Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 4
20. september 2012 FIMMTUDAGUR4 SKIPULAGSMÁL Gert er ráð fyrir að sjö hús verði rifin á Hljómalindar- reitnum í miðbæ Reykjavíkur sam- kvæmt áætluðum breytingum á deiliskipulagi. Talsvert minni upp- bygging er fyrirhuguð á reitnum en samkvæmt núgildandi deili- skipulagi. Hljómalindarreiturinn er kenndur við húsið sem áður hýsti Hljómalind við Laugaveg, en þar er kaffihúsið og skemmtistaður- inn Hemmi&Valdi nú. Reiturinn afmarkast af Laugavegi, Smiðju- stíg, Hverfisgötu og Klapparstíg. Gert er ráð fyrir uppbyggingu við allar fjórar göturnar. Í greinargerð borgarinnar kemur fram að samráðsfundir hafi verið haldnir vegna skipulagsins og niðurstaðan hafi verið sú að styrkja þyrfti stöðu eldri húsa. Þá var vilji til þess að búa til skjólgott og sólríkt torg inni á miðjum reitn- um. Áhersla var einnig lögð á að viðhalda smágerðum mælikvarða í allri uppbyggingu og eru nýbygg- ingar því áætlaðar í svipaðri hæð og þau hús sem fyrir eru. Samkvæmt tillögunum mun ásýnd Laugavegsins ekki breyt- ast, þar sem aðeins verður byggt fyrir aftan húsin sem þar standa. Við Smiðjustíg er heimild áfram gefin fyrir niðurrifi húsa númer 4, 4a og 6, en í því húsi er skemmti- staðurinn Faktorý nú meðal ann- ars til húsa. Þessar lóðir verða sameinaðar ásamt hluta af öðrum baklóðum. Gert er ráð fyrir því að nýtt fimm hæða hús rísi þar auk þess sem torg fyrir almenning verði þar, í hluta núverandi Hjarta- garðs. Undir torginu er gert ráð fyrir bílageymslu. Á miðju torginu verður röð ljósa- staura sem munu hafa festingar fyrir tjöld og verður hægt að reisa tjald yfir hluta torgsins tímabund- ið fyrir uppákomur eða markaði. Viðbyggingar koma við húsin að Hverfisgötu 26 og 28, auk þess sem ný hús munu rísa á Hverfisgötu 30 til 34. Hverfisgata 30 er óbyggð lóð núna en gert er ráð fyrir fjögurra hæða húsi þar með inndreginni fimmtu hæð. Húsin við Hverfis- götu 32 og 34 eru bæði í mikilli niðurníðslu og gert er ráð fyrir því að þau verði bæði rifin og byggðar verði fjögurra hæða nýbyggingar í staðinn. Við Klapparstíg rísa líka við- byggingar á lóðum húsanna númer 26 og 28 auk þess sem gert er ráð fyrir því að húsið númer 30, þar sem nú er verslunin Macland og áður var skemmtistaðurinn Sirk- us, verði rifið. Nýtt hús á að byggja „í anda eldra hússins, þar sem að varla er nokkuð upprunalegt eftir í húsinu,“ segir í greinargerð borg- arinnar. Þá verður fjögurra hæða nýbygging byggð á lóðinni. thorunn@frettabladid.is Mega rífa sjö hús á Hljómalindarreit Breytingar á deiliskipulagi gera ráð fyrir minni uppbyggingu á Hljómalindar- reitnum en áður. Áfram verður almenningsrými á miðjum reitnum. Laugaveg- ur heldur sömu ásýnd og áhersla er lögð á að viðhalda smágerðum mælikvarða. HLJÓMALINDARREITUR Hér sést Hljómalindarreiturinn eins og gert er ráð fyrir að hann verði. Töluverð uppbygging er á reitnum en áfram verður gert ráð fyrir almenn- ingstorgi í miðjunni. MYND/REYKJAVÍKURBORG VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 26° 20° 15° 15° 17° 17° 15° 15° 27° 17° 27° 21° 29° 13° 19° 18° 13°Á MORGUN 10-18 m/s, en hægari NA-til. LAUGARDAGUR 5-10 m/s. 9 9 8 8 8 7 2 8 6 6 7 3 4 5 4 3 7 8 7 3 3 3 9 11 11 8 10 10 10 10 11 12 ÞYKKNAR UPP Bjart og fallegt veður víðast hvar á landinu í dag en þykknar upp með stífri sunnanátt um sunnan- og vestanvert landið snemma á morg- un. Hlýnar í veðri einkum fyrir norð- austan. Víða skúrir en hægari vindur á laugardag. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður SAMGÖNGUR Loftorka átti lægsta tilboð í gerð Álftanesvegar milli Hafnarfjarðarvegar og Bessa- staðavegar, en tilboð voru opnuð fyrr í vikunni. Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að tilboð Loftorku hafi numið tæpum 660 milljónum króna og verið 76 prósent af áætl- uðum verktakakostnaði upp á 865 milljónir króna. ÍAV átti næst- lægsta tilboðið, 746 milljónir. Verkið felur í sér gerð fjögurra kílómetra langs vegar frá Engidal að Fógetatorgi við Bessastaðaveg, mislæg gatnamót og tvö undir- göng fyrir gangandi vegfarendur. Áætluð verklok eru 1. júlí 2014. - þj Álftanesvegur í útboði: Loftorka bauð lægst í verkið HAGTÖLUR Atvinnuleysi í ágúst mældist 5,8% samkvæmt Hag- stofu Íslands. Það er 0,4 prósentu- stigum minna en á sama tíma í fyrra, þegar 6,2% voru án vinnu. Að jafnaði voru 178.300 manns á vinnumarkaði í ágúst og af þeim voru 168.000 starfandi og 10.300 án atvinnu og í atvinnu- leit. Atvinnuþátttaka mældist því 79,4% og hlutfall starfandi 74,8%. Fleiri konur en karlar eru atvinnu- lausar, en í ágúst voru 6,7% kvenna án atvinnu en 5% karla. Samtök atvinnulífsins segja þessar tölur mjög dapurlegar, enda komi í ljós að íbúum á vinnu- aldri hafi fækkað um 600 milli ára og 1.900 fleiri standi utan vinnu- markaðar. Störfum hafi fækkað um 1.600 en þrátt fyrir það hafi atvinnulausum fækkað um 900 vegna þess hve mikið fleiri standa utan vinnumarkaðar. - kóp, sh Atvinnulausum fækkar: 5,8% voru án atvinnu í ágúst EFNAHAGSMÁL Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,3% í ágúst samkvæmt mæling- um Þjóðskrár Íslands. Leiguverð hefur hækkað hratt á síðustu mánuðum eða um 6,8% síðustu þrjá mánuði og 10,6% sé litið til síðastliðinna tólf mánaða. Í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka frá því í gær segir að þessi mikla hækkun leigu- verðs á höfuðborgarsvæðinu endurspegli sókn námsmanna í íbúðir áður en skólaárið hefst á haustin. Greint var frá því í ágúst að eftirspurn eftir stúdentaíbúðum á höfuðborgarsvæðinu hefði aldrei verið meiri. Þannig voru ríflega þúsund stúdentar á biðlista eftir stúdentaíbúðum þegar úthlutun íbúða fyrir nýhafið skólaár lauk. Þá jókst fjöldi leigusamninga mikið í ágúst eins og búast má við á þessum árstíma. Alls 616 leigusamningar voru gerðir á höfuðborg- arsvæðinu í mánuðinum og fjölgaði þeim um 15% milli mánaða. Loks er bent á það í Morgunkorni greining- ar Íslandsbanka að þrátt fyrir mikla ásókn stúdenta í leiguíbúðir á þessu ári hafi leigu- markaðurinn skroppið saman frá því í fyrra. Þannig hafa samtals verið gerðir 5.936 leigu- samningar það sem af er ári. Nemur það 8,2% fækkun frá sama tímabili í fyrra. - mþl Aldrei verið lengri biðlistar eftir stúdentaíbúðum á höfuðborgarsvæðinu: Leiguverð íbúða hefur hækkað hratt STÚDENTAÍBÚÐIR VIÐ BÓLSTAÐARHLÍÐ Biðlistar eftir stúdentaíbúðum hafa aldrei verið lengri en í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR RÓM, AP Æðsti glæpadómstóll Ítalíu sakfelldi í gær 23 banda- ríska ríkisborgara fyrir að ræna egypskum manni sem grunaður var um hryðjuverk. Ránið var hluti af fangaflugsáætlun leyni- þjónustu Bandaríkjanna, CIA. Þetta er endanleg niðurstaða í fyrsta dómsmálinu sem varðar þá háttsemi CIA að flytja grunaða hryðjuverkamenn nauðuga til landa þar sem pyntingar eru heimilar. Dómurinn var kveðinn upp að mönnunum fjarstöddum og hljóð- aði upp á tíu og sjö ára fangelsis- vist. Enginn mannanna hefur nokkru sinni verið handtekinn vegna málsins. Þeir eiga hins vegar yfir höfði sér handtöku ef þeir ferðast til Ítalíu. - sh Ítalir sakfella fyrir mannrán: 23 Bandaríkja- menn dæmdir BANDARÍKIN Fjögur hundruð rík- ustu menn Bandaríkjanna urðu enn ríkari á síðasti ári samkvæmt lista Forbes tímaritsins sem birt- ist í gær. Samanlagt eiga þessir ríkustu menn Banda- ríkjanna tæp- lega 210 þúsund milljarða króna en fyrir ári áttu þeir tæplega 185 þúsund milljarða króna. Bill Gates, stjórnarformað- ur Microsoft, er efstur á listanum en eignir hans eru metnar á ríflega 8.100 millj- arða króna. Næstur á listanum er fjárfestirinn Warren Buffet en eignir hans eru metnar á tæplega 5.700 milljarða króna. Í því þriðja er Larry Ellison, stjórnarformað- ur Oracle. Eignir hans eru metnar á ríflega 5.000 milljarða króna. - th Listi Forbes birtur: Þeir moldríku verða enn ríkari BILL GATES GENGIÐ 19.09.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 220,2472 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 122,46 123,04 198,57 199,53 159,28 160,18 21,364 21,488 21,412 21,538 18,689 18,799 1,5497 1,5587 188,92 190,04 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.