Fréttablaðið - 17.08.2012, Síða 42

Fréttablaðið - 17.08.2012, Síða 42
17. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR26 timamot@frettabladid.is Afmæli Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍSABET JÓHANNA SVAVARSDÓTTIR Hjallabrekku 29, Kópavogi, er látin. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Karitas, heimahjúkrun. Læknum og öllu hjúkrunarfólki er þakkað fyrir góða umönnun. Þökkum auðsýnda samúð. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ólafur Guðmundsson Sif Ólafsdóttir Bjarni Ólason Hlín Ólafsdóttir Halldór Birgir Halldórsson Freyr Ólafsson og barnabörn. Okkar ástkæra, ÞORBJÖRG THEODÓRSDÓTTIR frá Bjarmalandi, Skálabrekku 1, Húsavík, lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga mánudaginn 13. ágúst. Útför hennar fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 18. ágúst kl. 14.00. Sólveig Sigurðardóttir Rúnar Eiríksson Theodór Gunnar Sigurðsson Guðrún Lárusdóttir Blöndal Guðrún Ásta Sigurðardóttir Rúnar Bjarnason barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför GUNNARS J. KRISTJÁNSSONAR húsasmíðameistara og matsmanns, Kársnesbraut 139, Kópavogi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar. Birna Ólafsdóttir Guðrún Halla Gunnarsdóttir Gunnar Ólafur Gunnarsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts ástkærrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU GUÐBJARGAR JÓNSDÓTTUR Köldukinn 16, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks bráðamóttöku, gjörgæslu og hjartadeildar Landspítalans fyrir hlýhug og góða umönnun. Jón Kristinn Marteinsson María Sólveig Hjartardóttir Ólöf Marteinsdóttir Vilhjálmur Viðar Ragnarsson Þorlákur Marteinsson Unnur Sigrún Bjarnþórsdóttir barnabörn og langömmubörn. Þökkum ykkur öllum sem sýnt hafa hlýhug og virðingu við andlát og útför FJÓLU ÞORSTEINSDÓTTUR frá Laufási í Vestmannaeyjum, áður til heimilis í Karfavogi 23. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykjavík fyrir frábæra umönnun. Gísli Baldvin Björnsson Lena Margrét Rist Martha Clara Björnsson Gunnar Már Hauksson Ásta Kristín Björnsson Sverrir Guðmundsson barnabörn, langömmubörn og langalangömmubarn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, dóttir, systir, mágkona og amma, BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR Suðurbraut 24, Hafnarfirði, lést á kvennadeild Landspítalans, mánudaginn 13. ágúst. Útför hennar fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 25. ágúst kl. 11.00. Óskar Óskarsson Jóna Dóra Óskarsdóttir Óskar Rúnar Harðarson Sigþór Óskarsson Jariya Tuanjit Maren Óskarsdóttir Valdimar Kristjánsson Halldóra Hallbergsdóttir Þuríður Jónsdóttir Jóel Andersen Hallbjörg Jónsdóttir Róbert Gíslason Berglind Jónsdóttir Steinar Jónsson og barnabörn. Eiginkona mín og móðursystir okkar, GERÐUR HULDA JÓHANNSDÓTTIR Barðastöðum 7, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 13. ágúst. Útförin fer fram frá Grafarvogs- kirkju miðvikudaginn 22. ágúst kl. 15.00. Egill Sigurðsson Guðrún Sigurðardóttir og Lilja Sigurðardóttir Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐNÝJAR MARGRÉTAR MAGNÚSDÓTTUR hjúkrunarkonu, Einilundi 8F, Akureyri, sem lést þann 1. ágúst. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks lyflækningadeildar FSA. Jarðsett var í kyrrþey 14. ágúst. Ólöf Vala Valgarðsdóttir Jónína Valgarðsdóttir Sigurður P. Sigfússon Margrét Ýr Valgarðsdóttir Magnús Bragi Gunnlaugsson ömmubörn og langömmubörn. Elskuleg amma okkar og langamma, GUNNHILDUR I. GESTSDÓTTIR hjúkrunarfæðingur, Laugarnesvegi 56, verður jarðsungin frá Kapellunni í Hafnarfjarðarkirkjugarði mánudaginn 20. ágúst kl. 13.00. Gunnhildur Arndís O´Callaghan Inga Jóna Pálsdóttir María Rán Pálsdóttir Sólrún Edda Pálsdóttir og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, VIGDÍS PÉTURSDÓTTIR Sléttuvegi 19, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut þann 9. ágúst sl. Útför Vigdísar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. ágúst kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaheill. Kristín Jónsdóttir Sveinbjörn F. Strandberg Pétur Ingi Sveinbjörnsson Kristín Elísabet Alansdóttir Jóhann Örn Sveinbjörnsson Dana Rún Heimisdóttir Björn Þór Sveinbjörnsson Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HÖNNU GABRIELSSON Kirkjulundi 8, Garðabæ, sem jarðsungin var frá Garðakirkju fimmtudaginn 9. ágúst sl. Ingólfur Helgason Jóhanna Ingólfsdóttir Helgi Ingólfsson Kristín Gísladóttir Þuríður Ingólfsdóttir Pálmi Kristmannsson Ingólfur Agnar Ingólfsson barnabörn og barnabarnabarn. Það verður mikið um að vera á vegum Norræna félagsins um helgina en félagið fagnar 90 ára afmæli um þess- ar mundir. Í tilefni af því var sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur opnuð í gær, rætt verður um stöðu norrænna tungumála á málþingi í Norræna húsinu í dag, haldin verður minningarathöfn í Vatns- mýri um fórnarlömbin í Ósló og Útey og efnt verður til hátíðarhalda á Óðins- götu á menningarnótt. „Við erum úti um allt þessa dag- ana, eða þannig líður mér að minnsta kosti,“ segir Ásdís Eva Hannesdóttir, framkvæmdastjóri Norræna félagsins, sem stóð í ströngu við að undirbúa dag- skrána í gær og taka á móti fulltrúum frá öðrum Norðurlöndum sem hingað eru komnir í tilefni tímamótanna. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Norræna félagið var stofnað en Ásdís Eva segir tengsl Norðurlandanna jafn sterk og áður, ekki síst vegna þess að þau hafi tekið mið af breyttum heimi í samstarfi sínu. „Við erum ekki eins og nírætt gam- almenni heldur eins og níutíu ára unglingur og erum mjög opin fyrir breyttum heimi. Eystrasaltslöndin eru til dæmis orðin dálítið virk í starfi okkar og eins erum við farin að horfa aðeins vestur, til Skotlands, Kanada og Bandaríkjanna. Við útilokum ekk- ert og fyrir vikið standa Norðurlöndin sterkari.“ Aukið vægi enskunnar á kostnað Norðurlandamála verður til umfjöll- unar á málþinginu í Norræna húsinu í dag, en þar ræða nokkrir af fremstu málvísindandamönnum Norðurlanda hvort hætta sé á að samstarf þjóðanna eigi eftir að verða á ensku í framtíðinni. „Þetta er aðkallandi spurning en þótt enskan hafi margt til síns ágætis teljum við afar mikilvægt að Norður- landabúar haldi áfram að tala áfram á sameiginlegu máli, því það að kunna annað norðurlandamál almennilega veitir aðgang að svo miklum menning- arlegum verðmætum.“ Málþingið hefst klukkan tíu og er öllum opið. Klukkan 14 í dag verður fórnar- lamba hryðjuverkanna í Ósló og Útey 22. júlí 2011 minnst við lund í Vatns- mýrinni þar sem plantað verður átta íslenskum reynitrjám og 77 birkitrjám. Katrín Jakobsdóttir, samstarfsráð- herra Norðurlanda, flytur ávarp við minningarstundina. Þá verður þátttaka félagsins í menn- ingarnótt hluti af afmælisdagskránni en félagsmenn standa fyrir hátíðahöld- um frá klukkan 14 til 19 á laugardag. Nánari upplýsingar um afmælisdag- skrána má finna á heimasíðu félags- ins, Norden.is. bergsteinn@frettabladid.is TÍMAMÓT: NORRÆNA FÉLAGIÐ HELDUR UPP Á 90 ÁRA AFMÆLI Eins og níræður unglingur ÁSDÍS EVA Segir félagið ekki eins og nírætt gamalmenni heldur ungmenni sem tekur breyt- ingum opnum örmum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN THIERRY HENRY fótboltamaður er 35 ára í dag. „Hver sem þú ert eða hversu góður sem þú kannt að vera þá ertu alltaf dæmdur út frá síðasta leik. Hann er sá eini sem skiptir máli.“ 35 Methúsalem Þór- isson friðarsinni er 66 ára. Ellert A. Ingi- mundarson leik- ari er 55 ára. Björn Ingi Hilm- arsson leikari er 50 ára.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.