Fréttablaðið - 22.10.2012, Blaðsíða 45
MÁNUDAGUR 22. október 2012 17
Hið virta sænska neytendablað Råd & Rön gerði fyrir stuttu úttekt á
uppþvottavélum frá ýmsum framleiðendum og lagði mat sitt á þær.
Siemens uppþvottavélin SN45M205SK* kom þar einstaklega vel út og
hlaut 1. sætið. Hún þykir þvo og þurrka á sérlega skilvirkan og áhrifaríkan
hátt (Råd & Rön, apríl 2012). Matið var byggt á nokkrum þáttum, m.a. hve
vel vélin þvær óhreint leirtau, þvottatíma, þurrkun, orkunotkun,
vatnsnotkun og hversu hátt heyrist í henni. Þessi uppþvottavél er í
ecoPLUS-flokknum hjá Siemens, en í honum eru aðeins mjög spar-
neytin heimilistæki. Og sigurgangan heldur áfram. Í maí lenti vélin einnig
í 1. sæti hjá danska neytendablaðinu Tænk.
*Einnig fáanleg í stáli.
Smith & Norland er rótgróið fyrirtæki sem veitir góða þjónustu og býður
vandaðar vörur á góðum kjörum. Umboðsmenn um allt land.
www.sminor.is
Siemens uppþvottavélar fá hæstu einkunn
þriðja árið í röð!
GÓÐ KAUP
Í FYRSTA SÆTI
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Mánudagur 22. október 2012
➜ Umræður
20.00 Ólöf Örvarsdóttir og Sigur-
björn Kjartansson hafa umsókn með
Mánudagsspjalli og spekúlasjónum um
verkefnið Borg fyrir fólk í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi.
➜ Tónlist
21.00 Rusty Anderson og félagar
skemmta á Café Rosenberg.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Hafliði Sævarsson, viðskipta og
menningarfulltrúi íslenska sendiráðsins
í Peking heldur fyrirlestur í stofu L-101 í
Lögbergi Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn
fjallar um fjölgun ferðamanna til Íslands
frá Kína og er öllum opinn.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Bækur ★★ ★★★
Listasafnið
Sigrún Eldjárn
Mál og menning
Furður veraldar
í nútímaheimi
Listasafnið eftir Sigrúnu Eldjárn er lokabókin
í þríleik sem segir frá Rúnari sem flytur til
smáþorpsins Ásgarðs þegar faðir hans er skip-
aður nýr safnstjóri. Í húsinu úir og grúir af ýmiss
konar undrum og furðugripum og tekin er sú
ákvörðun að stofna þrjú ný söfn, forngripasafn,
náttúrugripasafn og listasafn. Í fyrstu tveimur
bókum þríleiksins er sagt frá stofnun forngripa-
og náttúrugripasafnsins og nú í seinustu bókinni
er komið að því að stofna listasafn Ásgarðs
á efstu hæð safnahússins.
Safnið í Ásgarði er svokallað Wunder-
kammern, söfnin sem stæðilegir greifar
og hertogar viðuðu að sér á sautjándu
öldinni, öld landafundanna þegar Evrópu-
menn sigldu alla heimskringluna og
sönkuðu að sér furðugripum, furðufólki
og furðulöndunum sjálfum. Furðugripir
Wunderkammern eru nú löngu horfnir
inn í safnkost risastórra nútímasafna en
í þessum bókaflokki gegna þeir aðalhlutverki. Sig-
rún leikur sér með hugmyndir hvernig við skiljum
og skilgreinum heiminn, hvort að undur veraldar
hverfi þegar furðugripir eru skrásettir og flokkaðir
niður í mismunandi deildir fræðigreinanna.
Og Sigrún gerir þetta afskaplega skemmtilega.
Ásgarður er smáheimur, þar sem nútíminn – og
umheimurinn – hefur innreið sína. Óskipulagður
glundroði fortíðarinnar er vandlega flokkaður
samkvæmt nútímavísindareglum og þorpsbúar
kynnast nýjum hugmyndum þegar söfnin laða
að sér erlenda gesti. Og ólíkt afdrifum Wun-
derkammern í heimi rökhyggjunnar, þá hverfa
furður veraldar ekki úr Ásgarði þrátt fyrir innreið
nútímans. Í fyrstu bókinni, Forngripasafninu,
vaknar draugastelpan Gunnhildur til lífsins, í Nátt-
úrugripasafninu kynnumst við flokki dverga sem
býr nágrenninu og í þessari seinustu bók sleppur
lítill dreki út úr einu listaverkinu og vekur til lífsins
eldfjall sem spúir eldstungum og ösku yfir þorpið.
Að þessu sögðu, þá er Listasafnið lakasta bók
þríleiksins. Sagan er vel skrifuð, en lesendur geta
engan veginn notið hennar án þess að hafa lesið
bækurnar sem á undan hafa komið. Söguhetjur
eru illa kynntar og sagan er ekki nægilega vel
uppbyggð til að geta haldið utan um allan þann
fjölda persóna sem birtast á blaðsíðum bókar-
innar. Sögumenn eru alltof margir og Sigrún, ólíkt
í fyrri tveim bókunum, fléttar söguþráðinn ekki í
kringum eitt, skýrt ævintýri. Rúnar og vinir hans,
systkinin Magga og Lilli, voru aðalsöguhetjurnar í
fyrstu tveim bókunum en í þessari bók hverfa þau
inn í fjöldann.
Hver veit, kannski getum við sagt að ringul-
reiðin og glundroðinn í sögunni séu viðeigandi
endalok bókaflokks sem sýnir börnum að
heimurinn okkar er enn undursamlegur, að
furður veraldar hverfi ekki þótt við beitum á
þau hávísindalegum flokkunarkenningum og
skrásetningarreglum. Og þó – það er erfitt að
dæma framhaldsbók sem er óskiljanleg án þess
að hafi lesið þær sem á undan komu. Ég er mjög
hrifin af bókaflokki Sigrúnar þegar á heildina er
litið og myndi gefa honum fjórar stjörnur, en ein
og sér fær Listasafnið aðeins tvær.
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir
Niðurstaða: : Hressilegur lokakafli í ævintýra-
legum þríleik um furður veraldar í nútímaheimi.
Flókinn söguþráður og illskiljanlegur fyrir lesendur
sem ekki hafa lesið fyrstu bækur bókaflokksins.
Margrét Bjarnadóttir opnaði
sína fyrstu ljósmyndasýningu á
Mokka á föstudag. Sýningin heit-
ir No Misunderstanding og sam-
anstendur af sextán ljósmyndum
sem Margrét hefur tekið síðustu
mánuði. Titill og inntak sýningar-
innar vísar til samnefnds sviðs-
verks sem sýnt var í Kassanum í
desember á síðasta ári.
Við gerð myndanna notaði Mar-
grét meðal annars spegla sem
framlengingu á líkamanum og
möguleikum hans.
Sýningin stendur til 29. október
og er opin daglega frá 9 til 18.30.
Framlengir
líkamann
ON MISUNDERSTANDING Margrét
Bjarnadóttir opnar ljósmyndasýningu.