Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.08.2012, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 17.08.2012, Qupperneq 32
6 • LÍFIÐ 17. ÁGÚST 2012 07.00  Vakna og borða léttan morgunmat. 08.00 Morgunæfing. 10.00  Eftir æfingu er oft meðferð hjá sjúkraþjálfara, nuddara eða kírópraktor. 12.00  Næst tekur við hádegismatur og að sinna hinum og þess- um smá erindum áður en ég fer heim og slaka aðeins á. 16.00  Kvöldæfing. 19.00  Sturta, kvöldmatur og svo reyni ég að nýta kvöldið með vinum eða fjölskyldu. Eftir erfiðar æfingar þegar mikið álag er fer ég oft í sund eða baðstofuna í Laugum til að gefa líkamanum færi á að jafna sig betur. 23.00  Farin að sofa. Dagur í lífi Ásdísar Hver er konan? Ég er alveg ekta borgarbarn, uppalin í Fossvoginum þar sem ég bjó þangað til ég byrj- aði í menntaskóla en svo hef ég verið á ferðinni um allt síðan. Ég gekk í Breiðagerðisskóla, Réttar- holtsskóla og svo MH áður en ég byrjaði í Háskóla Íslands. Hvenær byrjaðir þú að stunda íþróttir? Ég byrjaði fyrst í badmin- toni þegar ég var að verða tíu ára og þá varð ekki aftur snúið. Eftir að hafa prófað fullt af öðrum íþrótt- um með fram badmintoninu bætt- ust svo frjálsar íþróttir við þegar ég var tólf ára. Lengi var ég í frjálsum á sumrin og badmintoni á veturna en ég sneri mér alfarið að frjáls- um þegar ég byrjaði í menntaskóla. Fannstu strax að þetta átti vel við þig? Já, það er ekki hægt að segja annað. Það kviknaði strax einhver blossi og keppnisskapið fór á fullt þegar ég byrjaði að æfa. Upplifðirðu einhvern tíma að þú værir að fórna félagslífi og öðru fyrir íþróttaiðkunina? Það má alveg segja það að ég hafi þurft að færa fullt af fórnum fyrir íþróttaiðkunina en ég lít ekki þann- ig á það. Mér finnst ég ekki vera að fórna neinu heldur einfaldlega velja að gera það sem mér þykir skemmtilegast. Í staðinn fæ ég þau forréttindi að fá að lifa drauminn minn. Stefndirðu alltaf á Ólympíu- leikana? Ég var strax staðráðin í því þegar ég byrjaði að æfa tíu ára gömul að ég ætlaði að fara á Ólympíuleika. Hversu stór partur af árangri þínum er að hafa hugann á rétt- um stað? Það skiptir öllu máli! Þú kemst bara takmarkað langt á lík- amlegum hæfileikum einum saman. Það er nauðsynlegt að hafa metn- aðinn og agann til að geta lagt allt á sig sem þarf til að ná langt. Þetta er gífurleg vinna og ég get ímynd- að mér að það væri ofboðslega erfitt að þurfa að gera þetta allt ef ég væri ekki að þessu fyrir sjálfa mig og vegna þess að þetta er það skemmtilegasta sem ég geri. Þess SKRÝTIÐ AÐ FÁ SVONA MIKLA ATHYGLI Afreksíþróttarkonan Ásdís Hjálmsdóttir stimplaði sig heldur betur inn í hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar er hún sló Íslandsmet í fyrsta kasti á Ólympíuleikunum í London sem lauk á dögunum. Lífið kynntist þessari duglegu konu sem hefur vægast sagt mörg járn í eldinum. Ásdís Hjálmsdóttir fyrir utan Bessastaði í gær þar sem haldin var móttaka fyrir ólympíufarana. Hér er nokkuð dæmigerður dagur á veturna þegar undirbún- ingstímabilið er í fullum gangi og allt í rútínu. Mind Xtra fyrir konur eins og þig Verð 1000 - 5000 Verslunin lokar 1. september Allt á að seljast
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.