Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 48
20. september 2012 FIMMTUDAGUR36 36tónlist TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Í SPILARANUM tonlist@frettabladid.is Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is. Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: TÓNLISTINN Vikuna 13. september - 19. september 2012 LAGALISTINN Vikuna 13. september - 19. september 2012 Sæti Flytjandi Lag 1 Muse .....................................................................Madness 2 Moses Hightower ............................. Sjáum hvað setur 3 Ásgeir Trausti ................................................. Leyndarmál 4 Retro Stefson ..............................................................Glow 5 Of Monsters And Men ............................... Dirty Pawns 6 Pink ........................................................................Blow Me 7 Maroon 5 ............................................... One More Night 8 Mumford & Sons ............................................. I Will Wait 9 Jónas Sigurðsson .......................................... Þyrnigerðið 10 Fun ..................................................................Some Nights Sæti Flytjandi Plata 1 Ásgeir Trausti .....................................Dýrð í dauðaþögn 2 Of Monsters And Men ...........My Head Is An Animal 3 Andrea Gylfadóttir ..........................................Stelpurokk 4 Bob Dylan ............................................................. Tempest 5 Moses Hightower ................................ Önnur Mósebók 6 Sigur Rós ...................................................................Valtari 7 Eivör ............................................................................Room 8 The Vintage Caravan............................................Voyage 9 Mugison ........................................................... 5 CD Pakki 10 Helgi Björns & reiðm. vindanna ........Heim í heiðard. TEMPEST með Bob Dylan er plata vikunnar ★★★★ ★ „Tempest hefur allt það sem aðdáendur Dylans vilja heyra.“ - TJ Killers - Battle Born Skúli Sverrisson og Óskar Guðjónsson - The Box Tree Familjen - Allt På Rött Önnur plata Mumford & Sons kemur út eftir helgi. Sú síðasta, Sigh No More, náði öðru sæti bæði í Bret- landi og í Bandaríkjunum. Ensku þjóðlagapoppararnir í Mumford & Sons, sem Of Mon- sters and Men hefur stundum verið líkt við, senda frá sér sína aðra plötu, Babel, eftir helgi. Eftirvæntingin er mikil því frumburðurinn Sigh No More hitti beint í mark og náði öðru sætinu bæði á breska og banda- ríska sölulistanum, sem þýðir að hljómsveitin er mjög vinsæl beggja vegna Atlantshafsins. Mumford & Sons hefur verið á stífu tónleikaferðalagi til að fylgja Sigh No More eftir. Nýja platan var tekin upp á eins og hálfs árs tímabili og notaði sveit- in tækifæri þegar hún var ekki að spila til að hittast í hljóðveri og negla nýju lögin niður. Upptök- urnar gengu vel og var það Mark- us Dravs sem sat við takkaborðið, rétt eins og á síðustu plötu. Hann hefur áður unnið með Arcade Fire við gerð Neon Bible og Björk við upptökur á Homogenic. Mumford & Sons var stofn- uð árið 2007 af þeim Marcus Mumford, Country Winston, Ben Lovett og Ted Dwane. Þeir sameinuðust í tónlistarsenunni í London yfir áhuga sínum á sveita-, blágresis- og þjóðlagatón- list. Þeir ákváðu að blanda henni saman og flytja af meiri krafti og ákafa en þeir höfðu hingað til verið vanir að heyra. Árið 2008 voru félagarnir duglegir við spilamennsku. Þeir tróðu upp á Glastonbury-hátíðinni og hituðu svo upp fyrir Lauru Marling og Johnny Flynn and the Sussex Wit á sinni fyrstu tónleikaferð um Bandaríkin. Eftir að hafa gefið út nokkrar EP-plötur sem fengu fínar viðtökur var röðin komin að Sigh No More þar sem lög á borð við Little Lion Man og The Cave nutu mikilla vinsælda. Mumford & Sons var í framhaldinu heiðr- uð með tvennum Grammy-verð- launum, eða sem besti nýliðinn og fyrir besta rokklagið (Little Lion Man), og einnig fengu félag- arnir Brit-verðlaunin fyrir bestu bresku plötuna. Fram undan hjá hljómsveit- inni er tónleikaferð um Ástralíu og Nýja Sjáland og á næsta ári er von á áframhaldandi spila- mennsku víða um heim. freyr@frettabladid.is Meira frá Mumford & Sons Á TÓNLEIKUM Forsprakkinn Marcus Mumford á tónleikum með hljómsveitinni Mumford & Sons. NORDICPHOTOS/GETTY Nú eru sex vikur þar til Iceland Airwaves hefst, en hátíðin er óumdeil- anlega stærsti viðburðurinn á tónlistardagatali landsins. Það er löngu uppselt og dagskráin er frágengin, töluvert fyrr heldur en áður. Hana má skoða í heild sinni á vef hátíðarinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Nasa er ekki meðal tónleikastaða (ú á hótelið!), en líka í fyrsta sinn sem Silfurbergssalur Hörpu er notaður fyrir almenna dagskrá. Eitt af einkennum Airwaves er valkvíðinn: Oft eru mörg spennandi atriði á sama tíma og þá þarf að velja. Nú er hægt þjást í heilar sex vikur yfir því hvort maður eigi sjá Swans í Norðurljósasal Hörpu á fimmtu- deginum, Poliça á Listasafninu eða THEESatisfaction og Sha- bazz Palaces á Þýska barnum. Ég hallast að síðasta kostinum eins og er, en á örugglega eftir að skipta um skoðun oft áður en dagurinn rennur upp. Nema eistneska sveitin Ewert And The Two Dragons sem spilar í Kaldalóni þetta kvöld eigi eftir að toppa þetta allt. Ég á eftir að tékka á henni. Annað snúið kvöld er laugardagskvöldið. Þá spila Django Django í Silfurbergi og Dirty Projectors á Listasafninu. Erfitt val, en sennilega velur maður snilldarsveitina Dirty Projectors. Hún verður seint slegin út. Það er annars fullt af flottum atriðum á hátíðinni í ár, sem fyrr. Það er alltaf mikil stemning að sjá íslensku böndin á Airwaves og svo eru mörg spennandi erlend atriði sem lítið hefur verið talað um til þessa. Finnska hljómsveitin Siinai spilar til dæmis magnað sambland af krautrokki og syntapoppi, breska tríóið Daughter spilar sannfærandi blöndu af rokki og folk-tónlist, austurríska teknóbandið Elektro Guzzi er stórskemmtilegt og franska sveitin Shiko Shiko er í meira lagi for- vitnileg. Og maður er rétt að byrja að kynna sér dagskrána … Sá á kvölina … HEIT SVEIT Það eru margir spenntir fyrir tón- leikum Poliça á Airwaves.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.