Fréttablaðið - 03.09.2012, Side 48

Fréttablaðið - 03.09.2012, Side 48
3. september 2012 MÁNUDAGUR24 sport@frettabladid.is ALFREÐ FINNBOGASON opnaði markareikning sinn fyrir Heerenveen í hollenska boltanum í gær þegar hann skoraði tvívegis í fyrri hálfleik gegn hollensku meisturunum í Ajax. Fyrra mark Alfreðs var skrautlegt þar sem hann stal boltanum af markverði Ajax. Í síðara markinu kláraði Alfreð hins vegar gott færi með stæl. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli en Ajax saknaði Kolbeins Sigþórssonar sem er frá keppni vegna meiðsla. Undankeppni EM Ísland - Slóvakía 84-86 Tölfræði Íslands: Hlynur Bæringsson 21 stig/12 fráköst, Jón Arnór Stefánsson 20 stig, Pavel Ermolinskij 12 stig/11 fráköst, Finnur Atli Magnússon 9 stig, Jakob Örn Sigurðarson 8 stig, Hakur Helgi Pálsson 7 stig, Ægir Þór Steinarsson 3 stig. Enska úrvalsdeildin West Ham - Fulham 3-0 1-0 Kevin Nolan (1.), 2-0 Winston Reid (29.), 3-0 Matthew Taylor (41.) Swansea - Sunderland 2-2 0-1 Steven Fletcher (40.), 1-1 Wayne Routledge (45.), 1-2 Steven Fletcher, 2-2 Michu (66.) Tottenham - Norwich 1-1 1-0 Moussa Dembele (68.), 1-1 Robert Snodgrass (85.) West Brom - Everton 2-0 1-0 Shane Long (65.), 2-0 Gareth McAuley (82.) Wigan - Stoke 2-2 1-0 Shaun Maloney, víti (5.), 1-1 Jonathan Walters (40.), 2-1 Franco Di Santo (49.), 2-2 Peter Crouch (76.) Man. City - QPR 3-1 1-0 Yaya Toure (16.), 1-1 Bobby Zamora (59.), 2-1 Edin Dzeko (61.), 3-1 Carlos Tevez (90.) Liverpool - Arsenal 0-2 0-1 Lukas Podolski (31.), 0-2 Santi Cazorla (68.) Southampton - Man. Utd 2-3 1-0 Rickie Lambert (16.), 1-1 Robin van Persie (23.), 2-1 Morgan Schneiderlin (56.), 2-2 Robin van Persie (87.), 2-3 Robin van Persie (90.) Newcastle - Aston Villa 1-1 0-1 Ciaran Clark (22.), 1-1 Hatim Ben Arfa (60.) ÚRSLIT KÖRFUBOLTI Ísland varð að sætta sig við tveggja stiga tap, 86-84, gegn Slóvakíu í sjöunda leik liðanna í A-riðli undankeppni Evrópumeistaramótsins. Leikurinn var æsispennandi og réðust úrslitin á síðustu sekúndunni þegar sniðskot Jóns Arnórs Stefánssonar skrúfaðist upp úr körfunni þegar hann virtist hafa tryggt Íslandi verðskuldaða framlengingu. „Þetta var þokkalega tæpt, ég skil ekki hvernig boltinn fór ekki ofan í. Ég hélt að þetta væri komið en hann skrúfaðist upp úr og var það í takt við spilamennskuna í dag,“ sagði Jón Arnór um lokaskotið sem vildi ekki í. Stórstjarna Slóvaka, Anton Gavel, skoraði 35 stig. Sóknarfráköst gestanna urðu Íslandi að falli í gær. „Það er meiri pressa á okkar körfu en körfu andstæðinganna. Þegar við tökum frákast þá er það eftir fimm sekúndna slagsmál og barning á meðan hinir taka fráköstin undir sinni körfu óáreittir. Það er óþolandi. Það var það sem klikkaði en ekki eitt skot í lokin og svo auðvitað Anton Gavel,“ sagði Hlynur Bærings son um tapið. Hlynur var atkvæðamestur í íslenska liðinu ásamt Jóni Arnóri. Peter Öqvist, þjálfari Íslands, sagði grunnatriðin í fráköstum hafa orðið Íslandi að falli. „Við hefðum getað stigið betur út, lesið skotin betur og verið betur meðvitaðir um hvar andstæðingurinn er. Við misstum ein beit ingu og létum leiða okkur út á veiku hliðina,“ sagði Öqvist. Íslenska liðið hefur unnið einn leik af sjö í undankeppninni en sá vannst í fyrri leiknum ytra gegn Slóvakíu. Ísland mætir Ísrael ytra á miðvikudagskvöld. -gmi Karlalandslið Íslands í körfubolta beið lægri hlut í undankeppni EM í gær: Sárgrætilegt tap gegn Slóvakíu SVEKKELSI Vonbrigði Jóns Arnórs Stefánssonar að tapinu loknu leyndu sér ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Robin van Persie var maður helgarinnar í enska boltanum. Hollendingurinn skoraði öll þrjú mörk Manchester United í 3-2 útisigri gegn South- ampton. 2-1 undir leit allt út fyrir að svefnlaus nótt væri fram undan hjá Hollendingnum sem sýndi kæruleysi á vítapunktinum þegar hann klúðraði víta spyrnu. Hann skoraði hins vegar tvívegis á síðustu þremur mínútunum og tryggði United stigin þrjú. Liverpool heldur áfram að valda stuðningsmönnum sínum vonbrigðum en liðið lá heima gegn Arsenal 0-2. Nýju liðsmenn Arsenal, Lukas Podolski og Santi Cazorla, skoruðu hvor sitt markið og lögðu upp hitt, en Arsenal hafði fyrir leikinn ekki skorað mark í deildinni. Gylfi Þór Sigurðsson var í byrj- unar liði Tottenham í 1-1 jafntefli gegn Norwich. Hafnfirðingurinn náði sér ekki á strik og var skipt af velli í síðari hálfleik. Totten- ham á enn eftir að vinna leik í deildinni. -ktd Arsenal kláraði Liverpool: Van Persie sá um Dýrlingana BJARGAÐI ANDLITINU Van Persie nýtti lokamínúturnar vel á St. Mary’s leikvanginum. NORDICPHOTOS/GETTY GOLF Einar Haukur Óskarsson og Tinna Jóhannsdóttir, bæði úr Keili, fögnuðu sigri á lokamótinu í Eimskipsmótaröðinni í golfi sem fram fór á Grafarholtsvelli um helgina. Bráðabana þurfti til að knýja fram sigurvegara í karlaflokkinum þar sem Einar Haukur hafði betur gegn liðsfélaga sínum Kristjáni Þór Einarssyni. Hlynur Geir Hjartarson úr GOS varð í þriðja sæti sem dugði til sigurs í heildarstigakeppninni. Signý Arnórsdóttir varð í þriðja sæti í kvennaflokki sem dugði til stigameistaratitilsins. -ktd Eimskipsmótaröðinni lokið: Einar og Tinna lönduðu sigri BEST UM HELGINA Einar Haukur og Tinna spiluðu best allra í Grafarholtinu um helgina. MYND/GSÍ ÓLYMPÍUMÓT Jón Margeir Sverris- son úr Fjölni/Ösp vann gull- verðlaun í 200 metra skrið sundi í flokki S14, flokki þroska hamlaðra, á Ólympíu mótinu í London í gær. Jón Mar geir átti annan besta tímann í undan úr slitunum en átti greinilega nóg inni í úr slita- sundinu. Hann bætti sig um 0,7 sekúndur og tíminn 1:59,62 mínútur glæsi legt heims- og ólympíu met. „Ég er alveg að tjúllast. Þetta er svo æðislegt,” sagði Jón Margeir í sam tali við Frétta blaðið að lokinni verð launa af hend ingunni. Sund- kappinn var þrátt fyrir allt merki- lega yfir vegaður eins og hann hefur verið í aðdraganda mótsins. Mark mið hans að komast á verð- launa pall var öllum ljóst. Það náðist og vel það. „Þetta er algjör draumur. Ég bjóst ekki við því endilega að ná fyrsta sæti. Ég er búinn að skrá mig í sögu bækurnar,” sagði Jón Margeir sem kom í mark 17/100 úr sekúndu á undan Ástralanum Daniel Fox sem hafði for ystu framan af. Jón Mar geir náði for- ystunni þegar sundið var hálf nað og lét hana ekki af hendi. „Þegar það voru 25 metrar eftir sá ég að Daniel Fox var að ná mér. Ég ákvað „Nei, nei, nei. Nú gef ég í og verð á undan honum,” og það hafðist.” Jón Mar geir viður kenndi að tár hefðu fallið í lauginni þegar hann áttaði sig á af reki sínu. „Það voru 17.500 manns að horfa á mig. Ég er að tárast,” sagði Jón Mar geir sem hefur æft í langan tíma með það að mark miði að toppa á Ólympíu mótinu. „Ég þakka öllu fólkinu í kringum mig sem studdi við bakið á mér og styrkti mig á allan mögulegan hátt,” sagði Jón Margeir yfir vegaður og þakk látur. „Amma og afi auk hinna í fjöl skyld unni hafa grátið stans- laust af gleði,” sagði íþrótta- maðurinn ein- staki sem var lurkum laminn eftir sundið. „Það liggur við að ég þurfi að panta hjóla stól. Ég er svo þreyttur,” sagði Jón Mar geir sem ætlar að hvíla lúin bein fyrir 100 metra bringu sundið á fimmtu- daginn. „Ég ætla að leggja allt í sundið og taka það með stæl,” sagði gull verð launa hafinn en þetta voru fyrstu verð laun Ís lendinga á Ólymp íu móti síðan í Aþenu árið 2004. kolbeinntumi@365.is Jón Margeir nældi í gull Sundkappinn Jón Margeir Sverrisson stóð við stóru orðin í úrslitasundinu í 200 metra skriðsundi á Ólympíumóti fatlaðra í gær. Kópavogsbúinn 19 ára kom fyrstur í mark eftir harða keppni og setti um leið nýtt heims- og ólympíumet. EINSTÖK STUND Jón Margeir naut augnabliksins að loknu sundinu í lauginni í London í gær. Ólympíugull er komið í verðlaunasafn kappans sem telur hátt í 300 verðlaunapeninga. NORDICPHOTOS/GETTY FORMÚLA1 Jenson Button á McLaren vann þægilegan sigur í Formúlu 1 kapp akstrinum sem fram fór í Belgíu í gær. Árekstur í fyrstu beygju eftir ræsingu hafði mikil áhrif á keppnina en Fernando Alonso var einn þeirra sem féll úr keppni í kjölfar hans. Sebastian Vettel á Red Bull hafnaði í öðru sæti og minnkaði forystu Alonso í heildar stiga- keppninni í 24 stig. Næsti kapp- akstur er strax um næstu helgi á heimavelli Ferrari á Monza á Ítalíu. -ktd Button vann í Belgíu: Vettel minnkar bilið í Alonso

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.