Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 30
FÓLK|| F LK | 4 TÍSKA Kristín Þóra Kjartansdóttir, fram-kvæmdastjóri verslunarinnar Flóru á Akureyri, stóð fyrir fata- skiptamarkaðnum. Hugmyndin kom frá Mariu, sem er þýskur námsmaður og er hér í starfsnámi. Maria er að læra menningarfræði við háskólann í Leipzig í Þýskalandi og starfar hjá Kristínu. „Þótt ég reki verslun þá hef ég gaman af öllum samskiptum og viðskiptum án peninga. Flestir eiga fatnað eða einhverja hluti sem ekki eru not fyrir lengur og þetta er áhugaverð leið til að losa sig við þá og fá nýtt í staðinn,“ segir Kristín. Hún bætir við að allt annað verð- mætamat skapist þegar engir peningar eru í umferð. „Miklar samræður fara í gang um verðmæti flíkurinnar á móti verðmæti skiptiflíkur. Það skapaði ákaflega skemmtilega stemningu og allir höfðu virkilega gaman af uppátækinu,“ segir Kristín enn fremur. MARGAR ÞJÓÐIR Markaðurinn var auglýstur á Facebook, eingöngu fyrir konur og kvenfatnað. Kristín segir það hafa komið á óvart hversu fjölþjóðlegur hópur mætti. „Kon- urnar voru á aldrinum fimmtán ára til sjötugs. Í hópnum voru íslenskar kon- ur, ein bresk, tvær frá Filippseyjum, ein þýsk og önnur pólsk. Þessi blanda kom mér skemmtilega á óvart. Kon- urnar skráðu sig á Facebook en nokkrar mættu að auki sem ekki höfðu gert það. Við gerðum ráð fyrir tíu konum en þær urðu mun fleiri. Það var mikil ánægja með skiptin. Ég hitti eina konuna daginn eftir markaðinn sem var í nýju peysunni sinni,“ greinir Kristín frá. „Allir eiga að koma með fatnað með sér á markaðinn en þó kom ein bara til að kíkja og forvitnast en hún fékk gefins mussu sem henni leist vel á. Einnig kom upp togstreita á markaðnum, ein konan taldi sig vera með verðmætari flík en þá sem hún fékk í staðinn en úr því leyst- ist. Annað vandamál kom upp þegar ein vildi fá flík frá annarri en þá konu lang- aði ekki í neitt sem hin hafði að bjóða. Það var leyst með því að fá þriðju kon- una í samstarf. Þetta skapaði áhugaverð viðskipti,“ segir Kristín og bætir við að ákveðið sé að annar fataskiptamarkaður verði fyrir jólin. „Nokkrar konur hafa haft samband sem fréttu af þessu eftir á og hafa óskað eftir að vera með næst.“ ENDURNÝTIR Verslunin Flóra á Akureyri sérhæfir sig í áfram-nýtingu hluta, endurnýtingu og nýjum munum sem eru framleiddir í heimaframleiðslu eða hjá litlum fram- leiðendum undir vænum kringum- stæðum fyrir fólk og náttúru. Í Flóru má meðal annars finna fatnað, hunang, kaffi, bækur, tímarit, myndlist, kerti, krúsir, dúka, flöskur, töskur, tuskur og reykelsi. Þar tíðkast einnig að hafa ýmsar listrænar uppákomur. „Ég legg mikla áherslu á náttúru- vörur og umhverfisvænar vörur,“ segir Kristín sem bjó lengi í Þýskalandi þar sem fataskiptamarkaðir eru algengir í vinkvennahópum. Þar tíðkast einnig fataskipti með barna- og herrafatnað. „Ég ákvað að takmarka þetta við kven- fatnað að þessu sinni en það mætti alveg gera þetta með hina ýmsu hluti. Í Þýskalandi er einnig afar algengt, sér- staklega á vorin og haustin, að selja notaðan fatnað á mörkuðum, svipað og í Kolaportinu.“ Kristín er í Garðyrkjufélagi Íslands og segir algengt að félagar þar séu með plöntuskipti á vorin sem séu af svip- uðum toga. „Það eru engir peningar í þessum viðskiptum.“ ■ elin@365.is FATAMARKAÐUR ÁN PENINGA SKIPTA Á FÖTUM Áhugaverður fataskiptamarkaður var haldinn á Akureyri fyrir stuttu þar sem tuttugu konur skiptust á eigin fatnaði. Ákveðið hefur verið að halda annan slíkan markað fyrir jólin enda var stemningin góð. KJÓLAR, BUXUR, PILS Endurnýting fatnaðar er algeng í Þýskalandi, sér- staklega hjá vinkvenna- hópum. Þaðan kom hug- myndin. FÍNN KJÓLL Fjölbreyttur fatnaður var í boði fyrir þær sem vildu fá sér eitthvað „nýtt“. FLOTTAR Anna Richardsdóttir og Kristín Þóra Kjartansdóttir máta föt á skiptimarkaðnum. MYNDIR/HEIÐA Skipholti 29b • S. 551 0770 15%AFSLÁTTUR AF YFIRHÖFNUM Full búð af flottum fötu m Fyrir flottar konur Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is ookn Belladonna á FacebVersluni Stærðir 40 – 58 50 ERLENDAR STÖÐVAR Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 FORBRYDELSEN Þriðja og síðasta þáttaröðin hefst á DR 1 á sunnudaginn kl. 18.00 GERÐU SAMKOMULAG VIÐ BARNIÐ UM NETNOTKUN Á HEIMILINU www.saft.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.