Fréttablaðið - 17.08.2012, Page 19

Fréttablaðið - 17.08.2012, Page 19
FÖSTUDAGUR 17. ágúst 2012 19 Sumt af því sem við gerum, gerum við bara út af því að við erum vön að gera það. Eitt- hvað af því er skaðlaust og ekki verra en hvað annað, en margt er algjör della. Ef við viljum ákveða hvort einhver gefin venja sé þess virði að halda í hana getum við spurt okkur ein- faldrar spurningar: „Ef þetta væri hinsegin, myndum við þá vilja breyta til baka?“ „Klukk! Þú ert forseti“ Prófum nokkur dæmi. Ímynd- um okkur að forseti Íslands fari alltaf út á flugvöll og til útlanda án þess að forseti Hæstarétt- ar, forsætisráðherra eða for- seti Alþingis fylgi honum. For- setinn keyri einfaldlega með eigin flokki aðstoðarmanna og öryggisvarða, láti vita af ferðum sínum og einhver úr stjórnsýsl- unni komi því til skila þegar hann yfirgefur landið. Myndi einhver nú staldra við og segja: „Nei, bíðum nú hæg! Þetta geng- ur ekki! Við verðum að senda einhvern handhafa forsetavalds með honum út á flugvöll! For- setavaldið verður að geta flust yfir með snertingu. Það er ekki hægt að klukka forsetavaldinu frá einum manni til annars ef mennirnir snertast ekki. Það gefur augaleið!“ Myndum við álykta að tíma forseta Hæstaréttar væri vel varið í þessar nýju ferðir? Mynd- um við fjölga hæstaréttardóm- urum til að greiða fyrir þessum nýju verkum forseta dómsins? Myndum við telja að þetta væri skynsamlegt öryggisins vegna að setja tvo lykilmenn í stjórn- sýslunni reglulega saman í bíl að óþörfu? Ég leyfi mér að fullyrða að við myndum ekki gera það. Ódýrari gisting Ímyndum okkur að sami virðis- aukaskattur sé á hótelgistingu og á öðru. Myndi einhver nú leggja til að lækka ætti virðisaukaskatt á hótelgistingu en ekki á annað? Ja, hugsanlega myndi einhver (þ.e. hóteleigendur og viðskipta- vinir þeirra) leggja það til, en ég veit ekki hvers vegna einhver annar ætti að gera það. Virðis- aukaskattur á að vera sá sami fyrir alla en hann mætti auðvi- tað vera talsvert lægri en hann er. Almennt er of mikið af ein- hverjum delluundanþágum í vask-kerfinu. Matur á ekki að bera lægri virðisaukaskatt en aðrar vörur. Það eiga bækur og geisladiskar ekki að gera held- ur. Miðar á íþróttaleiki eiga að bera sama vask og miðar í bíó. Þá er fullt af þjónustu algjör- lega undanþegin þessum skatti, pistlaskrif eins og þessi hér þar með talin sem og aðrar göfugar athafnir eins og „kennsla“. Það breytir því auðvitað ekki að ef fjármálaráðherra ætlar að hækka alla þessa skatta, þá getur hún ekki falið sig bak við það að hún sé „bara að sam- ræma“. Ef hún ætlar „bara að samræma“, sem er fín hugmynd, þá þarf hún að lækka almenna virðisaukaskattsþrepið, svo tekjur af vaski haldist óbreyttar. Lífeyrissjóðir, þjóðkirkja og fríverslun Hugsum okkur nú að allir búi við svipað lífeyriskerfi. Myndi einhver nú leggja til að það væri sniðugt að opinberir starfsmenn myndu greiða í annað lífeyris- kerfi og fá betri lífeyriskjör en aðrir? Myndi einhverjum þykja réttlátt að þeir gætu skyndilega farið fyrr á eftirlaun? Aftur: Það gæti kannski verið að einhverj- ir opinberir starfsmenn myndu biðja um slíkt en það væri ekk- ert sjálfsagt eða sanngjarnt við þá beiðni. Svo mætti lengi telja. Ef prest- ar eins trúfélags væru ekki rík- isstarfsmenn myndu væntanlega fáir leggja til það yrði þannig. Ef ekkert trúfélag nyti sérstakr- ar stjórnarskrárverndar væri hæpið að margir myndu tala fyrir því að veita einu trúfélagi slíka vernd. Ef við hefðum alltaf getað keypt erlendar mjólkur- vörur, eða ferskar kjötvörur, í matvöruverslunum væri erfitt að banna innflutning þeirra. Vitanlega væri kannski þrýst- ingur frá innlendum framleið- endum á að banna samkeppni frá útlöndum en slíkt væri erfitt ef neytendur vissu hverju þeir væru að missa af. Ef Íslending- ar hefðu alltaf getað keypt tón- list í gegnum erlendar vefsíður, myndum við setja lög sem bönn- uðu þeim það til að koma í veg fyrir þann „þjófnað“? Sumt sem við gerum af vana er ágætt, annað er algjört rugl. Stundum er hollt að spyrja sig: Myndum við leggja til að hlut- irnir yrðu eins og þeir eru í dag? Ef svarið er neitandi þá er líklegast takmarkað vit í fyrir- komulagi sem verið er að verja. AF NETINU Þrýstnar konur og volæði kynsystranna [...] Afneitun á kynferðisofbeldi, lítið gert úr fræðilegum upplýsingum, afneitun á því að ofbeldi geti verið kynbundið, krafa um að heimilisofbeldi tilheyri hinu persónulega rými, sök sett á þau sem verða fyrir ofbeldinu, þörfin á úrræðunum töluð niður. Kannast einhver við slíka orðræðu um kynferðislegt ofbeldi? Samtök um kvennaathvarf gerðu athugasemdir við skrif Herberts í sama blaði 6. ágúst s.á., þar sem bent var á tölur Borgarspítalans um heimilisofbeldi gegn konum. Svargreinina má nálgast hér. [Sjá tengla á vefnum.] Þrjátíu ár eru liðin og fáir andæfa nú veruleika heimilisofbeldis opinberlega. Það gengur hins vegar hægt að uppræta það og þörfin á kvennaathvarfi er rík nú sem fyrr. [...] sigridur.org Sigríður Guðmarsdóttir Þrjár spurningar um plan B Árni Páll átti kollgátuna spurður um Evrópusambands-sinueldinn í pólitíkinni: Þeir ættu ekki að henda plani A sem ekki hafa plan B. Er hvenær sem er til í umræðu um kosti og galla ESB-aðildar, almennt og sérstaklega – þótt mér finnist eðlilegast að við hinkrum með djúp-umræðuna þangað til komin eru samningsdrög. Á móti verða ESB-andstæðingar, Evróvafrar, biðstöðusinnar og viðræðuhlésáhugamenn að sýna okkur plan B – hvað eigi að gera þegar viðræðunum er hætt / frestað / látnar bíða. blog.pressan.is/mordur/ Mörður Árnason Nei, bíðum nú hæg! Þetta gengur ekki! Við verðum að senda einhvern handhafa forsetavalds með honum út á flugvöll! Forsetavaldið verður að geta flust yfir með snertingu. Það er ekki hægt að klukka forsetavaldinu frá einum manni til annars ef mennirnir snertast ekki. Það gefur augaleið! Pawel Bartoszek Stærðfræðingur Í DAG 24. – 28. 8. 2012 Time for business – Nútíma innanhússhönnun, tíska heimilisvara, góðar gjafahugmyndir og skartgripir – allt fyrir haust-, vetrar- og jólainnkaupin sem leggja línurnar fyrir strauma og stefnur komandi vors. Tendence – hápunktur vörusýninga seinni helming ársins sem spannar heimilið og gjafavöru: Fleiri en 2.000 sýningaraðilar frá öllum heimshornum, nýjungar á hönnunarsviði og sérsýningar sem veita innblástur. tendence.messefrankfurt.com dimex@dimex.dk Sími: +45 39 40 11 22 Myndum við breyta til baka? Með jöfnu millibili birtast frétt-ir og greinar um lífeyriskjör opinberra starfsmanna. Þessar fréttir eru þó oftar en ekki mjög ónákvæmar og gefa villandi upp- lýsingar um stöðu lífeyrismála og þá sér í lagi um stöðu lífeyrissjóðs ríkisstarfsmanna (LSR). Reglulega er þó reynt að leiðrétta helstu vill- ur í umræðunni, hér er það gert enn og aftur. Síðustu fréttir af lífeyrismál- um opinberra starfsmanna birt- ust m.a. í Fréttablaðinu. Þar var farið yfir stöðu LSR, bæði A- og B-deildarinnar. Sú yfirferð var að mörgu leyti ágæt, en umfjöllunin var sett þannig fram að ætli mátti að lífeyriskjör opinberra ríkis- starfsmanna væru forréttindi en ekki hluti af starfskjörum þeirra. Í umfjölluninni var sáð fræi tor- tryggni og óvildar í garð ríkis- starfsmanna með ósanngjörnum hætti. Málinu var stillt þannig upp að til þess að ríkið gæti staðið við launagreiðslur til sinna starfs- manna, þá yrði að hækka skatta, eða að skattgreiðendur þyrftu hver og einn að fara ofan í eigin vasa til að borga í lífeyriskerfi ríkisstarfs- manna. Þetta er auðvitað fráleit framsetning. Ríkið er atvinnurek- andi og fær sínar tekjur að mestu leyti af skattgreiðslum frá almenn- ingi, sem sumir hverjir eru vel að merkja einnig ríkisstarfsmenn. Ríkið notar síðan þessar tekjur til að greiða ýmsa þjónustu fyrir landsmenn, s.s. skóla- og heilbrigð- iskerfi. Hluti þessara greiðslna eru laun þeirra sem starfa við almannaþjónustuna – starfsmenn ríkisins. Í stuttu máli lítur málið út svona: 1. Lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna (LSR) er skipt í A-deild og B-deild. B-deildin er „gamla fyrirkomulag- ið“ en það var lokað fyrir nýjum starfsmönnum 1997. 2. B-deild lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna var bæði uppsöfn- unar- og gegnumstreymissjóður. Ríki og sveitarfélög greiddu lög- bundinn lífeyri til sjóðanna, annað hvort fyrirfram eða í síðasta lagi þegar sjóðsfélagi hóf töku lífeyr- is. Í tilfelli LSR þá hefur ríkið sem atvinnurekandi ekki greitt sinn hluta lífeyrisins til sjóðsins eins og það átti að gera. Þess vegna hafa hlaðist upp skuldir ríkisins við sjóðinn. 3. A-deildin er uppbyggð eins og lífeyrissjóðir á hinum almenna markaði. Það sem er frábrugðið er hins vegar að réttindi starfsmanna í LSR eru tryggð, þannig að ef sjóð- urinn stendur ekki undir þeim rétt- indum sem eru óaðskiljanlegur hluti launakjaranna, þá ber stjórn sjóðsins að hækka iðgjaldið sam- kvæmt lögum. Skuldir ríkisins við A-deildina eru tilkomnar vegna þess að stjórnvöld hafa neitað að hækka iðgjald til sjóðsins eins og lögbundið er. Iðgjaldið hefur ekki staðið undir réttindum í nokkurn tíma vegna þess að atvinnurek- andinn neitar að standa við skuld- bindingar sínar. Það átti að hækka iðgjaldið árið 2009, en ríkið hefur komist undan því með bráðabirgða- ákvæðum í lögum sem heimila því að draga það á langinn. Á meðan hækkar skuldin. Niðurstaðan er því sú að ríkið sem atvinnurekandi skuldar sínum starfsmönnum, bæði núverandi og þeim sem komnir eru á lífeyri. Ímyndum okkur atvinnurekanda á almennum markaði sem ekki greiðir lögbundin gjöld af launum starfsmanna sinna. Hvað er gert? Gjöldin eru sótt, ekki satt? Um þetta snýst málið. Krafa opinberra starfsmanna er einföld og auðskil- in. Við viljum að ríkið borgi skuldir sínar eins og aðrir atvinnurekend- ur í þessu landi. Krafan er einföld og auðskilin Lífeyrissjóðir Árni Stefán Jónsson formaður SFR stéttarfélags í almannaþágu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.