Fréttablaðið - 02.10.2012, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 02.10.2012, Blaðsíða 28
2. október 2012 ÞRIÐJUDAGUR24 24 menning@frettabladid.is Breski sagnfræðingurinn Eric Hobsbawm lést í gær 95 ára að aldri. Guðmundur Hálfdánarson prófessor í sagnfræði segir að yfirlits- bækur Hobsbawm um 19. og 20. öldina og bækur um þjóðernisrannsóknir standi upp úr á löngum ferli fræði- mannsins. Breskir fjölmiðlar fjölluðu allir ítarlega um ævi og verk Erics Hobsbawm í gær enda einn þekkt- asti sagnfræðingur þarlendra. Hobsbawm var 95 ára þegar hann lést. Hann var virkur höfundur fram á síðustu ár ævi sinnar. Ein- ungis tvö ár eru síðan gaf hann út bókina How to Change the World þar sem hann færir rök fyrir gildi þess að þekkja og lesa kenningar Marx. Hobsbawm var marxisti og kommúnisti alla sína tíð, en hann hélt þó uppi harðri gagnrýni á það sem honum þótti miður fara í framkvæmd stefnunnar. Í minn- ingargrein breska dagblaðsins The Guardian er bent á að það hafi til að mynda verið fjöður í hans hatt að verk hans fengust aldrei útgef- in í Sovétríkjunum. Í sömu grein kemur fram að langt er síðan Hobsbawm öðlaðist viðurkenningu hægrisinnaðra kollega fyrir gríð- arlegt framlag sitt til sagnfræði. Guðmundur Hálfdánarson, pró- fessor í sagnfræði, segir að lífs- hlaup Hobsbawms og uppruni hafi veitt honum víðara sjónarhorn en flestra engilsaxneskra sagnfræð- inga. „Hann ólst fyrstu árin upp á meginlandi Evrópu og öðlaðist þannig tungumálaþekkingu og sjónarhorn sem honum tókst að nýta sér og miðla inn í fræðirit sín.“ Hobsbawm var barnabarn pólsks gyðings sem flutti til Bret- lands. Öll börn hans, þar á meðal faðir Hobsbawms, voru breskir ríkisborgarar. Móðir hans kom úr millistéttarfjölskyldu í Vínarborg og þar ólst hann upp sín fyrstu ár en hann fæddist í Egyptalandi. Þegar hann var 16 ára flutti hann til Berlínar til frænda síns en þá voru báðir foreldrar hans látnir. Þar vaknaði áhugi hans á stjórn- málum og þar varð hann komm- únisti. Hobsbawm lýsti því síðar hvernig það greyptist í minni hans þegar hann á leið heim úr skóla í ársbyrjun 1933 las fyrirsagnir blaða um að Hitler væri kominn til valda. Sama ár fluttist hann til Bretlands og náði þá fyrst að sögn Guardian góðum tökum á ensku. Guðmundur segir að tvennt muni halda nafni Hobsbawms á lofti. Annars vegar framlag hans til þjóðernisrannsókna, bækurnar Invention of Tradition, sem kom út árið 1983 í ritstjórn Hobsbawms, og Nations and Nationalism Since 1780, og hins vegar yfirlitsbæk- urnar um Evrópusögu frá frönsku byltingunni og til falls múrsins. „Bækur hans voru gríðarlega vel skrifaðar og það má segja að Öld öfganna, sem er líklega hans þekktasta rit, sé einstök að því leyti að hann var sjálfur fórnar- lamb og afurð þessarar aldar sem gerir sjónarhorn hans svo ein- stakt.“ sigridur@frettabladid.is islandsbanki.is | Sími 440 4000 Við bjóðum góða þjónustu Fáðu allt að 4,7% vexti LJÁÐU OKKUR EYRA Hádegistónleikar Fríkirkjunnar undir stjórn Gerrits Schuil hefja göngu sína á ný á morgun klukkan 12.15. Hvorki dagskrá né flytjendur eru auglýstir fyrir fram. Aðgangseyrir er 1.000 krónur. Ríflega 50 eintök eru seld af þeim 100 sem gefin voru út af hátíð- arútgáfu bókarinnar Íslenskir fuglar eftir Benedikt Gröndal. Bókin hefur verið til sýnis í Eymunds- son í Smáralind í rúma viku og að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá útgefanda bók- arinnar, Crymogeu, hefur verið stöðug- ur straumur fólks til skoða bókina og hefur eitt eintak selst á dag síðan sýningareintakið kom í Smáralind. Bókin er sú dýr- asta sem fæst á almennum mark- aði en hún kostar 230.000 krónur. Viðskiptavinir þurfa að setja upp sérstaka hlífðar- hanska áður en þeir handleika gripinn og hefur öryggisgæsla í versluninni verið aukin. B ó k i n e r nákvæm endur- gerð ha ndr its Benedikts Grön- dal (1826 -1907) sem hann gekk frá um aldamótin 1900. Hún er handinn- bundin í sérsútað sauðaleður frá Sjávarleðri á Sauð- árkróki af Ragnari Einarssyni bókbindara og er í sérsmíðuðum viðarkassa. - sbt Öryggisgæsla aukin vegna Íslenskra fugla UPPLIFÐI ÖLD ÖFGANNA Eric Hobsbawm tilheyrði „örlitlum hópi“ sagnfræðinga sem er þekktur um allan heim, sagði í Guardian í gær. Ritaskrá hans var býsna til- komumikil en yfirlitsrit hans fjögur um sögu Evrópu frá dögum frönsku byltingarinnar þykja öll afburðagóð og læsileg. Þau heita á frummálinu: The Age of Revolution: Europe 1789-1848 (1962), The Age of Capital: 1848-1875 (1975), The Age of Empire: 1875-1914 (1987) og The Age of Extremes: The Short Twent- ieth Century, 1914-1991. Hin síðast- nefnda kom út í íslenskri þýðingu Sverris Jakobssonar undir heitinu Öld öfganna. Hún var gefin út af Máli og menningu og er uppseld að sögn útgefanda. Þess má geta að hann gaf út ævisögu sína árið 2001 og bar hún heitið Interesting Times: A Twentieth-Century Life. ÞEKKTASTI SAGNFRÆÐINGUR HEIMS? ERIC HOBSBAWM „Er eitthvað sem Hobs- bawm veit ekki?“ var spurning sem félagar hans á námsárunum í Cambridge spurðu sig oft. Þess má geta að meðal nágranna hans þar var heimspekingur- inn Wittgenstein. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.