Fréttablaðið - 20.09.2012, Síða 58
20. september 2012 FIMMTUDAGUR46
Spáin
N1-deild karla:
1. Haukar 237 stig
2. FH 193
3. ÍR 177
4. Akureyri 170
5. Afturelding 130
6. Fram 128
7. Valur 112
8. HK 103
N1-deild kvenna:
1. Valur 385 stig
2. Fram 367
3. Stjarnan 317
4. ÍBV 301
5. Grótta 252
6. HK 223
7. FH 202
8. Haukar 181
9. Fylkir 118
10. Selfoss 111
11. Afturelding 84
HANDBOLTI Það styttist í að hand-
boltatímabilið hefjist og í gær var
opinberuð spá þjálfara, fyrirliða
og forráðamanna í N1-deildunum.
Haukum og Val er spáð titl-
unum og kom það engum á óvart.
Það sem vakti mesta athygli er að
Íslandsmeisturum HK var spáð
falli úr deildinni en miklar breyt-
ingar hafa orðið á liði meistar-
anna.
„Þetta er ekkert áfall heldur
bara spá. Þessi spá er kannski
eðlileg miðað við hvernig undir-
búningstímabilið hefur gengið
hjá okkur,“ sagði Kristinn Guð-
mundsson, þjálfari HK, og bend-
ir á að ofan á allt séu talsverð
meiðsli í leikmannahópi félags-
ins.
„Þetta er mikil áskorun fyrir
okkur og öðruvísi en í fyrra. Við
höfum búið liðið undir langan
og strangan vetur. Við ætlum að
sanna að þetta sé kjaftæði.“
Kristinn segir að HK sé að
skoða það þessa dagana að fá
erlendan liðsstyrk og gæti liðs-
styrkur komið fljótlega.
„Það er ekkert launungarmál
að við viljum bæta við okkur
einum manni og horfum út fyrir
landsteinana.“ - hbg
Óvænt spá í handboltanum:
Meisturunum
spáð falli
FÓTBOLTI Það heldur áfram að gusta
um knattspyrnulið ÍBV í Pepsi-
deild karla en í gær hætti Magnús
Gylfason með liðið. Tímasetningin
vekur mikla athygli enda þrír mik-
ilvægir leikir eftir í baráttunni um
Evrópusæti.
Í gærkvöldi var svo greint frá
því að Hermann Hreiðarsson hefði
samþykkt að taka að sér þjálf-
un ÍBV. Tveggja ára samningur
verður undirritaður um helgina og
Hermann tekur formlega við lið-
inu að tímabilinu loknu. Það stað-
festi Óskar Örn Ólafsson, formað-
ur knattspyrnudeildar ÍBV.
„Það bjóst enginn við því að
þetta myndi ganga svona hratt
fyrir sig en koma Hermanns mun
gera mikið fyrir félagið,“ sagði
Óskar sem vildi ekki tjá sig um
ástæður þess að Magnús steig frá
borði í gær.
„Við ákváðum í sameiningu að
tjá okkur ekki um það mál og mun
ég standa við það,“ sagði Óskar.
Magnús hefur þurft að reka
Eyþór Helga Birgisson frá félaginu
ásamt því að setja markahrókinn
Tryggva Guðmundsson í agabann.
Það hefur því mikið gengið á.
Magnús staðfesti í gær að hann
hefði sjálfur ákveðið að hætta
og að honum hafi ekki verið sagt
upp. Hann vildi þó ekki veita viðtal
þegar eftir því var leitað.
Dragan Kazic aðstoðarþjálf-
ari og Ian David Jeffs, leikmaður
liðsins, munu stýra liðinu í síðustu
leikjunum.
Hermann er nú staddur í
Reykjavík en hann mun fljótlega
halda til Englands, þar sem hann
hefur spilað síðan hann fór frá ÍBV
árið 1998, og klára sín þjálfara-
réttindi. Hann mun svo stýra ÍBV
þegar undirbúningstímabilið hefst
seinna í haust.
„Við erum auðvitað mjög ánægð-
ir með að hafa fengið Hermann
aftur heim. Þetta var góð niður-
staða úr því sem komið var,“ sagði
Óskar en það á enn eftir að koma
í ljós hvort að Hermann muni svo
spila með liðinu á næsta tímabili.
„Það verður bara að koma í ljós
í hvernig standi hann verður. Eins
og hann sagði sjálfur þá skiptir
engu þótt hann heiti Hermann –
hann verður að vera betri en þeir
leikmenn sem eru fyrir í liðinu,“
sagði Óskar. Hermann er einn
reyndasti landsliðsmaður Íslands
frá upphafi og er á 38. aldursári.
ÍBV er í öðru sæti Pepsi-deildar
karla með 31 stig, rétt eins og KR
sem er með talsvert lakara marka-
hlutfall. Stjarnan, Breiðablik og ÍA
koma svo í næstu sætum á eftir en
aðeins tvö stig skilja þessi lið að.
Fram undan er því mikil barátta
um 2. og 3. sætið í deildinni sem
bæði veita sæti í forkeppni Evr-
ópudeildar UEFA á næsta ári. KR
hefur reyndar þegar tryggt sér
sæti í keppninni með sigri í bikar-
keppninni í ár.
ÍBV mætir Val á Vodafone-vell-
inum klukkan 17.00 en heil umferð
er á dagskrá deildarinnar í dag.
- esá, hbg
Hermann snýr aftur til Eyja
Magnús Gylfason hætti mjög óvænt sem þjálfari Pepsi-deildarliðs ÍBV í gær
en aðeins þrjár umferðir eru eftir af tímabilinu. Hermann Hreiðarsson gerði
munnlegt samkomulag í gærkvöldi um tveggja ára samning við félagið.
BÚIÐ SPIL Magnús er búinn að stýra sínum síðasta leik fyrir ÍBV eftir skrautlegt
sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Helena Ólafsdóttir var
í gær ráðin þjálfari meistara-
flokks kvenna hjá Val og tekur
hún við starfinu af Gunnari Rafni
Borgþórssyni. Gunnar Rafn tók
við Val árið 2010 og gerði liðið að
bikarmeisturum í fyrra.
Helena er einn reyndasti þjálf-
ari landsins og var síðast á mála
hjá FH. Hún hætti þar í júlí síð-
astliðnum. Helena hefur áður
verið þjálfari Vals en hún stýrði
liðinu frá 2002 til 2003.
Helena var einnig landsliðs-
þjálfari á sínum tíma en henni
er nú ætlað að móta nýtt og ungt
Valslið sem hafnaði í fjórða sæti
Pepsi-deildar kvenna á síðast-
liðnu tímabili. - esá
Þjálfaraskipti hjá Val:
Helena tekur
við af Gunnari
HELENA Hefur tekið við þjálfun Vals.
HANDBOLTI Handboltavertíð-
in hófst formlega í gær þegar
Meistarakeppni HSÍ fór fram í
karla- og kvennaflokki. Í kvenna-
leiknum höfðu Íslandsmeistarar
Vals betur gegn ÍBV, 29-19, þrátt
fyrir að hafa verið marki undir í
hálfleik.
Eyjastúlkur skoruðu aðeins
fjögur mörk í seinni hálfleik og
Valsmenn gengu á lagið. Ragn-
hildur Rósa Guðmundsdóttir og
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir
skoruðu sex mörk hvor fyrir Val
en Grigore Gorgata níu fyrir ÍBV.
Meistarakeppni HSÍ:
Öruggur sigur
Vals á ÍBV