í almenna kerfinu þarf að skerða lífeyris- greiðslur ef eignir sjóðanna duga ekki fyrir skuldum þeirra. Lífeyr- issjóðirnir töpuðu hátt í 500 millj- örðum króna á hruninu samkvæmt úttektarskýrslu sem gerð var um þá og kynnt var fyrr á þessu ári. Í almenna kerfinu leiddi þetta tap til þess að lífeyrisréttindi voru skert um allt að 25 prósent. Í opinbera kerfinu greiðir ríkið hins vegar upp það tap sem skapast á rekstrinum. Í bankahruninu tap- aði LSR um 100 milljörðum króna, um fimmtungi af eignum sínum. Við það fóru eignir A-deildar LSR úr því að vera 33 prósent umfram skuldbindingar í að vera um 13 prósent undir skuldbindingum. Halli eftir hrun A-deildin var stofnuð 1997 og allir opinberir starfsmenn sem komið hafa inn í lífeyriskerfið síðan greiða fjögur pró- sent launa sinna í hana. Á móti greiðir vinnuveit- andi þeirra, oftast ríkið, 11,5 prósent. Sjóðurinn á að vera sjálfbær í þeim skilningi að greidd iðgjöld og tekjur af fjárfestingum eiga að standa undir skuldbindingum hans. Það gera þær hins vegar ekki. Standi arðsemi fjárfestinga LSR ekki undir útgreiðslum úr sjóðn- um ber að hækka það iðgjald sem hið opinbera greiðir í sjóðinn þar til gatið er brúað. Í dag er upp- reiknaður halli á A-deild LSR 57,4 milljarðar króna. Hann jókst um tíu milljarða króna í fyrra og því ljóst að vandamálið er stigvaxandi. Samkvæmt lögum má hann ekki vera meiri en tíu prósent, en hann var 13,1 prósent um síðustu ára- mót. Hann má auk þess ekki vera meiri en fimm prósent í fimm ár samfleytt. Efra markið var reynd- ar hækkað í fimmtán prósent eftir hrun með lagabreytingu til að gefa FRÉTTASKÝRING: Lífeyrissjóðakerfi opinberra starfsmanna Þórður Snær Júlíusson thordur@fréttabladid.is Eitt stærsta hagsmunamál skattgreiðenda Í ÁBYRGÐ Tryggingafræðileg skuld vegna A og B- Deilda Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins er um 600 milljarðar króna. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Munurinn á lífeyrissjóðakerfunum tveimur ALMENNA KERFIÐ OPINBERA KERFIÐ Launþegi greiðir: 4 prósent af launum í iðgjöld á mánuði. Atvinnurekandi greiðir: 8 prósent mótframlag á mánuði. Rekstur: Lífeyrissjóðirnir fjárfesta fyrir iðgjöldin og réttindi sjóðsfélaga ráðast af árangri þeirra fjárfestinga. Ef eignir duga ekki fyrir skuldbindingum: Þá eru lífeyrisgreiðslur skertar. Launþegi greiðir: 4 prósent af launum í iðgjöld á mánuði. Atvinnurekandi greiðir: 11,5 prósent mótframlag á mánuði. Rekstur: Lífeyrissjóðirnir fjárfesta fyrir iðgjöldin. Öll réttindi eru áunninn. Ekki er leyfilegt að skerða lífeyrisréttindin. Ef eignir duga ekki fyrir skuldbindingum: Þá á launagreiðandinn, í flestum tilfellum ríkið, að greiða hærra iðgjald í sjóðinn. 57,4 milljarðar er uppreiknaður halli á A-deild Lífeyrissjóðs ríkisstarfs- manna. B-deild LSR byggist á svokölluðu gengumstreymiskerfi, sem var meira í takt við klassískt eftirlaunakerfi. Þar er lítil sjóðsmyndun. Deildin var aflögð 1997. Þeir sem borguðu í hana á þeim tíma gátu þó haldið því áfram. Lífeyrisþegar B-deildar fá eftirlaunagreiðslur óháð inn- borguðum iðgjöldum og ávöxtun þeirra. Með öðrum orðum er lífeyrinn með ríkisábyrgð. Auk þess hækkar lífeyrir þeirra vegna almennra launahækkana, kerfisbreytinga á launum opinberra starfsmanna og aukinna lífslíka. Í nýjustu ársskýrslu LSR kemur fram að skuldbindingar B-deildarinnar hafi verið 260,5 milljarðar króna í árslok 2001. Tíu árum síðar voru þær 543,5 milljarðar króna. Aukningin nemur 108,6 prósentum. Hrein eign til greiðslu lífeyris í sjóðnum er 190,9 milljarðar króna. Því vantar ansi mikið upp á til að hægt verði að standa við greiðslu þeirra réttinda sem lífeyrisþegar hafa unnið sér inn. Krafa á ríkissjóð og aðra opinbera launagreiðendur vegna lífeyrishækkana, sem hefur ekki verið greidd, er 231 milljarður króna. Auk þess á LSR kröfu á ríkissjóð vegna bakábyrgðar hans á kerfinu upp á 113,7 milljarða króna. Viðbótargreiðslum frestað Á árinu 1999 byrjaði ríkissjóður að greiða inn við- bótargreiðslur í B-deildina til að mæta framtíðar- skuldbindingum. Út árið 2008 nam samtala þeirra greiðslna 75 milljörðum króna umfram lagaskyldu. Eftir hrun var ákveðið að hætta þessum viðbótar- greiðslum, sem þá höfðu staðið yfir í tíu ár. Með því er vandanum velt á undan sér. Honum er frestað. Í ársskýrslu LSR segir að vegna fjármálakrepp- unnar og erfiðleika á fjármálamörkuðum í kjölfarið hefur gengið fyrr á eignir sjóðsins til að mæta óuppgerðum skuldbindingum en áætlað var. Þær eignir sem eftir standa eru tilkomnar vegna auka- greiðslna sem ríkissjóður hefur greitt til sjóðanna og vegna uppgjöra á skuldbindingum. „Ljóst er að ef hvorugt hefði komið til hefði sjóðurinn tæmst við bankahrunið á 4. ársfjórðungi 2008 og allar greiðslur frá og með árinu 2009 hefðu þurft að koma beint úr ríkissjóði vegna bakábyrgðar.“ Óuppgerð skuldbinding í B-deildina er 461 millj- arður króna. Ríkissjóður á um 400 milljarða króna af þeirri skuld. Ef byrjað yrði að greiða niður þessa skuld í dag myndu opinberir aðilar þurfa að greiða um átta milljarða króna á ári. Þær greiðslur myndu síðan fara stighækkandi og ná toppi árið 2024, þegar þær yrðu 18 milljarðar króna árlega. Eftir það myndu þær lækka jafnt og þétt þar til að síðasti lífeyrisþegi deildarinnar yrði allur. B-deild LSR: lífeyrir með ríkisábyrgð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.