Fréttablaðið - 22.10.2012, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 22. október 2012 13
Kosningaþátttakan í fyrradag var ekki nógu léleg til að hægt sé að hundsa
niðurstöðurnar. Hún var kannski ekki
stórfengleg en nægileg til að taka verður
kosningarnar alvarlega.
Þeir landsmenn sem ekki fóru á kjör-
stað eftirlétu hinum að kjósa fyrir sig.
Þeir létu ógert að segja nei. Það að sitja
heima jafngildir því kannski ekki að
segja já – en það jafngildir þá ekki held-
ur því að segja nei. Það jafngildir því að
segja pass. Það jafngildir því að segja:
Þið hin skuluð ákveða þetta. Sem er
alveg fullgilt sjónarmið. Þau sem heima
sátu voru ekki endilega að segja: Það á
ekki að kjósa um þetta, heldur: Ég ætla
ekki að kjósa um þetta; ég hef ekki vit/
áhuga/skoðun á þessu.
Þannig er lýðræðið
Gott og vel. Og svo afdráttarlaus voru
svörin við þeim spurningum sem lagðar
voru fyrir landsmenn að þingmenn hljóta
að taka ríkulega tillit til þeirra í sinni
mikilvægu vinnu.
Í þessum kosningum lögðum við þing-
mönnum línurnar um það hvernig hún á
að fara fram. Það er gott veganesti fyrir
þessa þjóðarþjóna. Þannig er það raunar
í öllum kosningum, þó að það vilji gleym-
ast í okkar ógagnsæja kerfi. Þannig er
lýðræðið. Og þó að þessar kosningar hafi
verið sagðar ráðgefandi og þó að Alþingi
taki nú lögum samkvæmt við málinu og
vinni það áfram í samræmi við ábend-
ingar sérfræðinganefnda um það sem
betur má fara – og er mjög mikilvægt að
hlustað sé á – þá hljóta þingmenn að taka
mið af þeim meginlínum sem lagðar voru
í þessum kosningum. Þeir geta ekki látið
sem þær hafi aldrei átt sér stað. Hversu
gjarnan sem þeir vildu.
Við eigum í vændum lýðræðisbyltingu
í kjölfar þess að atkvæði okkar verða
gegnsærri; fulltrúar okkar á þingi gætu
orðið raunverulega kosnir af okkur en
atkvæðið manns lendir ekki lengur í
óskiljanlegri herleiðingu hringinn kring-
um landið þar sem það endar kannski hjá
einhverjum sem stendur fyrir allt það
sem maður er á móti. Misvægi atkvæða
hefur ekki komið í veg fyrir það að
fámennari byggðarlög hafi lent í víta-
hring mannfæðar og fábreyttra atvinnu-
og menningarhátta en hins vegar skapað
nokkurs konar furstadæmi þar sem öfl-
ugir þingmenn hafa í krafti aðgangs að
uppsprettulindum fjármagns og valda
„fyrir sunnan“ byggt upp öflugt kerfi
þar sem „sambönd“ eru lykilorðið. Við
eigum að vísu eftir að sjá hvernig aukin
áhersla á persónukjör hefur áhrif á þetta
kerfi – og sjálfur hef ég alltaf verið svo-
lítið efins um þessa viðteknu hugmynd
um „Fjórflokkinn“ þar sem allir séu eins;
svo nefnt sé nærtækt dæmi: hvenær
hefði svona þjóðaratkvæðagreiðsla farið
fram í valdatíð hægri flokkanna?
Þjóðareign
Ákvæðið um að náttúruauðlindir sem
ekki eru í einkaeigu skuli lýstar þjóðar-
eign er mikilvægt og þess að vænta að
það verði í nýrri stjórnarskrá sem næst
þeirri mynd sem kjósendur samþykktu.
Kunnir fræðimenn hafa tekið sér fyrir
hendur að sanna, svo að ekki verði um
villst, að ranglætið borgi sig alltaf og
misskiptingin leiði ævinlega til velfarn-
aðar sem aukist eftir því sem eign á sam-
eiginlegum auðlindum og arður af þeim
færist á færri hendur. En hversu oft og
hversu rækilega sem sýnt er fram á þjóð-
hagslega hagkvæmni ranglætis og mis-
skiptingar þá er eins og fólkið – eða veru-
leikinn – láti sér ekki segjast og því var
þetta ákvæði samþykkt í fyrradag með
miklum meirihluta. Við megum þá vænta
þess að hannesarsmárasynir framtíðar-
innar geti ekki „keypt“ út á krít nátt-
úrugersemar og veðsett síðan til að eiga
skotsilfur; að óveiddur fiskur í sjónum sé
sameiginleg eign þjóðarinnar og sann-
gjarnt verð renni til sameiginlegra sjóða
af nýtingu hans, rétt eins og tíðkast til að
mynda í Noregi af vinnslu olíu.
Þegar maður horfði á Silfrið í gær,
á fulltrúa flokkanna túlka niðurstöður
hvern með sínum hætti, eins og þeim ber
vissulega að gera enda fulltrúar ólíkra
lífsviðhorfa og sjónarmiða – þá fór hins
vegar ekki hjá því að maður fyndi vissan
leiða á því að sitja undir þjarkinu og þessu
sífellda togi um að „hafa orðið“, eins og
orðið sé eins konar bolti sem maður á að
sóla með og „skýla“. Maður fyllist óþoli
og ókyrrð við að horfa á svona samræð-
ur. Það rifjaðist upp hvernig þetta var í
Stjórnlagaráði sem komst að einróma nið-
urstöðu, þrátt fyrir að þar væru ákaflega
ólíkir einstaklingar sem voru fulltrúar
mjög ólíkra sjónarmiða. Á stjórnlaga-
þinginu talaði þetta fólk saman á einhvern
alveg nýjan hátt: af virðingu fyrir stöðu
sinni og hvert öðru – og okkur kjósendum.
Ný stjórnmál. Það er eitthvað fallegt
við þetta ferli, eitthvað hátíðlegt, eitt-
hvað mjög jákvætt.
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Í DAG
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
Það er hugulsamt að láta GSM númer viðtakanda
fylgja þegar þú sendir pakka. Þá fær viðtakandi
SMS þegar pakkinn er kominn á áfangastað og
getur sparað sér fyrirhöfn.
LÁTTU SENDA SMS
MEÐ PAKKANUM
www.postur.is
Jákvætt ferli
Við megum þá vænta
þess að hannesarsmára-
synir framtíðarinnar geti ekki
„keypt“ út á krít náttúrugersem-
ar og veðsett síðan til að eiga
skotsilfur.