Fréttablaðið - 20.09.2012, Side 8
20. september 2012 FIMMTUDAGUR8
www.volkswagen.is
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Polo
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
1
8“
á
lfe
lg
ur
, þ
ok
ul
jó
s
og
li
ta
ða
r
rú
ðu
r
- fyrir okkur öll
Volkswagen Polo
Meðaleyðsla aðeins
3,8 lítrar á hverja 100 km*
* Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum Volkswagen Polo Trendline 1.2 TDI
Polo kostar aðeins frá
2.290.000 kr.
FRÉTTASKÝRING
Ummæli Romneys hrista upp í kosn-
ingabaráttunni.
Liðsmenn Baracks Obama Banda-
ríkjaforseta hafa síðustu daga
óspart núið mótframbjóðandanum
Mitt Romney upp úr myndbandi
sem tekið var með leynd á fjáröfl-
unarfundi hans með bandarískum
auðkýfingum í maí.
Samkvæmt nýrri skoðanakönn-
un, sem gerð var á þriðjudag, dag-
inn eftir að ummæli Romneys
birtust almenningi, hafa þau kost-
að hann stuðning nærri þriðjungs
óháðra kjósenda, en það er ein-
mitt sá kjósendahópur sem hann
segist þurfa að höfða til í kosn-
ingabaráttunni næstu vikurnar.
Obama brást við ummælum
Romneys með því að segja Banda-
ríkjamenn ekki líta á sjálfa sig
sem fórnarlömb: „Eitt af því
sem ég hef lært í embættinu er
að maður er fulltrúi allra lands-
manna.“
Félagar Romneys í Repúblik-
anaflokknum reyna á hinn bóginn
eftir megni að draga úr skaðan-
um, þar á meðal varaforsetaefn-
ið Paul Ryan sem kemur Romney
til varnar með því að segja hann
„greinilega illa máli farinn“.
Móðgar hermenn
Það sem Romney sagði í mynd-
bandinu var meðal annars að
hann ætti ekkert erindi við 47
prósent kjósenda, sem ætluðust til
þess að fá allt upp í hendurnar frá
ríkinu en borguðu engan tekju-
skatt á móti. Þeir myndu hvort
eð er aldrei kjósa neinn annan en
Obama. Þess í stað þyrfti hann að
einbeita sér að þeim fimm til tíu
prósentum kjósenda sem sveifluð-
ust á milli flokka.
Bandarískir fjölmiðlar hafa
reiknað út að þarna hljóti hann
að eiga við þau 47 prósent Banda-
ríkjamanna sem greiða engan
alríkisskatt.
Þeir sem sleppa við að greiða
skatt til alríkisins eru meðal
annars bandarískir hermenn,
námsmenn, atvinnulausir, lág-
Liðsmenn Obama
kætast yfir klúðri
Ummæli Mitts Romneys virðast ætla að kosta hann atkvæði þeirra kjósenda
sem hann segist þurfa að höfða sérstaklega til, nefnilega óháðra kjósenda á
miðjunni. Obama segir Bandaríkjamenn ekki líta á sjálfa sig sem fórnarlömb.
tekjufólk og margir eldri borg-
arar. Margir þeirra greiða samt
skatt til ríkjanna, og allir greiða
hvort eð er virðisaukaskatt af
neyslu sinni. Auk þess
er stuðningur við Repú-
blikanaflokkinn ekkert
endilega mikið minni í
þessum þjóðfélagshóp-
um en öðrum.
Trúir ekki á frið
Fyrir utan þetta tókst
Romney að vekja
rækilega athygli með
ummælum sínum um
Palestínumenn, innflytj-
endur, konur og kjósend-
ur ættaða frá Mið- og
Suður-Ameríku.
Hann sagðist ti l
dæmis ekki sjá neina von til þess
að friður kæmist á milli Palest-
ínumanna og Ísraela í fyrirsjáan-
legri framtíð: „Ég sé að Palestínu-
menn vilja hvort eð er ekki frið,
af pólitískum ástæðum, og eru
staðráðnir í að eyða og útrýma
Ísrael,“ sagði hann. Með þessu
ástandi yrðu menn bara að lifa og
vona hið besta.
Um innflytjendur sagði hann:
„Ég vildi gjarnan útvega öllum
doktorum heimsins græna kortið
og segja: „Komið til Bandaríkj-
anna, við viljum fá ykkur hingað.“
En þess í stað gerum við
fólki sem menntar sig
hér eða annars staðar
erfitt fyrir að búa sér
heimili hér. Nema, auð-
vitað, þú sért hæfileika-
og reynslulaus, þá er þér
velkomið að fara yfir
landamærin og búa hér
til æviloka.“
Kappræður í október
Bandarískir kjósend-
ur fá brátt tækifæri
til að heyra frambjóð-
endurna ræða saman
beint og milliliðalaust.
Fyrstu sjónvarpskappræður
þeirra Obama og Romneys verða
þriðjudaginn 3. október. Vikurnar
fram að kosningunum, sem haldn-
ar verða þriðjudaginn 6. nóvem-
ber, mætast þeir þrisvar til við-
bótar í sjónvarpskappræðum, og
einar kappræður verða sömuleið-
is á milli varaforsetaefnanna Joes
Bidens og Pauls Ryans.
gudsteinn@frettabladid.is
Úr ummælum Romneys á fjáröflunarfundinum í vor:
„Fjörutíu og sjö prósent fólks munu kjósa forsetann sama hvað á gengur.
Sem sagt, það eru 47 prósent sem styðja hann, sem eru háð ríkinu, sem
líta á sig sem fórnarlömb, sem telja að ríkið eigi að sjá fyrir þeim, sem
telja sig eiga rétt á heilbrigðisþjónustu, mat, húsnæði og ég veit ekki hvað.
Að þetta séu réttindi. Og að ríkið eigi að gefa þeim þetta. Og þau munu
kjósa forsetann sama hvað gerist.“
„Þetta er fólkið sem greiðir engan tekjuskatt. Fjörutíu og sjö prósent
Bandaríkjamanna greiða engan tekjuskatt. Þannig að skilaboð okkar um
lága skatta ná ekki til þeirra.“
„Og mitt hlutverk er þá ekki að hafa áhyggjur af þessu fólki. Ég mun aldrei
sannfæra þau um að þau eigi að bera ábyrgð og sjá um sig sjálf. Það sem
ég þarf að gera er að sannfæra fimm til tíu prósent fólks á miðjunni sem
er óháð og hugsandi, sem skoðar hvort það eigi að kjósa á þennan veginn
eða hinn, stundum eftir tilfinningum, eftir því hvort því líkar við náungann
eða ekki.“
Um 47 prósent kjósenda
ROMNEY Á FJÁRÖFLUNARFUNDI Mitt Romney ásamt Ann eiginkonu sinni á fundi
með fjársterku fólki á þriðjudagskvöldið. NORDICPHOTOS/AFP
Eitt af því sem
ég hef lært í
embættinu
er að maður
er fulltrúi allra
landsmanna.
BARACK OBAMA
BANDARÍKJAFORSETI