Fréttablaðið - 22.10.2012, Qupperneq 1
veðrið í dag
STJÓRNSÝSLA Nefnd lögfræðinga,
sem stjórnskipunar- og eftirlits-
nefnd Alþingis fékk til að fara yfir
drög stjórnlagaráðs að stjórnar-
skrá, skilar af sér skýrslu innan
tveggja vikna. Í kjölfarið verður
frumvarp um nýja stjórnarskrá
lagt fram á þingi.
Valgerður Bjarnadóttir, formaður
nefndarinnar, segir að gangi þetta
eftir eigi ekki að vera nein vand-
kvæði á því að ljúka fyrstu umræðu
um málið fyrir jól. Hún á ekki von á
að gerðar verði miklar breytingar á
drögum stjórnlagaráðs.
„Mér sýnist niðurstaðan vera
mjög skýr. Stjórnarandstaðan hefur
reyndar haft allt á hornum sér
varðandi málið og ef eitthvað sting-
ur hana meira í augun en annað tel
ég sjálfsagt að við förum yfir það.“
Hún muni gera sitt til að breikka
hópinn sem standi að baki málinu.
Birgir Ármannsson, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í nefndinni,
segir að komi frumvarp um nýja
stjórnarskrá fram á næstu vikum
sé ekki ólíklegt að það takist að
ljúka fyrstu umræðu fyrir jól. Hann
telur þó of snemmt að segja til um
hvort málið klárist fyrir kosningar.
„Öll málsmeðferð er eftir í
þinginu og það á eftir að reyna á
hversu mikið svigrúm þingmenn
telja sig hafa til að gera breytingar
á tillögum stjórnlagaráðs.“
Birgir segir að haft hafi verið
á orði að gera megi lagatæknileg-
ar breytingar, en ekki efnislegar.
Það geti þó verið þrautin þyngri
að skera úr um það. „Ef menn gera
athugasemdir við framsetningu
ákvæða, orðalag, hugtakanotk-
un og þess háttar geta menn lent í
klemmu við að ákvarða hvort þar sé
um að ræða lagatæknilegar breyt-
ingar eða efnislegar breytingar.“
Tveir þriðju kjósenda samþykktu
á laugardag að drög stjórnlagaráðs
skyldu verða grundvöllur að nýrri
stjórnarskrá. Alls greiddu 115.814
atkvæði, eða 48,9% kjósenda.
Valgerður segist vera ánægð með
þátttökuna og undir það tekur Sal-
vör Nordal, formaður stjórnlaga-
ráðs, sem segir hana meiri en hún
bjóst við. Birgir er þessu ósammála.
„Ég lít þannig á að það veiki tölu-
vert þau skilaboð sem ráða má út úr
þessari ráðgefandi atkvæðagreiðslu
að helmingur landsmanna skuli
kjósa að sitja heima.“ - kóp / sjá síðu 6
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Mánudagur
skoðun 12
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Fasteignir
Hugbúnaður
22. október 2012
248. tölublað 12. árgangur
þátttaka var
í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni.
48,9%
ÍSLENSKAR ULLAR-MOTTUR Gólfmott-urnar eftir Sigrúnu Láru Shanko og Sigríði Ólafsdóttur eru á leið á erlendan markað. Hér heima fást þær í Epal og Kraum.
MYNDIR/PJETUR
V ið hittumst fyrst á textílverkstæð-inu á Korpúlfsstöðum. Sigga gekk með þann draum í maganum að búa til gólfmottur en hún lærði fínflos-aðferð í Svíþjóð. Við stofnuðum saman fyrirtækið fyrir rúmu ári og samhliða því að standsetja húsnæðið unnum við hugmyndir og skissur. Við sýndum svo fyrstu motturnar í Epal á HönnunarMars 2012,“ útskýrir Sigrún Lára Shanko en hún rekur fyrirtækið Élivogar ásamt Sig-ríði Ólafsdóttur, textíl- og vöruhönnuði en þær hanna og framleiða gólfmottur úr hreinni, íslenskri ull. Boltinn fór strax að rúlla eftir Hönn-unarMars og í framhaldinu fengu þær stöllur umfjöllun í sænska Elle interiour og boð um þátttöku á hönnunarsýn-ingu í Helsinki. Þá voru þær meðal topp tíu hönnuða á HönnunarMars að mati wgsn.com.
„Motturnar sem fóru til Helsinki eru
þar enn á sýningu á heimili íslenska sendiherrans þar. Þá erum við að vinna
spennandi verk f i
spennandi í farvatninu,“ segir Sigrún.Munstrin á mottunum eru unnin upp
úr loftmyndum og landakortum af Ís-landi. Þær eru handunnar og því verður
engin þeirra alveg eins. „Við handteikn-
um munstrið á vefinn sem er strengdur
á ramma. Vélknúin nál festir þræðina
en framleiðslan sjálf tekur um það bil 5
daga. Hver motta er númeruð svo hægt
er að rekja sögu hennar, hvernig hún er unnin, af hverjum og hvaða litir eru
í henni. Þannig getum við lagað mottu
fyrir viðskiptavin með því að fletta upp
númerinu. Eins er hægt að sérpanta hjá okkur aðra liti í eitthvert munstur
eða koma með eigið munstur sem við
hjálpum til við að þróa í mottu.“Auk gólfmottanna hafa Sigrún og Sig-
ríður hafið framleiðslu á sessum, sem
þær kalla Piece of Iceland. „Við hugsum
þær eins og þúfur sem hægt er að kippa
með sér og setjast á úti. Við berum nátt-
úrulegt latex undir s þ
NÁTTÚRAN Á GÓLFÍSLENSK HÖNNUN Sigríður Ólafsdóttir og Sigrún Lára Shanko framleiða gólf-
mottur úr íslenskri ull. Munstrin eru unnin út frá loftmyndum og kortum.
JÓLIN NÁLGASTMörgum finnst jólin nálgast þegar jólaórói Georgs Jensen
kemur á markað, enda hefur hann söfnunargildi. Að þessu
sinni er hönnunin sótt til sögunnar um fæðingu Jesú en hún
á að tákna betlehemsstjörnuna. Rebecca Uth á heiðurinn af
hönnuninni að þessu sinni.FASTEIGNIR.IS22. OKTÓBER 2012
40. TBL.
Eignamiðlun kynnir: Glæsilegt, vel hannað 270 fm parhús á útsýnisstað í suðurhlíðum Kópavogs.
H úsið var byggt árið 1994 en endurnýjað árið 2006 eftir teikningum Halldóru Víf-ilsdóttur. Lítil stúdíóíbúð er í hús-inu sem hægt er að sameina aðal-íbúð. Vandaðar innréttingar, gegn-heilt parket á gólfum og flísar. Ljósahönnun frá Lumex. Í garði er stór timburverönd með heitum potti. Gengið er inn í forstofu á aðal-hæð. Á hæðinni er rúmgott hjóna-herbergi en inn af því er sér bað-herbergi. Tvö barnaherbergi eru hæðinni, þvottaherbergi og flísa-lagt baðherbergi með innréttingu og góðum sturtuklefa. Góður stigi er á milli hæða en á efri hæð er rúmgott eldhús með borðkrók við glugga og stórri eldaeyju. Svalir út af eldhúsi. Þá er flísalagt sjón-varpshol og rúmgóð stofa með fal-legu útsýni. Af millipalli er geng-ið út í bakgarðinn. Á jarðhæð er lítil íbú
skúr ása t stóru herbergi sem
nýtt er af efri hæð. Sérinngang-
ur er í íbúðina sem er ca 40 fm
og skiptist í: Forstofu, flísalagða
með skápum. Baðherbergi, flísa-
lagt með sturtu. Eldhúsaðstaða
með innréttingu. Inn af ldhherb
stærð eignarinnar 268,3 fm sem
skiptist í 24,0 fm bílskúr, 76,5 fm
íbúðarherbergi á jarðhæð, 79,7 fm
á 1.hæð (inngangshæð) og 88,1 fm
á 2.hæð. Húsið var stækk ðca 12 f á
Glæsilegt hús í Heiðarhjalla
Fallegt hús í suðurhlíðum Kópavogs.
Rúnar GíslasonLögg. fasteignasali
audur@fasteignasalan.is
Viltu selja?Vegna mikillar sölu vantar mig 2ja og 3ja herbergja íbúðir í hverfum 101 og 105 Reykjavík. Ákveðnir kaupendur bíða eftir réttu eigninni.
Talaðu endilega við Auði í síma 824-7772
eða audur@fasteignasalan.is
RE/MAX ALPHA • SKEIFUNNI 17 • 108 REYKJAVÍK • WWW.REMAX.IS
FRÍTT VERÐMATHRINGDU NÚNA
Sylvía G. Walthersdóttirsylvia@remax.is
820 8081Haukur Halldórsson, hdl.Löggiltur fasteignasali
Suðurlandsbraut 22 | Opið mán. – fös. frá kl. 9–17 | www.heimili.is
Finnbogi Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Erla Dröfn Magnúsdóttir lögfræðingur Ásdís Írena
Sigurðardóttirskjalagerð
Ruth
Einarsdóttirsölufulltrúi
Bogi
Pétursson
lögg.fasteignasali
Gústaf Adolf Björnsson
lögg. fasteignasali
Finndu okkur á Facebook
Kynningarblað Viðskiptahugbúnaður, vefumsjónarkerfi, lausnir á sviði innkaupastjórnunar og markaðssetning á netinu.
HUGBÚNAÐUR
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2012
&HUGBÚNAÐARGERÐ
9 dagar
í Hrekkjavöku
Hryllilegt ú
rval
af hræðileg
um
vörum!
Kraftmikið afmælisbarn
Bergþór Pálsson er 55 ára í dag en hann
segir að sítrónuvatn sé undrameðal
sem haldi honum kraftmiklum.
EFNILEGIR EVRÓPUMEISTARAR Ísland vann tvöfalt á Evrópumeistaramótinu í hópfimleikum í Árósum um helgina. Kvennasveitin varði
sinn titil og stúlknasveitin fagnaði einnig sigri. Stúlkurnar voru efstar eftir undankeppnina og tókst að fylgja því eftir með sigri í sjálfum úrslitunum á laugardag.
„Það þarf sterk bein til að halda forystunni eins og þær gerðu,“ segir Ásdís Guðmundsdóttir, einn Evrópumeistaranna. Sjá síðu 22 MYND/ÓLAFUR BJÖRNSSON
Ljúka fyrstu umræðu um
nýja stjórnarskrá fyrir jól
Lögfræðinganefnd skilar af sér skýrslu um stjórnarskrárdrög innan tveggja vikna. Frumvarp til nýrrar
stjórnarskrár lagt fram í kjölfarið. Stjórn og stjórnarandstaða búast við að fyrstu umræðu ljúki fyrir jól.
VÆTA SYÐRA Í dag verður yfirleitt
hæg austlæg átt og léttskýjað en
stífari vindur og væta S-til. Hiti 0-7
yfir daginn.
VEÐUR 4
5
3
3 0
0
Vogue myndar í Hörpu
Tískuritið Vogue myndar
tískuþátt í Hörpunni.
popp 26
Skoruðu þrjú í Úkraínu
Ísland er í góðri stöðu í
umspili fyrir úrslitakeppni
Evrópumótsins 2013.
sport 22
ORKUMÁL Mikið ber á milli í viðræð-
um Hafnarfjarðarbæjar og HS Orku
um endurgjald vegna fyrirhugaðrar
orkunýtingar á Krýsuvíkursvæðinu.
Gunnar Axel Axelsson, sem er
formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar-
bæjar og hefur leitt viðræðurnar
fyrir hönd bæjarins, telur líklegt
að bæjarráð muni slíta viðræðum
tímabundið á næstunni. Þær verði
svo mögulega teknar upp á ný síðar,
ef forsendur breytast.
„Ef nota á Krýsuvíkursvæðið til
orkuvinnslu, þarf virði svæðisins
að endurspeglast í tekjunum sem
Hafnar fjörður sem eigandi auðlind-
arinnar fær,“ segir Gunnar í samtali
við Fréttablaðið.
Hann segir orkuverð til stóriðju
hér á landi nú aðeins rétt standa
Mikið ber á milli í viðræðum um endurgjald fyrir orkunýtingu í Krýsuvík:
Hitaveituviðræður settar á ís
Jákvætt ferli
Það jafngildir því að segja
pass að fara ekki á kjörstað,
skrifar Guðmundur Andri
Thorsson.
skoðun 13
Auðlindarenta er
því ekki veruleg
um þessar
mundir og þess
vegna spurning
hvort ekki sé
skynsamlegra að bíða þar til
aðstæður verði hagstæðari.
GUNNAR AXEL AXELSSON
FORMAÐUR BÆJARRÁÐS HAFNARFJARÐAR
undir kostnaði við fjárfestingar og
lágmarksarðsemi.
„Auðlindarenta er því ekki veru-
leg um þessar mundir og þess vegna
spurning hvort ekki sé skynsam-
legra að bíða þar til aðstæður verði
hagstæðari heldur en að festa þetta
ástand til næstu áratuga með samn-
ingum.“
Gunnar segir vangaveltur um
orkuöflun HS Orku fyrir álver í
Helguvík hvergi koma að málinu,
enda hafi aldrei verið samið við
Hafnarfjörð um nýtingu í Krýsuvík.
Að sögn Gunnars eru umhverfis-
mál ekki síst mikilvæg í þessu efni.
Bæjaryfirvöld séu nú að vinna að
stefnumótun í umhverfismálum þar
sem afturkræfni sé höfð að sjónar-
miði við slíkar framkvæmdir.
„Það er aldrei fullkomlega mögu-
legt, en hafi menn þetta á bak við
eyrað frá byrjun er hægt að ná
þessu markmiði nokkuð vel.“ - þj