Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 62
20. september 2012 FIMMTUDAGUR50 DRYKKURINN „Íslenska vatnið er alltaf það sem ég sakna mest er ég fer erlendis. Svo er gin og tónik klassísk og góð blanda þegar maður lyftir sér upp.“ Eva María Þórarinsdóttir Lange hjá hinsegin ferðaþjónustufyrirtækinu Pink Iceland. „Ég vona bara að engum þyki þetta mjög ósmekklegt,“ segir Egill Helgason um nýja auglýs- ingu fyrir bókmenntaþátt hans Kiljuna í Sjónvarpinu. Hún hefur vakið mikla athygli og þykir Egill sýna skemmtileg tilþrif í hlutverki King Kong sem ryður frá sér bókaháhýsum af miklum þrótti. Aðspurður segir Egill kynning- ardeild RÚV hafa veg og vanda af auglýsingunni. „Þeir fengu þessa hugmynd og ég sagði að ég myndi gera það sem þeir vildu, þannig að ég kom bara og gerði þetta.“ Egill starfaði eitt sinn á Skjá einum og tók þátt í alls konar auglýsingasprelli þar. „Ég man að einu sinni var ég með box- hanska og látinn boxa og í ann- arri auglýsingaherferð var ég lát- inn halda á smábörnum. Þá voru alltaf mikil tilþrif í kynningar- málum. Hjá RÚV hefur þetta allt- af verið frekar hófstillt en þarna hafa menn sprungið út.“ Spurður hvort hann sé orð- inn að einhvers konar skrímsli í íslenska bókmenntaheiminum sem ryður öllum öðrum úr vegi, eins og auglýsingin gefur til kynna, hlær Egill og segir: „Það er auðvitað algjör þversögn því ég er óskaplega friðsamur maður sjálfur. Ég „snappa“ mjög sjald- an.“ Kiljan hefur göngu sína í byrj- un október og er þetta sjötta árið sem Egill stjórnar þættinum. Í þetta sinn verður Páll Baldvin Baldvinsson fjarri góðu gamni. „Ég sakna Páls Baldvins mikið en þetta er rosa flottur hópur sem ég er með. Þetta er landsliðið fyrir utan Pál Baldvin.“ - fb Er óskaplega friðsamur maður TILÞRIF Í NÝRRI AUGLÝSINGU Egill Helgason sýnir góð tilþrif í nýrri auglýs- ingu fyrir bókmenntaþáttinn Kiljuna. „Ég er ótrúlega ánægður með útkomuna,“ segir grafíski hönnuð- urinn Halli Civelek. Þriðja plata Retro Stefson, sem kemur út 2. október og er samnefnd sveitinni, verður seld í verslunum með sjö mismunandi framhlið- um og verður þessi útgáfa plöt- unnar seld í takmörkuðu upplagi. Hver framhlið verður með mynd af einum af sjö meðlimum hljóm- sveitarinnar. Hinar sex myndirn- ar verða inni í umslaginu og geta kaupendur því skipt um mynd á framhliðinni eins oft og þeir vilja. Myndirnar tók Ari Magg í Gufunesinu í Grafarvogi, Hildur Yeoman var stílisti og um listræna stjórnun sá Halli. Hann er aðjúnkt og fagstjóri í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands og hefur hannað öll umslög Retro Stefson til þessa. Á ferilskrá hans eru einnig umslög með FM Belfast, Leaves og Sesari A. „Það hentaði vel að vera með margs konar myndir sem eru bæði lifandi og litríkar. Retro Stefson er spes hljómsveit því hún hefur mjög litríkan tónlistarstíl. Það skemmtilega við tónlistina er að hún er úti um allt og alls konar en samt algjörlega Retro Stefson. Við vorum að reyna að endurspegla það,“ greinir Halli frá. „Það var frábært að vinna með Ara Magg og samvinnan við Retro Stefson hefur alltaf verið góð. Við áttum mjög skemmtilegan dag þegar við tókum þessar myndir og ég hlakka mikið til að sjá þetta á prenti.“ Auk þessarar nýstárlegu útgáfu kemur platan út í tvöföldu, veglegu vínylformi. freyr@frettabladid.is HALLI CIVELEK: ÓTRÚLEGA ÁNÆGÐUR MEÐ ÚTKOMUNA Plata Retro Stefson seld í sjö mismunandi útgáfum Retro Stefson heldur útgáfutónleika í Iðnó 5. október og er miðasalan hafin á Midi.is. Unnsteinn Manuel Stefánsson og félagar hafa að undanförnu æft stíft fyrir tónleikana, þar sem nýja efnið verður frumflutt. Tíu lög eru á plötunni, þar á meðal Qween og Glow sem hafa gert það gott í útvarpinu síðustu mánuði. „Þetta er okkar besta plata,“ fullyrðir Unnsteinn en upptökur stóðu yfir í eitt ár. Hermigervill, sem aðstoðaði við upptökurnar, stígur einnig á stokk á tónleikunum. Haraldur Ari Stefánsson verður aftur á móti fjarri góðu gamni í Iðnó því hann er farinn út til London í leiklistarnám. Unnsteinn viðurkennir að það verði missir að honum. „Að vissu leyti en hann byrjaði seinna í hljómsveitinni. Við höfum tekið nokkra tónleika án hans, þannig að þetta er ekkert stórmál.“ SPILA NÝJU LÖGIN Á ÚTGÁFUTÓNLEIKUM NÝSTÁRLEG ÚTGÁFA Gylfi Sigurðsson, trommari Retro Stefson, á einni þeirra sjö mynda sem notaðar verða á nýju plötunni. Bandaríski rapparinn B. Dolan stígur á svið á Gamla Gauknum á laugardagskvöld. Hann kom hingað í september í fyrra ásamt kollega sínum Sage Francis, heillaðist af landi og þjóð og hét því að koma aftur ásamt brúði sinni í brúðkaupsferð núna í septem- ber. „Tónleikarnir mínir á Íslandi voru á meðal þeirra eftirminnilegustu í fyrra og það var stappað af fólki og góð stemning. Hákarlinn sem ég fékk bragðaðist eins og hland, ég borðaði andlit af kind og lögin mín með mesta guðlastinu voru spiluð í útvarp- inu,“ segir Dolan. Spurður af hverju hann hafi valið eyjuna í norðri fyrir brúðkaupsferðina segir hann að dulúð Íslands og Reykjavíkur hafi heillað sig. „Þegar ég hugsaði um hvar ég ætti að eyða brúðkaupsferðinni gat ég ekki hugsað mér betri stað. Hann er hljóðlátur, fallegur og maturinn er góður.“ Hvað á svo að gera í brúðkaupsferðinni? „Ég tek þennan venjulega túristapakka býst ég við. Veiði ísbirni, fer á bak á hvölum og fylgist með lundaorgíum.“ Dolan er þekktur fyrir pólitíska texta sína en vill ekki láta stimpla sig sem póli- tískan rappara því hann syngur um fleiri hluti. „Áhuginn minn á stjórnmálum kemur aðallega frá röppurum á borð við Chuck D og KRS-One en þá fór ég að hugsa á gagn- rýninn hátt um stjórnvöld. Tónlistin þeirra hvatti mig til að lesa meira, hugsa meira og láta meira að mér kveða.“ - fb Rappari í brúðkaupsferð til Íslands Í BRÚÐKAUPSFERÐ Bandaríski rapparinn B. Dolan er á leiðinni til Íslands í brúðkaupsferð. NORDICPHOTOS/GETTY *Flugsæti a ðra leið með sköttum. Netverð á mann. Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri • Sími 461 1099 • www.heimsferdir.is Barcelona B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ði r á sk ilj a sé r r sé ét t t il le ið ré tt in g a tin á s lík u. A th . ð ve að rð g e b tu r b rerere t ey st e n ff án f án f á n án v rir v rir v yr irv yr i y ararara a.a.aaaaa E N N E M M / S IA • N M 54 40 1 frá kr. 99.900 Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á allra síðustu flugsætunum í helgarferð til Barcelona. Önnur gisting einnig í boði á einstaklega hagstæðu verði. Frá 99.900 kr. – Hotel Catalonia Atenas ***+ Verð á mann m.v. gistingu í tvíbýli í 4 nætur með morgunverði. Aukagjald fyrir einbýli kr. 34.800. Frábær 4 nátta helgarferð 11.-15. október Ótrúlegt tilboð! Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri • Sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.