Fréttablaðið - 03.09.2012, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 03.09.2012, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 3. september 2012 19 Hið virta sænska neytendablað Råd & Rön gerði fyrir stuttu úttekt á uppþvottavélum frá ýmsum framleiðendum og lagði mat sitt á þær. Siemens uppþvottavélin SN45M205SK* kom þar einstaklega vel út og hlaut 1. sætið. Hún þykir þvo og þurrka á sérlega skilvirkan og áhrifaríkan hátt (Råd & Rön, apríl 2012). Matið var byggt á nokkrum þáttum, m.a. hve vel vélin þvær óhreint leirtau, þvottatíma, þurrkun, orkunotkun, vatnsnotkun og hversu hátt heyrist í henni. Þessi uppþvottavél er í ecoPLUS-flokknum hjá Siemens, en í honum eru aðeins mjög spar- neytin heimilistæki. Og sigurgangan heldur áfram. Í maí lenti vélin einnig í 1. sæti hjá danska neytendablaðinu Tænk. *Einnig fáanleg í stáli. Smith & Norland er rótgróið fyrirtæki sem veitir góða þjónustu og býður vandaðar vörur á góðum kjörum. Umboðsmenn um allt land. www.sminor.is Siemens uppþvottavélar fá hæstu einkunn þriðja árið í röð! GÓÐ KAUP Í FYRSTA SÆTI Listmunauppboð Gallerís Foldar hefjast að nýju eftir sumarhlé með afmælisuppboði á myndlist í tilefni 20 ára afmælis gallerísins. Uppboðið hefst klukkan sex í dag. Fjöldi úrvalsgóðra listaverka verður boðinn upp en þar á meðal eru verk eftir Svavar Guðnason, Nínu Tryggvadóttur, Jóhannes S. Kjarval, Kristínu Jóns dóttur, Jóhann Briem og Ásgrím Jónsson frá árinu 1927. Einnig verða boðin upp góð listaverk eftir Jóhannes Jóhannesson, Karl Kvaran, Valtý Pétursson, Gunnlaug Blöndal, Hring Jóhannesson og Kjartan Guðjónsson. Þá er einnig ágæt úrval verka eftir sam tímalistamenn og má þar nefna verk eftir Tolla, Spessa, Ólaf Elíasson, Braga Ásgeirsson, Guðjón Ketilsson, Hafstein Austmann og Karólínu Lárusdóttur. Öll verkin eru til sýnis í Gallerí Fold við Rauðarárstíg og á vefnum Uppbod.is. Uppboð hefjast á ný BOÐIÐ UPP Þetta verk Nínu Tryggvadóttur verður boðið upp í kvöld. Tónlist ★★ ★★★ Lokatónleikar Ung nordisk musik Ýmsir flytjendur Norðurljós, Hörpu 1. september Hvernig spr ingur yf irborð tónlistarinnar og ringulreið brýst fram? Svar við þessari spurning var að finna í fyrsta verkinu á lokatónleikum Ung nordisk musik í Hörpu á laugardagskvöldið. Það hét Squarcio, sem þýðir sprunga, og var eftir finnska tónskáldið Tiina Myllärinen. Caput hópurinn spilaði og gerði það af aðdáunarverðri fagmennsku. Flutningurinn var snarpur og hnitmiðaður, enda kom tónlistin ágætlega út. Atburðarrásin var hröð, tónamassinn þéttofinn. En svo byrjuðu sprungur að myndast Staglkennd tónlist og ringulreið í vefinn, og eitthvað allt annað tók að brjótast fram. Þetta var skemmtileg hugmynd og hún var útfærð af glæsimennsku. Allt annað var uppi á teningnum í næstu tónsmíð, Dialogue With a Forbidden Muse eftir Matei Ghoerghiu, en hann er Rúmeni búsettur í Finnlandi. Hér sveif síðrómantík yfir vötnunum sem var vissulega sjarmerandi. En tónlistin bar svo sterkan keim af Skrajbín, sérstaklega síðustu sinfóníunni hans, að það var nánast truflandi. Auðvitað er það eðlilegt að ung tónskáld verði fyrir áhrifum af eldri meisturum, en það má ekki koma út eins og stæling. Upplifunin var líka sérkennileg í síðasta verkinu fyrir hlé. Þetta var Tågen-tiden tingen eftir Svíann Esaias Järnegard. Tónlistin var mjög kvikmyndaleg, mikið um liggjandi hljóma sem voru skreyttir alls kyns áferð. Útkoman var ládeyðukennd og það gerðist lítið. Samt gat ég ekki betur séð á bendingum hljómsveitarstjórans, Guðna Franzsonar, að það væri alltaf verið að skipta um takt. Þetta misræmi (að því er virtist) á milli órólegra bendinga Guðna og ládeyðukenndrar tónlistarinnar var svo undarlegt að maður varð næstum því sjóveikur! Tågen- tiden tingen var einmitt samið við kvikmynd, en gerði sig ekki almennilega ein og sér. Eftir hlé var fyrst Fras eftir hinn finnska Lauri Supponen. Fras þýðir setning, og hér var tónlistin byggð á hlutföllum og fjarlægð á milli sam- og sérhljóða í ákveðinni setningu. Útkoman var skemmtileg. Ekki endilega vegna þess að hugmyndin var gáfuleg, heldur var tónskáldið greinilega hæfileikaríkt og samdi af tilfinningu fyrir framvindu og jafnvægi. Það er ekki öllum gefið. Næst var Jó & Júpíter eftir Gunnar Karel Másson. Það byrjaði vel. Stemningin var draumkennd og dulúðug, hún gaf fyrirheit um að það væri eitthvað magnað í vændum. En það kom aldrei. Tónlistin varð smátt og smátt að óttalegu stagli sem var þreytandi áheyrnar. Hún var eins og fyrirlestur þar sem tafsað er á því sama aftur og aftur án nokkurrar niðurstöðu. Svipaða sögu var að segja um síðustu tónsmíðina, Palatum Pallette eftir I. Öystein J. Figenschou. Þar var abstraksjón teflt á móti hinu áþreifanlega, einföldum endurteknum hljómum á móti ómstríðu tónamynstri. Það virkaði ekki almennilega og útkoman var óttalegur leirburður. Jónas Sen Niðurstaða: Fátt var um fína drætti á lokatónleikum UNM í Hörpu. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Mánudagur 03. september 2012 ➜ Fundir 20.00 Stofnfundur Stéttarfélags tómstunda- og félagsmálafræðinga verður haldinn að Mjósundi 10, Hafnarfirði. Stofnfélagar þurfa að hafa lokið háskólanámi í tómstunda- og félagsmálafræði. ➜ Dans 17.00 Opið hús verður hjá dansnefnd Félags eldri borgara í Reykjavík, að Stangarhyl 4. Skráning í danskennsluna og móttaka kennslugjalda fyrir námskeið í september fer þá fram. ➜ Tónlist 21.00 Hreindís Ylfa heldur tónleika á Café Rosenberg. Aðgangseyrir er kr. 1.000 og enginn posi er á staðnum. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.