Fréttablaðið - 20.09.2012, Síða 16

Fréttablaðið - 20.09.2012, Síða 16
20. september 2012 FIMMTUDAGUR16 Umsjón: nánar á visir.is   Landsbréf, rekstrarfélag verð- bréfasjóða í eigu Landsbankans, hafa tekið yfir rekstur og stýr- ingu eigna Horns fjárfestingar- félags sem er einnig í eigu Lands- bankans. Landsbankinn lýsti því yfir í maí síðastliðnum að til stæði að færa eignasafn Horns inn í Landsbréf. Fjármálaeftirlitið veitti Lands- bréfum leyfi til eignastýringar þann 11. september síðastliðinn og var í kjölfarið skrifað undir samn- ing milli Landsbréfa og Horns. Samhliða yfirtöku Landsbréfa á eignum Horns hafa allir fyrrver- andi starfsmenn Horns gengið til liðs við Landsbréf þar sem fimm- tán sérfræðingar starfa nú í stýr- ingu eigna. Horn hefur verið eitt stærsta eignarhaldsfélag landsins með eignir í umsjá að verðmæti um 30 milljarða króna. Meðal þeirra eigna má nefna tæplega 4% hlut í Eimskipi, 12,5% hlut í Eyri Invest, og tæplega 50% hlut í Promens. - mþl Eignir Landsbankans færðar til: Landsbréf taka við öllum eignum Horns EIMSKIP Meðal eigna sem Landsbréf hafa nú tekið við má nefna 4% hlut í Eimskipi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 198 Vogabakki ehf., fjárfestingafélag í eigu Árna Haukssonar og Hall- björns Karlssonar, hagnaðist um 2,6 milljónir evra á árinu 2011, eða um 414 milljónir króna á gengi dagsins í dag. Eigið fé félagsins var rúmir tveir milljarðar króna um síðustu áramót. Þetta kemur fram í ársreikningi Vogabakka sem sam- þykktur var 14. september. Hagnaður Vogabakka var allur tilkominn vegna gagnvirðisbreyt- inga á hlutabréfum í eigu félags- ins, en þær námu tæpum 480 milljónum króna í fyrra. Stærsta eign Vogabakka er eignarhlutur í Högum sem félagið á í gegnum Búvelli slhf., en félagið er næst- stærsti einstaki eigandi Haga með 7,9 prósenta eignarhlut. Árni og Hallbjörn keyptu upphaflega hluti sína í Högum í febrúar 2011 á geng- inu 10 og bættu síðan við hlut um haustið á genginu 11. Gengi Haga í lok viðskipta í gær var 18,5 krón- ur og því ljóst að arður tvímenn- inganna á viðskiptunum er mikill. Skuldir Vogabakka í árslok 2010 voru nánast einvörðungu við tengda aðila. Í ársreikningnum kemur fram að félagið hafi stofn- að til 650 milljóna króna skulda við lánastofnanir á síðasta ári. - þsj Kaup í Högum reyndust arðsöm: Vogabakki hagnaðist um 414 milljónir EIGENDURNIR Fjárfestingafélagið Vogabakki er í eigu þeirra Hallbjörns Karlssonar (t.v.) og Árna Haukssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN PUNKTAR er 5 ára skuldatryggingaálag ríkissjóðs. Skuldatrygginga- álagið hefur ekki farið niður fyrir 200 punkta frá því í júní 2008. Bandarískt hagkerfi er í bata en stórir áhættuþættir eru þar til staðar, Evrópu vantar trúverðuga hagvaxtaráætlun og Grikkir munu fara út úr evru-samstarfinu í lok árs 2013. Þetta er meðal þess sem kom fram í framsögu Roberts Par- ker, aðalráðgjafa Credit Suisse, á haustráðstefnu MP banka sem haldin var í gær. Parker fjallaði þar með víðtæk- um hætti um stöðu mála á alþjóða- mörkuðum og hvernig ýmsir eignaflokkar, einkum hlutabréf, skuldabréf og ýmiss konar hrá- vara, ávaxtast um þessar mundir og hvernig hann býst við að þeir þróist á næstu misserum. Parker fjallaði meðal annars um stöðuna í Evrópu. Heilt yfir væru seðlabankar að styðja við hagvöxt með fjárinnspýtingu og það væri að hafa góð áhrif. Í Evrópu væri þó enn fyrir hendi vandamál, sem sneri að því að trúverðug hag- vaxtaráætlun, heildstæð fyrir álf- una alla, væri ekki fyrir hendi. Að hans mati hafa þeir björgunar- pakkar sem veittir voru til Írlands og Portúgals virkað sérstaklega vel. Bati Íra sé mikil velgengnis- saga og í Portúgal er að eiga sér stað það sem Parker kallaði öfuga nýlenduvæðingu. Það felst í því að Angóla, sem er fyrrum nýlenda Portúgala, er að fjárfesta í síaukn- um mæli með uppkaupum á ódýr- um eignum í Portúgal með olíu- auði sínum. Sú aukning í erlendri fjárfestingu sé að gagnast Portú- gölum. Parker telur að evrópski Seðla- bankinn muni líkast til þurfa að kaupa ríkisskuldabréf Spánar síðar á þessu ári vegna vandræða í efnahagsmálum þess ríkis. Þá taldi hann mikla áhættu fylgja kosningunum á Ítalíu á næsta ári þar sem ríkisstjórn Mario Monti hafi staðið sig vel. Ef flokkur Sil- vio Berlusconi kæmist aftur til valda þá gæti það valdið miklum skaða, að mati Parkers. Parker sagði það skipta litlu máli fyrir fjármálageirann ef Grikkir myndu yfirgefa evruna. Parker sagði að flestir byggjust við því að Grikkir myndu semja um eins árs frestun á björgunar- pakka sínum, en að þeir myndu samt sem áður ekki geta mætt Telur Evrópu vanta hagvaxtaráætlun Robert Parker, aðalráðgjafi Credit Suisse, telur fjármagnsinnspýtingar seðla- banka í Evrópu vera að hafa góð áhrif. Fyrirsjáanlegur hagvöxtur í álfunni er þó ekki nægilega mikill. Bandaríkin eru í bata en stórir áhættuþættir til staðar. Að mati Parkers hefur efnahagsbati Íslands verið nokkuð góður og allar hag- tölur styddu við þá greiningu. Hins vegar væru nokkur stór sýnileg vandamál sem steðjuðu að hagkerfinu. Það fyrsta eru gjaldeyrishöftin og hvernig þau verða afnumin. Hann varaði sérstaklega við afleiðingum þess að „sjokk“- aðferð yrði beitt og höftin afnumin hratt. Hagkerfið myndi ekki lifa það af. Þá þyrfti einnig að klára slit á þrotabúum föllnu bankanna sem fyrst með einhverjum hætti, helst innan árs. Það skipti miklu máli fyrir trú erlendra fjárfesta á Íslandi. Að lokum þurfi Íslendingar að passa mjög vel upp á að reka skynsamlega efnahagsstefnu. Óábyrg skref frá þeirri átt eftir kosning- arnar á næsta ári myndu hafa mjög neikvæð áhrif. Hann sagði upptöku evru geta haft margt jákvætt í för með sér fyrir Ísland. Fyrst þyrfti hins vegar að afnema höft og halda samhliða áfram aðild- arviðræðum við Evrópusambandið. Parker lagði þó áherslu á að Íslendingar þyrftu að gera sér grein fyrir því að með upptöku evru væru þeir að gefa frá sér efnahagslegt sjálfstæði. Góður efnahagsbati á Íslandi FRAMSAGA Robert Parker flutti erindi á haustráðstefnu MP banka sem haldin var í Turninum við Smáratorg í hádeginu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA þeim skilyrðum sem þeir þyrftu í lok árs 2013. Að mati Parkers myndu Grikkir því yfirgefa evr- una í lok árs 2013 og taka upp drökmu að nýju. Norður-Evrópa, með Þýskaland í broddi fylkingar, ætti að upplifa aukna hagsæld á síðasta fjórðungi ársins 2012, sem hefur að öðru leyti verið stöðnunar- eða sam- dráttarár víðast í Evrópu. Jákvæð- ir hagvísar þar að mati Parkers er aukin neysla, meðal annars í kjöl- far kjarasamningsbundinna launa- hækkana, og því að evran er und- irverðlögð hjá norðurevrópskum hagkerfum. Parker spáði því að hagvöxt- ur í Bandaríkjunum yrði 1,8 pró- sent á árinu 2013 en taldi yfirvof- andi áhættu til staðar í hagkerfi landsins. Þau vandamál gætu haft áhrif á alþjóðamarkaði með hluta- bréf og hann spáði að markaðir gætu tekið dýfu í desember næst- komandi ef skattalagabreytingar sem eiga að taka gildi 1. janúar næstkomandi verði að veruleika. Þær eru margvíslegar og gætu valdið óróleika hjá fjárfestum, með fyrrnefndum afleiðingum. Parker verður í ítarlegu viðtali í næsta þætti Klinksins sem mun birtast á Vísi.is næstkomandi sunnudag. thordur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.