Fréttablaðið - 20.09.2012, Page 12
20. september 2012 FIMMTUDAGUR12 12
hagur heimilanna
Um þrjú þúsund bláar og bleikar vatns-
flöskur sem seldar eru í verslunum H&M
hafa verið innkallaðar um heim allan.
Ástæða innköllunarinnar er sú að stútur
flöskunnar getur brotnað í marga smáa
hluti og valdið hættu á köfnun. Fram
kemur í tilkynningu frá H&M að ekki sé
auðvelt að sjá gallann og fólk hvatt til að
hætta strax að nota flöskuna. Samkvæmt
breskum fjölmiðlum hefur fyrirtækinu
borist ein tilkynning frá enskri fjölskyldu
þar sem stúturinn brotnaði af í munni
lítils barns. Engin slys hafa þó verið til-
kynnt. Neytendastofa vakti athygli á því á
vef sínum að verslanirnar hefðu ákveðið
að innkalla flöskurnar. Vörunúmer fyrir
bláa flösku er 74292 6 4212 82 og fyrir
bleika flösku er 74292 6 4212 50.
■ Innköllun
H&M barnabrúsar geta reynst hættulegir
Þeir sem taka slátur eiga
nóg af ódýrum mat í frysti-
kistunni fram á vetur. Sala
á sláturmarkaði SS og Hag-
kaups stórjókst í fyrra og
hittiðfyrra og gert er ráð
fyrir að salan verði góð á
sláturmarkaðnum í ár sem
hefst á morgun.
„Maður fær rosalega mikið magn af
mat fyrir lítinn pening þegar maður
gerir þetta sjálfur. Það er svolítil
vinna við þetta en gaman,“ segir
Margrét Sigfúsdóttir, skólastjóri
Hússtjórnarskólans í Reykjavík.
Hún mælir með að unnið sé skipu-
lega við sláturgerðina í tvo daga.
„Fyrri daginn er mörinn brytjaður
og keppir saumaðir á meðan blóð-
ið er að þiðna. Það er best að ætla
sér ekki of mikið í einu því að þá er
hætta á að fólk springi á limminu.“
Margrét leggur áherslu á að slát-
urgerð sé ekki séríslenskt fyrir-
bæri. „Þetta er gert í einhverri
mynd um allan heim. Í breskum
matreiðsluþáttum hefur til dæmis
verið sýnt hvernig blóðbúðingur er
skorinn í strimla sem eru steiktir og
jafnvel settir ofan á nautasteikur.“
Gunnar Ingi Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Hagkaups, segir að
algjör sprenging hafi orðið í sölu
sláturs undanfarin tvö ár á slátur-
markaði SS og Hagkaups. „Fólk
á öllum aldri er farið að taka slát-
ur. Það var gaman að sjá raðirnar
sem mynduðust þegar við opnuð-
um markaðinn og hvað farið var að
yngjast í röðinni. Áhuginn á slátur-
gerð hefur vaxið gríðarlega eftir
hrun.“
Fimm fersk heilslátur kosta í ár
5.299 krónur á sláturmarkaðnum
sem opnaður verður í Smáralind á
morgun. „Það fást að minnsta kosti
25 til 30 keppir úr fimm slátrum
eftir því hvort vömbin er stór eða
lítil. Við sláturgerðina þarf auk þess
rúgmjöl, haframjöl og mjólk en það
er ekki dýrt. Þessi matur verð-
ur ódýrari þegar maður saumar
keppina heima,“ bendir Margrét á.
Miðað við 25 keppi kostar hver
keppur 212 krónur en 177 krónur ef
30 keppir fást úr fimm slátrum.
Kíló af soðnum blóðmör í Hag-
kaupi kostar 849 krónur en af
soðinni lifrarpylsu 998 krónur.
Meðalþyngd kepps er um 450 g.
Blóðmörskeppur kostar um 380
krónur en lifrarpylsukeppur um 450
krónur. ibs@frettabladid.is
Mikill matur í kistuna
fyrir lítinn pening
SLÁTURGERÐ Margrét Sigfúsdóttir, skólastjóri Hússtjórnarskólans í Reykjavík,
mælir með því að unnið sé skipulega við sláturgerð. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
1. Himnuhreinsið lifur og nýru (nýrun klædd úr himnunni) og maukið í
matvinnsluvél.
2. Setjið lifrarhræruna í rúmgott fat, blandið vökva, salti og haframjöli
saman við, látið standa í u.þ.b. 5 mínútur á meðan saltið leysist upp og
haframjölið blotnar.
3. Hrærið rúgmjöli og mör saman við, passið að hafa hræruna ekki of
þykka. Lifrarhræran er þó höfð þykkari en blóðmörshræran. Gott er að
setja örlítinn sykur út í hræruna.
4. Hálffyllið keppina, saumið fyrir með bómullargarni. Pikkið með nál og
setjið út í sjóðandi saltað vatn. Munið að pikka keppina aftur þegar suðan
kemur upp og keppirnir fljóta upp í pottinum. Sjóðið í minnst 2 1/2 klst.
Lifrarpylsa Margrétar Sigfúsdóttur
2 lifrar
4 nýru
2 msk. gróft salt
6 dl mjólk
1 1/2 dl heitt vatn og 1/2 súputeningur
300 g haframjöl
400 g rúgmjöl
300-400 g brytjaður mör
Svanurinn og Evrópublómið eru meðal þeirra tíu merkja sem stjórnendur fyrir-
tækja frá sjötíu löndum nefndu þegar þeir voru beðnir um að nefna umhverf-
ismerki. Þetta kemur fram í skýrslu frá alþjóðlega viðskiptaháskólanum IMD í
Sviss, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Umhverfisstofnun.
Svanurinn og Blái engillinn frá Þýskalandi voru nefndir sem fyrirmynd
annarra merkja og viðmið þeirra þóttu hafa mest áhrif á opinber útboð. Kristín
Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, segir íslensk fyrirtæki hafa
afbragðs tækifæri til þess að nota Svaninn við alþjóðlega markaðssetningu á
umhverfisvænni vöru eða þjónustu.
■ Umhverfisvernd
Svanurinn eitt af tíu þekktustu umhverfis-
merkjum heims
KRÓNUR fóru í rekstur bíls á íslensku meðalheimili árið 2010, eða 8,4
prósent allra útgjalda. Það er nærri tvöföld sú fjárhæð sem varið var í bílinn
árið 2002, en þá var hutfall heildarútgjalda ekki nema 6,9 prósent.
450.000