Fréttablaðið - 22.10.2012, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 22.10.2012, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 22. október 2012 13 Kosningaþátttakan í fyrradag var ekki nógu léleg til að hægt sé að hundsa niðurstöðurnar. Hún var kannski ekki stórfengleg en nægileg til að taka verður kosningarnar alvarlega. Þeir landsmenn sem ekki fóru á kjör- stað eftirlétu hinum að kjósa fyrir sig. Þeir létu ógert að segja nei. Það að sitja heima jafngildir því kannski ekki að segja já – en það jafngildir þá ekki held- ur því að segja nei. Það jafngildir því að segja pass. Það jafngildir því að segja: Þið hin skuluð ákveða þetta. Sem er alveg fullgilt sjónarmið. Þau sem heima sátu voru ekki endilega að segja: Það á ekki að kjósa um þetta, heldur: Ég ætla ekki að kjósa um þetta; ég hef ekki vit/ áhuga/skoðun á þessu. Þannig er lýðræðið Gott og vel. Og svo afdráttarlaus voru svörin við þeim spurningum sem lagðar voru fyrir landsmenn að þingmenn hljóta að taka ríkulega tillit til þeirra í sinni mikilvægu vinnu. Í þessum kosningum lögðum við þing- mönnum línurnar um það hvernig hún á að fara fram. Það er gott veganesti fyrir þessa þjóðarþjóna. Þannig er það raunar í öllum kosningum, þó að það vilji gleym- ast í okkar ógagnsæja kerfi. Þannig er lýðræðið. Og þó að þessar kosningar hafi verið sagðar ráðgefandi og þó að Alþingi taki nú lögum samkvæmt við málinu og vinni það áfram í samræmi við ábend- ingar sérfræðinganefnda um það sem betur má fara – og er mjög mikilvægt að hlustað sé á – þá hljóta þingmenn að taka mið af þeim meginlínum sem lagðar voru í þessum kosningum. Þeir geta ekki látið sem þær hafi aldrei átt sér stað. Hversu gjarnan sem þeir vildu. Við eigum í vændum lýðræðisbyltingu í kjölfar þess að atkvæði okkar verða gegnsærri; fulltrúar okkar á þingi gætu orðið raunverulega kosnir af okkur en atkvæðið manns lendir ekki lengur í óskiljanlegri herleiðingu hringinn kring- um landið þar sem það endar kannski hjá einhverjum sem stendur fyrir allt það sem maður er á móti. Misvægi atkvæða hefur ekki komið í veg fyrir það að fámennari byggðarlög hafi lent í víta- hring mannfæðar og fábreyttra atvinnu- og menningarhátta en hins vegar skapað nokkurs konar furstadæmi þar sem öfl- ugir þingmenn hafa í krafti aðgangs að uppsprettulindum fjármagns og valda „fyrir sunnan“ byggt upp öflugt kerfi þar sem „sambönd“ eru lykilorðið. Við eigum að vísu eftir að sjá hvernig aukin áhersla á persónukjör hefur áhrif á þetta kerfi – og sjálfur hef ég alltaf verið svo- lítið efins um þessa viðteknu hugmynd um „Fjórflokkinn“ þar sem allir séu eins; svo nefnt sé nærtækt dæmi: hvenær hefði svona þjóðaratkvæðagreiðsla farið fram í valdatíð hægri flokkanna? Þjóðareign Ákvæðið um að náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu skuli lýstar þjóðar- eign er mikilvægt og þess að vænta að það verði í nýrri stjórnarskrá sem næst þeirri mynd sem kjósendur samþykktu. Kunnir fræðimenn hafa tekið sér fyrir hendur að sanna, svo að ekki verði um villst, að ranglætið borgi sig alltaf og misskiptingin leiði ævinlega til velfarn- aðar sem aukist eftir því sem eign á sam- eiginlegum auðlindum og arður af þeim færist á færri hendur. En hversu oft og hversu rækilega sem sýnt er fram á þjóð- hagslega hagkvæmni ranglætis og mis- skiptingar þá er eins og fólkið – eða veru- leikinn – láti sér ekki segjast og því var þetta ákvæði samþykkt í fyrradag með miklum meirihluta. Við megum þá vænta þess að hannesarsmárasynir framtíðar- innar geti ekki „keypt“ út á krít nátt- úrugersemar og veðsett síðan til að eiga skotsilfur; að óveiddur fiskur í sjónum sé sameiginleg eign þjóðarinnar og sann- gjarnt verð renni til sameiginlegra sjóða af nýtingu hans, rétt eins og tíðkast til að mynda í Noregi af vinnslu olíu. Þegar maður horfði á Silfrið í gær, á fulltrúa flokkanna túlka niðurstöður hvern með sínum hætti, eins og þeim ber vissulega að gera enda fulltrúar ólíkra lífsviðhorfa og sjónarmiða – þá fór hins vegar ekki hjá því að maður fyndi vissan leiða á því að sitja undir þjarkinu og þessu sífellda togi um að „hafa orðið“, eins og orðið sé eins konar bolti sem maður á að sóla með og „skýla“. Maður fyllist óþoli og ókyrrð við að horfa á svona samræð- ur. Það rifjaðist upp hvernig þetta var í Stjórnlagaráði sem komst að einróma nið- urstöðu, þrátt fyrir að þar væru ákaflega ólíkir einstaklingar sem voru fulltrúar mjög ólíkra sjónarmiða. Á stjórnlaga- þinginu talaði þetta fólk saman á einhvern alveg nýjan hátt: af virðingu fyrir stöðu sinni og hvert öðru – og okkur kjósendum. Ný stjórnmál. Það er eitthvað fallegt við þetta ferli, eitthvað hátíðlegt, eitt- hvað mjög jákvætt. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA Það er hugulsamt að láta GSM númer viðtakanda fylgja þegar þú sendir pakka. Þá fær viðtakandi SMS þegar pakkinn er kominn á áfangastað og getur sparað sér fyrirhöfn. LÁTTU SENDA SMS MEÐ PAKKANUM www.postur.is Jákvætt ferli Við megum þá vænta þess að hannesarsmára- synir framtíðarinnar geti ekki „keypt“ út á krít náttúrugersem- ar og veðsett síðan til að eiga skotsilfur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.