Fréttablaðið - 20.09.2012, Síða 52
20. september 2012 FIMMTUDAGUR40
lifsstill@frettabladid.is
? Mig vantar smá ráð hjá þér. Við kærastinn erum búin að
vera saman í nokkur ár og eigum
tvö yndisleg börn. Báðar með-
göngurnar voru mjög erfiðar og
ég var mikið veik og kynlífið þar
af leiðandi ekki neitt. Á fyrri með-
göngunni stunduðum við kyn-
líf tvisvar og ekkert núna á síð-
ustu. Eftir að strákurinn fæddist
hafði ég mjög litla löngun í kynlíf
almennt og enn þá minni núna.
Það virðist fast í hausnum á mér,
að þar sem ég er orðin mamma, þá
eigi ég ekki að stunda kynlíf. Ég
fékk fæðingarþunglyndi eftir að
strákurinn fæddist og fékk hjálp
við því. Var orðin góð en er byrjuð
að finna fyrir því aftur núna, ekk-
ert mikið, en nóg til að hafa áhrif
á mig. Kærastinn minn er yndis-
legur maður sem vill allt fyrir mig
gera og ég elska hann mjög mikið.
Það var smá risvandamál í gangi
en hann ætlar að tala við lækni og
fá pillur við því, ég sagði honum að
það væri allavega partur af þessu
löngunarleysi hjá mér. Mig langar
alveg ofsalega mikið til að langa.
Hann talar stundum um að hann
langi til að stunda meira kynlíf, og
ég er búin að segja honum að hann
verði þá að hafa frumkvæði. Hann
þurfi að taka af skarið, því kannski
þarf ég bara smá örvun til að kom-
ast í gang.
SVAR Það er margt sem er í gangi
samtímis í þínum aðstæðum og
allt eru það þekktir þættir sem
geta dregið úr kynlöngun. Það er
vitað að álagið sem fylgir barn-
eignum getur haft áhrif á kyn-
löngun karla og kvenna. Þá verða
ákveðnar lífeðlislegar breytingar
í líkama konunnar við fæðingu og
brjóstagjöf sem geta einnig dregið
úr löngun. Þunglyndi, þunglyndis-
lyf og kynlífsvandamál maka hafa
einnig áhrif. Þar sem vandamálið
er margþætt þá er lausnin það líka.
Ég myndi telja algert forgangs-
atriði að fá aðstoð við fæðingar-
þunglyndinu. Það er fullkomlega
eðlilegt að leyfa nokkrum vikum
að líða eftir fæðingu áður en kyn-
líf hefst svo ekki setja of mikla
pressu á ykkur í þeirri deild. Hvað
varðar hans vandamál þá geta
fleiri lausnir verið á þeim vanda
heldur en bara pillur og því mæli
ég með því að þið farið í ráðgjöf til
kynfræðings. Þar gætuð þið talað
saman um bæði hans vandamál og
þín og svo hvernig þið getið í fram-
haldinu tæklað kynlífsleysið. Það
getur verið erfitt að bera einn þá
byrði að hafa alltaf frumkvæði
að kynlífi og eiga svo líka að taka
á móti neitun og upplifa það ekki
sem höfnun. Því þurfið þið kannski
smá aðstoð við að koma jafnvægi
á þau samskipti og það fæst með
því að fara í ráðgjöf. Ekki óttast
hjálparhöndina heldur takið henni
fagnandi og nýtið sem tækifæri til
að styrkja ykkur sem einstaklinga,
par og foreldra.
KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
Ástareldurinn kveiktur á ný
EKKI ÓTTAST HJÁLPARHÖND Það þarf að ræða vandamálin til að yfirstíga þau. Pör gætu þurft á aðstoð að halda við að koma
samskiptum af stað. NORDICPHOTOS/GETTY
ÁR ERU SÍÐAN TÍSKUHÚSIÐ BURBERRY hannaði sína frægu
kápu, eða „trenchcoat“, en kápan er aðalsmerki þessa fornfræga tískuhúss í
dag. Á nýafstaðinni sýningu Burberry í London mátti sjá nútímalegar útgáfur
af kápunni góðu, bæði í skærum litum og glansandi efnum.
98
Súrdeigsbrauð hafa sótt í sig
veðrið undanfarna mánuði,
enda þykja þau þægilegri í
magann og bragðmeiri en
mörg önnur brauð.
MATUR „Karakterinn í súrdeigs-
brauðunum er annar og maður
finnur fyrir súrnum, brauðin eru
því ekki eins flöt og önnur brauð
sem maður kaupir úti í búð. Súrinn
er líka mjög breytilegur frá degi til
dags og þess vegna fær maður ekki
endilega sama brauðið hvern dag.
Mér þykja þetta stærstu kostir súr-
deigsbrauðs,“ segir Þórir Bergs-
son, kokkur og eigandi Bergsson
mathúss. Þórir bakar súrdeigs-
brauð daglega og segir brauðið
fara betur í maga fólks.
„Það er náttúrulegur gerill í
brauðinu í stað tilbúins gers. Það
eru þessir tilbúnu gerlar sem
fara oft illa í fólk og því er súr-
deigsbrauðið oft betra í magann.“
Súrdeigsbrauð eru látin hefa
sig í svokallaðri kaldhefingu
áður en það er bakað og tekur
það allt að sextán klukkustund-
ir. Svolítið af súrnum er haldið
eftir í krukku og þarf að fæða
hann reglulega og halda honum
við. Sé það gert á súrinn að geta
lifað í mörg ár og jafnvel áratugi,
en sögusagnir eru um að til séu
súrir allt frá tímum Krists.
Sandholt bakarí selur nú ein-
vörðungu súrdeigsbrauð og seg-
ist Ásgeir Sandholt konditor
vart anna eftirspurn um helgar.
„Þetta eru brauð eins og þau voru
gerð í gamla daga og með sama
gamla hugarfarinu; að gefa hlut-
unum sinn tíma. Maður veltir því
fyrir sér hvort að nútíma brauð-
framleiðsla sé ástæðan fyrir því
að svo margir fá glúten- og ger-
óþol í dag,“ segir hann.
Brauðin fást einnig í Brauð-
húsinu í Grímsbæ, Kökuhúsinu
í Auðbrekku, Bernhöftsbakaríi
og víðar.
sara@frettabladid.is
SÚRDEIGSBRAUÐIN SÆKJA Í SIG VEÐRIÐ
Sagt er að Egyptar hafi verið fyrstir manna til að láta brauð hefa sig.
Þeir komust að því að ef mjöli var blandað í vatn og það látið standa
í opnu íláti í nokkra daga mynduðust í því loftbólur og blandan
þandist út. Þessi lyfting var grundvöllur brauðbaksturs allt fram á
síðustu öld þegar pressugerið var kynnt til sögu.
Í Biblíunni er oft minnst á súrdeig og í Matteusarguðspjalli (16:6)
segir meðal annars: „Jesús sagði við þá: „Gætið
ykkar, varist súrdeig farísea og
saddúkea.““ Að sögn Árna Svans
Daníelssonar verkefnisstjóra
á Biskupsstofu er súrdeigið
notað sem líkingamál
og er verið að vísa í
hugmyndir eða kenn-
ingar farísea og ekki í
brauðið sem slíkt.
Þórir Bergsson
segir súrdeigsbrauð
vera bragðgóð og
góð í maga. Vinsældir
súrdeigsbrauða hafa
vaxið mikið að undan-
förnu.
SÚRDEIGIÐ MATAÐ Á VIKUFRESTI
ÁTT ÞÚ HEIMA Í
JÓLABÆNUM?
Við leitum söluaðila í snotur
jólahús og tjöld í Jólabænum
við Ingólfstorg. Líkt og
fyrri ár verður skipulögð
skemmtidagskrá alla daga og
fjöldi fólks sem bregður sér í
„bæinn“ til að gera jólainnkaup.
Jólabærinn sprettur upp í miðjum
desember og þú gætir flutt inn á fyrsta
degi ef þú tryggir þér pláss nógu snemma.
Sendu okkur fyrirspurn merkta
„Jólabærinn“ á midborgin@midborgin.is
Þar sem hjartað slær
www.midborgin.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
R
N
IR