Fréttablaðið - 17.08.2012, Qupperneq 50
34 17. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR
lifsstill@frettabladid.is
? Sæl og takk fyrir þína frábæru pistla í Fréttablaðinu. Ég er í
svolítið skrítinni aðstöðu og lang-
aði að leita ráða hjá þér. Ég er búin
að vera í sambúð í tólf ár og það
gengur vel fyrir utan eitt atriði;
mér finnst maðurinn minn sætur,
skemmtilegur og flottur og hef lít-
inn áhuga á öðrum mönnum, en
mér finnst hann ekki lengur „sexí“
og finn ekki fyrir löngun til að sofa
hjá honum. Hann vinnur mikið og
hreyfir sig lítið og það er líklega
ástæðan. Hvað ráðleggur þú mér í
þessari aðstöðu?
KYNLÍF Ég vil byrja á því að þakka
þér fyrir hólið. Það er engin lygi að
sambönd eru stöðug vinna en þó
það sé vinna þarf hún ekki að vera
leiðinleg. Það eru margir þættir
sem hafa áhrif á hamingju innan
sambands og á kynlífið. Ég ætla að
fá að draga þá ályktun að ef mað-
urinn vinnur mikið þá hafi hann
minni tíma til að sinna sér og sam-
bandinu. Samkvæmt rannsóknum
hafa gæði sambands mikil áhrif
á kynlöngun kvenna svo ef hann
gefur sér ekki tíma til að sinna
sambandinu þá er ekki ósennilegt
að þú sért ekki í stuði. Það þarf að
nostra við rómantíkina svo erótíkin
geti dafnað. Þú minnist samt ekki
á það hvort hann langi til að sofa
hjá þér? Stundum festast sambönd
í því að annar aðili eigi alltaf frum-
kvæði að kynlífi og þegar viðkom-
andi hættir því þá gerist ekki neitt.
Ég velti því einnig fyrir mér
hvort hann hafi bætt á sig og er lík-
amlega og andlega útkeyrður eftir
mikla vinnu. Líkamsímynd getur
haft áhrif á kynlöngun beggja og
því er spurning hvort hann þurfi
að minnka við sig vinnu til þess að
geta fengið útrás fyrir uppsafnaðri
streitu og sinnt sér, og þér, betur.
Kynlöngun og aðlöðun geta verið
eins og rússíbani sem fer upp og
niður og stundum ertu í stuði og
stundum ekki. Oftar en ekki spila
margvíslegir þættir inn í, líkt og
þreyta, streita, tími og ánægja
innan sambands. Við getum ekki
breytt öðru fólki en við getum
breytt okkur sjálfum. Þú ættir því
kannski að spyrja sjálfa þig að því
hvort þér finnist þú vera sexí og
hvort þig langi til að stunda kynlíf.
Prófaðu að brjóta upp hversdaginn
og fara á stefnumót með makanum,
helst í nýju umhverfi, og athugaðu
hvort þið getið talað saman og kynt
undir ástareldinum.
Kynt undir ástareldinum
KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
TÆKNI Þýsk stofnun sem fylg-
ist með því að friðhelgi einkalífs-
ins sé ekki brotin á netinu er með
Facebook undir smásjánni. Vefsíð-
an hefur notað hugbúnaðinn Photo
Tag Suggest til að safna upplýsing-
um um andlit notenda sinna til að
geta komið með uppástungur um að
merkja fólk á myndum.
Johannes Caspar, sem starfar hjá
stofnuninni, segir í samtali við vef
BBC að upplýsingarnar hafi verið
notaðar án leyfis notenda Face-
book. Forsvarsmenn
síðunnar segjast á
hinn bóginn hafa
farið eftir lögum
Evrópusambandsins um netið og
friðhelgi einkalífsins.
Sams konar stofnun og hin
þýska á Írlandi hefur einnig gert
athugasemdir við merkingarnar
á Facebook. Hún komst að þeirri
niðurstöðu að Facebook verði að
standa sig betur í að upplýsa not-
endur sína um Photo Tag Suggest.
„Frá og með 1. júlí 2012 hefur
Facebook hætt að nota hugbún-
aðinn hjá öllum nýjum notendum
síðunnar í Evrópu. Á sama tíma
höldum við áfram viðræðum um
noktun búnaðarins við yfirvöld,“
sagði í yfirlýsingu frá Facebook
um þetta deilumál.
Facebook undir smásjánni
FACEBOOK Vefsíðan hefur verið gagnrýnd fyrir hugbúnaðinn Photo Tag Suggest.
TÍSKA Hönnuðir og tískuhús glíma í auknum
mæli við að hönnun þeirra sé stolið og ódýr-
ar eftirlíkingar seldar í verslunum. Frægt er
orðið þegar sumarlína verslunarinnar Zöru
kom út og þótti hún ískyggilega lík vor- og
sumarlínu Prada.
„Eftirhermur væru í lagi ef uppruna-
legi hönnuðurinn fengi hlut af ágóðan-
um. Það væri það siðferðislega rétta í
stöðunni,“ sagði Shirley Cook, forstjóri
Proenza Schouler, um málið.
Eftirhermur
verða fleiri
LÍNAN FRÆGA Sumarlína Prada varð inn-
blástur fyrir sumarlínu Zöru í fyrra.
Reykjavíkurmaraþon
Íslandsbanka fer fram á
morgun í 29. sinn. Alls hafa
10.387 þátttakendur þegar
skráð sig til leiks og þátt-
tökumet hefur verið slegið
í mörgum vegalengdum.
Ólympíufarinn Kári Steinn
Karlsson kemur hér með tíu
hollráð fyrir þá sem stefna
á þátttöku.
1. Borðið létta máltíð tímanlega.
Kolvetnarík og létt máltíð er klár-
lega málið fyrir hlaup. Almennt
er ekki sniðugt að borða innan við
tveimur tímum fyrir hlaup og sér-
staklega ekki þunga máltíð eins
og kjötmeti eða mikið af mjólkur-
vörum.
2. Prófið skófatnaðinn. Það eru
algeng mistök að fjárfesta í
flottum skóm rétt fyrir hlaup og
keppa í tiltölulega ónotuðum skóm.
Hlaupið nokkrum sinnum í skón-
um fyrir keppni og verið viss um
að þeir henti ykkur vel og meiði
ykkur ekki.
3. Hitið vel upp. Það kemur bæði í
veg fyrir meiðsli og bætir árangur
í hlaupinu. Eins getur verið gott að
skokka sig niður eftir hlaupið til að
hjálpa líkamanum að vinna fyrr úr
þreytunni.
4. Klæðið ykkur eftir veðri. Það er
mikilvægt að verða ekki of kalt og
hlaupa með kalda og stífa vöðva.
5. Smyrjið staði sem gætu nudd-
ast. Í lengri hlaupum myndast
núningur í langan tíma á ýmsum
stöðum. Það er hægt að koma í veg
fyrir mikil óþægindi með því að
smyrja þessa staði með vaselíni
eða álíka efnum. Hugið að stöðum
eins og innanverðum lærum, undir
handar krikanum og strákar, pass-
ið að smyrja geirvörturnar, sér-
staklega ef kalt er í veðri.
6. Drekkið nóg af vökva. Þeir sem
eru að hlaupa maraþon þurfa að
drekka vel allt hlaupið, ekki bara
þegar þeir eru orðnir þyrstir. Ekki
gleyma að drekka vel eftir hlaupið
líka.
7. Hlaupið af stað á skynsömum
hraða. Það er auðvelt að æsast upp
í hamaganginum og fara alltof
hratt af stað en það er ekki gaman
að vera eins og sprungin blaðra
allt hlaupið. Það er nægur tími
til að taka vel á því þegar líður á
hlaupið.
8. Mætið tímanlega á staðinn. Ekki
eyða orku í óþarfa stress fyrir
hlaup. Upphitun, klósettferðir
og fleira tekur allt sinn tíma svo
mætið tímanlega á staðinn og takið
því rólega.
9. Takið vel á því. Það tapar eng-
inn á því, árangurinn verður betri
og vellíðan eftir hlaup enn meiri.
Gleymið samt ekki að hlusta á lík-
amann, það er í lagi að sýna hörku
í gegnum þreytu en ekki harka af
ykkur í gegnum meiðsli eða mikla
og óeðlilega verki.
10. Njótið og skemmtið ykkur vel.
Njótið þess að geta hlaupið og það
í fallegu umhverfi í stórum hópi af
frábæru fólki. Góða skemmtun og
gangi ykkur vel.
tinnaros@frettabladid.is
Smyrjið geirvörturnar vel
RÁÐLEGGINGAR ÓLYMPÍUFARA Kári Steinn segir algeng mistök að fólk fjárfesti í
flottum skóm rétt fyrir hlaup og keppi í tiltölulega ónotuðum skóm. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VATNSGLÖS á dag hefur minnkandi áhrif á höfuðverk og mígreni heldur
rannsóknarteymi við háskólann í Maastricht í Hollandi fram, en höfuðverkur er
ein helsta vísbending um að líkamann vanti vökva.
7
Frá aðeins kr. 69.900 í 7 nætur
7 nátta ferð - ótrúleg kjör!
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á allra síðustu sætunum 21. ágúst í 7 nætur til eins
allra vinsælasta sólaráfangastaðar Íslendinga, Costa del Sol.. Þú bókar flugsæti og
gistingu og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Fjölbreytt önnur sértilboð
jafnframt í boði. Ath. takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði - verð getur
hækkað án fyrirvara.
Kr. 69.900 - 7 nátta ferð
Verð m.v. 2 - 4 í herbergi / stúdíó / íbúð. Sértilboð 21. ágúst.
Roc Flamingo
Frá kr. 79.900 í 7 nætur með allt innifalið
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í fjölskylduherbergi.
Netverð m.v. 2 fullorðna í herbergi kr. 99.800 á mann. 28. ágúst í viku.
Ótrúle
g kjör
!
Stökktu til
Costa del Sol
21. ágúst