Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 44
20. september 2012 FIMMTUDAGUR32 32 menning@frettabladid.is EINFALT OG AUÐVELT! MARGREYND AÐFERÐ SEM VIRKAR! D Y N A M O R E Y K JA V ÍK Ásgeir Ólafsson hefur undanfarin 20 ár þjálfað og veitt fólki næringarráðgjöf heima og erlendis. Létta leiðin hefur hjálpað fjölda fólks til betra lífs. Einfalt og aðgengilegt heilsubótarkerfi sem skilað hefur frábærum árangri. Aukin vellíðan og léttari líkami til frambúðar á aðeins sex vikum – án þess að þurfa að breyta um lífsstíl! AUKA- KÍLÓIN FJÚKA! „Skýr og aðgengile g leið að bæ ttum ma tar- venjum, a ukinni ve llíðan og færri a ukakílóum .“ ALMA MA RÍA RÖGN VALDSDÓ TTIR, HJÚKRUN ARFRÆÐI NGUR OG ÞRÍÞR AUTARKO NA 1. SÆTIMetsölulisti EymundssonHandbækur / fræðibækur / ævisögur 12.-18.09.121. PRENTUN UPPSEL D! 2. PREN TUN KOMIN Í VERSLA NIR! Leikverkið „And the Children Never Looked Back“ eftir leikskáldið Sölku Guðmundsdóttur verður frumsýnt í Oran Mor-leikhúsinu í Glasgow á mánudag og sýnt út vik- una. Leikstjóri er Graeme Maley, sem setti meðal annars upp Djúp- ið eftir Jón Atla Jónasson við sama leikhús fyrir þremur árum, og segir Salka að hann hafi í raun átt frum- kvæðið að verkinu. „Graeme hefur verið búsettur í og með á Íslandi undanfarið ár; hann kom að máli við mig og spurði hvort við ættum ekki að skella í eitt verk saman og ég tók slaginn.“ „And the Children Never Looked Back“ gerist á lítilli eyju þar sem voveiflegir atburðir hafa nýlega átt sér stað. Daniel er ungur maður frá meginlandinu sem hugsar í sögum og hefur einfalda sýn á veröldina. Leikritið segir frá örlagaríkum fundi þeirra Sunnu, en hún kennir í grunnskólanum á eyjunni og berst við að halda haus eftir skelfilegt áfall. Salka segir það hafa runnið upp fyrir sér nú í vikunni að í raun hafi hún verið að skrifa um alvarlegu hliðina á síðasta verki sínu, Súld- arskeri, sem hún var tilnefnd til Grímuverðlaunanna fyrir 2011. „Ég er að skrifa um fólk sem getur ekki horfst í augu við raun- veruleikann og heldur í hálmstrá sem er ekki endilega fótur fyrir. Ég heillast mjög af einangruðum sam- félögum og hvernig við búum til sögur til að fylla í órökréttu götin í lífi okkar.“ Salka lærði skapandi skrif í Skot- landi og er því vön að skrifa á ensku, en engu að síður fóru þau Maley þá leið að hún skrifaði verkið á „venju- legri“ ensku en hann þýddi yfir á skosku, með tilheyrandi mállýskum. Aðspurð segir Salka það koma vel til greina að setja verkið upp á Íslandi, en fram undan er þétt dag- skrá hjá leikskáldinu. Hún er eitt þriggja ungra leikskálda sem eiga verk sem sett verða á svið hjá Borg- arleikhúsinu undir heitinu „Núna!“, vinnur að nýju leikriti fyrir börn með leikhópnum Soðið svið, á verk á leiklistarhátíðinni Þjóðleik og hefur nýlokið við að þýða Emmu eftir Jane Austen. „Ég hef verið mjög heppin undan- farið ár, skrifað mikið fyrir leikhús- ið og unnið að fleiri stórum verkefn- um.“ Hún segist vona að sýningin í Glasgow opni fyrir hana fleiri dyr í Skotlandi. „Þetta er frábært tækifæri til að kynnast fólkinu í leikhúsbransanum þarna úti. Ég kunni mjög vel við mig í Skotlandi á sínum tíma og gæti vel hugsað mér að vinna þar. Draumur- inn væri að geta búið hálft ár þar og hálft heima á Íslandi.“ - bs Nýtt íslenskt verk frumsýnt í Skotlandi SALKA GUÐMUNDSDÓTTIR Hún segir nýja verkið, sem hún skrifaði á ensku, vera eins og alvarlegu hliðina á síðasta leikriti sínu, Súldarskeri. Menntamálaráðherra veitti fimm ungum höfundum Nýræktarstyrki Bókmenntasjóðs í gær. Þetta var í fimmta sinn sem nýræktarstyrkir eru veittir og hafa þeir gefið góða raun að mati framkvæmdastjóra Bókmenntasjóðs. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, tilkynnti í gær hverjir hlytu Nýræktarstyrki Bókmenntasjóðs við athöfn í Gunnarshúsi, húsi rithöfundasam- bands Íslands. Fimm ungir höfundar fengu að upphæð 200 þúsund krónur. Nýræktarstyrkjum Bókmenntasjóðs er ætlað að styðja við útgáfu á nýjum íslensk- um skáldverkum sem hafa takmarkaða eða litla tekjuvon en hafa ótvírætt menn- ingarlegt gildi. Alls bárust 23 umsóknir um fimm styrki en stjórn Bókmenntasjóðs velur verkin sem hljóta styrk. Þorgerður Agla Magnúsdóttir, fram- kvæmdastýra Bókmenntasjóðs, segir verk- in sem fengu styrk í ár frekar ólík. „Oft hefur verið nokkuð um ljóðabæk- ur en í ár fær aðeins ein ljóðabók styrk. Það var ekki meðvituð ákvörðun af hálfu stjórnarinnar, hún tekur einfaldlega mið af því hvaða umsóknir þykja bestar hverju sinni og falla að viðmiðum sjóðsins.“ Þetta er fimmta árið í röð sem Nýrækt- arstyrkir Bókmenntasjóðs eru veittir og Þorgerður segir þá hafa gefið góða raun, bæði hafi þeir gagnast höfundunum fjár- hagslega og vakið athygli á þeim. Þorgerður Agla segir allan gang á því hvort bækurnar sem hljóta styrk komi út á vegum stærri forlaga eða á vegum höf- undanna sjálfra. „Við fáum umsóknir frá bæði forlögum og einstaklingum. Í fyrra vildi það svo til að þegar tilkynnt var um styrkina voru þrír umsækjendur með samning hjá For- laginu, þar af tveir sem voru án samnings þegar þeir sóttu um. Það eru líka dæmi um höfunda sem hafa fengið styrk, sem hafa farið með hann til forlags og lagt það til með sér og fengið samning í framhaldinu. Fólk getur gert það kæri það sig um slíkt en svo eru auðvitað aðrir sem kjósa að gefa út upp á eigin spýtur. En þeir njóta líka góðs af athyglinni sem Nýræktarstyrkirn- ir vekja, enda gerum við meira úr þeim en hefðbundnum styrkveitingum.“ bergsteinn@frettabladid.is BYR Í SEGL UNGRA RITHÖFUNDA HANDHAFAR NÝRÆKTARSTYRKJA Í ÁR: Dagur Hjartarson fyrir Fjarlægðir og fleiri sögur (smásögur). Heiðrún Ólafsdóttir fyrir Á milli okkar allt (ljóðabók). Hugrún Hrönn Ólafsdóttir fyrir Hulstur utan um sál (myndir og texti). Soffía Bjarnadóttir fyrir Segulskekkju: textasafn. Sunna Sigurðardóttir fyrir Mér þykir það leitt (grafísk nóvella/myndasmásögur). MARSIBIL SPYR Á PÖBBKVISS RIFF Marsibil Sæmundardóttir kvikmyndagerðarkona spyr gesti spjörunum úr á pöbbkvissi RIFF – Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík – á KEX-hosteli klukkan 20 í kvöld. Spurningarnar tengjast með einum eða öðrum hætti kvikmyndum. Vinningar eru í boði, allir velkomnir og frír aðgangur. SKÁLDSPROTAR 23 umsóknir bárust um fimm Nýræktarstyrki Bókmenntasjóðs. Hver styrkhafi fékk 200 þúsund krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.