Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 20. september 2012 25 Til er svolítil saga um gamla vörubílsökumanninn sem var blindur á hægra auga en taldi sig með öruggustu ökumönn- um (kannski var hann það, þrátt fyrir allt). Aðspurður um ástæð- una sagði hann að það væri hægri umferð og hann sæi vel til allra sem óku á móti bílnum hans. Þegar kemur að umhverfismál- um norðan við heimskautsbaug er líkt og margir hagi sér eða hugsi eins og sá gamli. Horfa með öðru auganu á hluta sjónsviðsins. Í ár er ástand stóru íshellunn- ar á kolli jarðar verra en nokkru sinni fyrr á undanförnum öldum. Hraðari bráðnun en flesta sér- fræðinga óraði fyrir veldur því að endurkast hitageislunar á risastóru svæði minnkar ótæpi- lega á ársgrunni. Vöxtur og við- gangur hafíss á norðurslóðum er ein helsta undirstaðan undir sæmilega stöðugu og fremur svölu loftslagi í tempraða belt- inu og kuldabeltinu. Hörfi hafís að mestu, nema yfir bláveturinn, hefur það miklar en ófyrirsjáan- legar afleiðingar á veðurfar jarð- ar. Ásamt hraðri bráðnun jökla og breyttu flæði ferskvatns til haf- anna er sennilegt að of lítil haf- íshella valdi því að hafstraumar breytast með álíka ófyrirsjáan- legum afleiðingum. Hvað er gert? Losun gróður- húsalofttegunda er aukin, áfram vegið grimmt að gróðri jarðar, einkum trjágróðri sem bindur vel koltvísýring, og stefnt að aukinni leit að kolefniseldsneyti í jarð- skorpunni, einmitt á norðurslóð- um. Þjóðunum er um leið sagt að aðlaga sig að nýjum aðstæðum og takast á við vanda sem mun vaxa, t.d. vegna hækkandi sjávarborðs. Hvað drífur þessa stefnu og til- heyrandi aðgerðir áfram? Skyn- semi? Neyð? Nýsköpun? Hagvöxt- ur? Býður einhver fram réttari hugtök? Auðvelt er að horfa með aðdáun á allt sem vinnst með norðlægri málm-, olíu- og gasvinnslu en horfa ekki á neikvæðu afleið- ingarnar; treysta blinda auganu. Það geta komið margar krónur í íslenska kassa þegar nýjar sigl- ingaleiðir opnast, rándýr olía tekur ef til vill að flæða við erf- iðustu aðstæður og námagröftur eykst í hæsta norðri. Ætli þær dugi til að greiða fyrir mótvæg- isaðgerðir vegna áflæðis sjávar, vegna óvissra breytinga á lífrík- inu og tjóns af veðuröfgum? Þátt- taka okkar í kapphlaupinu um Nýja Norðrið er næstum ósjálf- ráð. Ég tel, á Degi íslenskrar nátt- úru, að löngu sé kominn tími til að skoða þessa framtíð með báðum augum og leita öfgalaust ábyrgra svara við nokkrum áleitnustu spurningum næstu ára. Með báðum augum – eða bara öðru? Norðurslóðir Ari Trausti Guðmundsson áhugamaður um norðurslóðir Mannfólkið sem jörðina byggir er farið að umbylta henni með þvílíkum hætti að tekið er að ræða um tímabilið frá 1750 sem upp- haf nýs jarðsöguskeiðs: Manntíma (e. anthropocene). Þetta var uppi- staða aðalerinda á alþjóðaráðstefnu landfræðinga, sem haldin var í lok ágúst í Köln í Þýskalandi. Sögu jarðarinnar er skipt í til- tekin skeið eða aldir, sem flestar spanna milljónir ára. Á skeiði sem nefnt er miðlífsöld gengu risaeðlur til að mynda um jörðina. Endalok þeirra urðu fyrir um 65 milljónum ára, með hamförum sem þurrkuðu um 90% allra þálifandi dýrateg- unda af yfirborði jarðar. Við tók nýlífsöld, sem enn stendur. Innan hennar eru allmörg skemmri tíma- bil. Siðmenningin hefur að mestu mótast á tímabili sem kallað er nútími (e. holocene) og tók við af ístíma (e. pleistocene) fyrir rúm- lega 10.000 árum. Nú er hins vegar svo komið að rætt er í fullri alvöru og með veigamiklum vísindarökum að upp sé runnið nýtt skeið, þar sem umsvif mannkynsins séu tekin að valda varanlegum breytingum á líf- og vistkerfum jarðarinnar allrar. Þetta eru í raun stórmerkar frétt- ir. Burtséð frá umræðu um eðli og umfang þessara breytinga, svo sem hnattræna hlýnun, þá felst í þessari hugsun viðurkenning á því að sam- félög okkar eru ekki aðeins á jörð- inni heldur með jörðinni. Samfélög fólks og jörðin eru eitt. Mannlíf og náttúra verða ekki skilin sundur. Þetta þýðir að ekki er lengur hægt að ímynda sér að aðgerðir okkar og athafnir hafi bara með okkur sjálf að gera eða mögulega bara nán- asta umhverfi. Það sem við gerum mótar jörðina okkar allra. Þetta má skýra með dæmi. Ákvörðun íslensks fyrirtækis um aukin umsvif, tekin á stjórnar- fundi í ljósi ársfjórðungslegs yfir- lits yfir rekstur þess, valda því að einhvers staðar – kannski í Kongó eða Kostaríku – er meira tekið af efni úr jörð. Þetta efni er flutt úr stað og unnið og áhrifanna gætir um alla jörð. Áhrifin kunna að virð- ast smávægileg, en þau eru hluti af flóknu neti tengsla, sem eru hins vegar oft langt í frá augljós. Þegar horft er heildstætt á vistkerfi jarð- ar má sjá að fjöldi fólks á jörðinni, umsvif þess og þarfir eru farin að hafa víðtæk og varanleg áhrif á jörðina sjálfa. Að við séum eitt með náttúru og umhverfi eru svo sem ekki nýjar fréttir. Tengsl fólks og nátt- úru hafa um langan aldur verið eitt meginviðfangsefni landfræð- inga og síðustu áratugi hefur nán- ast öll umræða í umhverfismálum hverfst um þetta. Fréttirnar eru þær að vísindaheimurinn hefur nú gefið þessu nafn sem setur athafnir manna í skýrt jarðsögu- legt samhengi. Maðurinn er orðinn jarðsögulegt afl. Við lifum í mann- tímanum. Manntíminn: Maðurinn sem jarðsögulegt afl Umhverfismál Dr. Edward H. Huijbens landfræðingur og forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála Dr. Karl Benediktsson prófessor í landfræði við Háskóla Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.