Fréttablaðið - 17.08.2012, Page 36

Fréttablaðið - 17.08.2012, Page 36
10 • LÍFIÐ 17. ÁGÚST 2012 Lífið leitaði til Lukku Páls- dóttur, eiganda heilsu- staðarins Happs, til að vita hvernig hægt er að ná jafnvægi eftir nautnir sumarsins með því að taka nokkra daga í að taka mataræðið í gegn. „Allir hafa gott af að bæta grænum dúndurdrykkjum í daglegt matar- æði sitt. Stundum þarf þó að gera ærlega hreingerningu í meltingar- veginum og grænu drykkirnir henta vel til þess. Trefjarnar eru eins og her hreingerningarfólks sem sópar óhreinindum burt og út. Ef þú vilt komast í frábært form, losna við sykurlöngun og auka orku og kraft er gott að hreinsa til með viku af góðum grænum hristingum eða safa kúr,“ segir Lukka og heldur áfram: „Hjá Happi mælum við með að þeir sem eru heilbrigð- ir noti græna hristinga (smoothies) til að hreinsa líkamann. Kostur- inn við hristingana er að allar trefj- ar haldast í drykkjunum og hjálpa til við hausthreingerningu í melt- ingarveginum. Ef þú átt kraftmik- inn blandara eins og Vitamix þá geturðu sett hvaða grænmeti og ávexti sem er beint í blandarann. Við mælum með að grænmeti og þá sérstaklega grænt laufgræn- meti sé uppistaðan í drykkj- unum og ávextir séu notað- ir í litlu magni til að bragð- bæta. Á þann hátt færðu súpernæringu í fáum hita- einingun og losnar fyrr við sykurþörfina. Drykkirnir eru næringar- ríkir og saðsamir og þú munt upplifa aukna orku, léttleika, minni þreytu og slen auk þess sem þú sérð fljótt breytingar á húð þinni og á vigtinni. Ef þú ert að æfa og vilt auka orkuna enn þá meira er frá- bært að bæta chia-fræjum í drykk- ina, þau eru eins og lítil orkukorn. Drekktu 6 x 0,5 lítra af græn- um dúndurdrykk á dag í tíu daga og finndu muninn! Bættu einum til tveimur slíkum í mataræði þitt dag- lega fyrir aukna orku og vellíðan.“ HREINSAÐU LÍKAMANN EFTIR NAUTNIR SUMARSINS ELÍNRÓS LÍNDAL framkvæmdastjóri Ellu Á morgnana tek ég Omega 3-6-9 fyrir heilann sem og magnesíum, sink og D-vítamín sem mér finnst skerpa á orku, einbeitingu og vellíð- an. Ég hef mikla trú á inntöku D-vítamíns fyrir Íslendinga, til að vinna gegn skorti á nauðsynlegri birtu yfir vetrartímann. Ég tek einnig endr- um og sinnum E-vítamín sem ég trúi að vinni gegn krabbameini. Ég er lág í B12 og járni svo ég er á dágóðum B-vítamín skammti. En ég reyni að vera dugleg að fá járn úr grænmeti og kjöti. Ég tek einnig 1.000 mg af C-vítamíni daglega. Best finnst mér að leysa það upp í vatni og drekka hægt og rólega yfir daginn. Á kvöldin tek ég svo ýmist Náttúrulega slökun, sem inniheldur magn- esíum, eða kalktöflur í bland við magnesíum. Magnesíum hjálpar mér í gegnum streitu-tíma og hjálpar til með upp- töku kalks í líkamanum. Ég er með ákveðið prinsipp sem er að láta athuga heilsufar mitt helmingi oftar en ástand bílsins míns. Því miður hef ég ekki náð að bæta gild- in með mataræðinu einu saman, en góður sundsprettur á morgnana í Sundlaug Seltjarnarness gerir kraftaverk fyrir geðheilsuna, beinin og kólesterólið. SIGRÚN ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR sjónvarpskona Ég tek engin vítamín en passa mig að borða næringarríkan mat. Tek reyndar oft lýsi þótt mér finnist það hræðilega vont. ATLI ÞÓR ALBERTSSON leikari Ég tek lýsi, B- og C-vítamín og svo er ég duglegur í GSE dropun- um líka. Þeir eru ógðeslega bragð- vondir en víst jafn hollir og þeir eru vondir. INGIBJÖRG GRÉTA GÍSLADÓTTIR framkvæmdastjóri Ég tek lýsi númer eitt, tvö og þrjú. Einnig tek ég acidophilus, Bio-Kult og B12. Síðan er það vænn grænn lífrænn safi inn á milli. Vatn og góður svefn er líka þarfaþing. HEIÐRÚN LIND MARTEINSDÓTTIR héraðsdómslögmaður Ég fæ mér lýsi, fiskiolíu, fjölvíta- mín, C-vítamín og D-vítamín á hverjum morgni. Stundum tek ég líka skorpur í hörfræolíu. HVAÐA VÍTAMÍN TAKA ÞAU? TEKUR OMEGA 3-6-9 Á MORGNANA ■ Klettasalat um 2 hnefafyllir ■ Grænkál um 2 hnefafyllir ■ Kóríander ½ hnefafyllir ■ Steinselja ½ hnefafyllir ■ ½ - 1 rauð paprika ■ Kókosvatn eða vatn ■ Klaki ■ Spínat – um 2 hnefafyllir ■ Grænkál – um 2 hnefafyllir ■ Romaine – 1-2 hnefafyllir ■ ½ lárpera ■ Klaki ■ Um þumalstærð af engifer ■ ½ -1 grænt epli ■ Kókosvatn eða vatn Allt blandað saman í Vitamix eða öðrum öflugum blandara. SIRRÝ ARNARDÓTTIR fjölmiðlakona Lýsi á hverjum morgni alla daga ársins. Svo dett ég inn í kúra af og til og tek C-vítamín, D-vítamín, járn og kalk. Það er misjafnt og fer eftir líðan og árstíðum. #1 #2 HEILSUSAFAR Styrking • Jafnvægi • Fegurð CC Flax Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum aldri og einkennum breytingaskeiðs Heilbrigðari og grennri konur Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg minni fitumassa en þær konur sem skortir eða hafa lítið af Lignans.** * Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082 ** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University. 1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur Fæst í Lyfju, Hagkaup og Nettó www.celsus.is Slegið í gegn í vinsældum, frábær árangur ! Mulin hörfræ – Lignans – Trönuberjafræ Kalk úr hafþörungum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.