Fréttablaðið - 22.10.2012, Side 11
MÁNUDAGUR 22. október 2012 11
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
2
-1
7
5
1
Fundurinn verður haldinn í Arion banka, Borgartúni 19,
þriðjudaginn 23. október.
Húsið verður opnað kl. 19.00 – pítsa og gos.
Fundurinn byrjar stundvíslega kl. 19.30.
Nánari upplýsingar og skráning á arionbanki.is
Jón Jónsson, tónlistarmaður og hagfræðingur, fræðir ungt fólk
á skemmtilegan hátt um fjármál.
FRÆÐSLUFUNDUR UM PENINGA
FYRIR FÓLK Á FRAMHALDSSKÓLAALDRI
Hvernig virka peningar?
Mikilvægi þess að setja sér markmið
Hvernig er hægt að láta peninginn
endast aðeins lengur?
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
2
-1
7
5
1
Þátttakendur um námskeiðið:
„Frábært, öðruvísi, skemmtilegt“
„Kom á óvart hvað ég kosta á mánuði“
„Hélt athygli allan tímann“
FRÁ UNDIRRITUN Árni Sigfússon,
bæjarstjóri Reykjanesbæjar og KC Tran,
forstjóri CRI.
ORKUMÁL Reykjanesbær og
Carbon Recycling International
(CRI) hafa samið um uppbygg-
ingu og þróun umhverfisvæns
efnavinnslugarðs í Helguvík.
„Hugmyndafræðin byggist
á því að samnýta orkuna milli
samtengdra fyrirtækja og nýta
útblástur og úrgang eins fyrir-
tækis sem innflæði í næsta
fyrirtæki,“ segir í tilkynningu,
en í garðinum er að finna þrjár
grunneiningar; álversklasa, elds-
neytis- og efnavinnsluklasa og
kísilmálmklasa. „Með þessari
útfærslu er hægt að nýta orkuna
allt að helmingi betur og minnka
mengun umtalsvert miðað við
það að hvert fyrirtæki stæði eitt
og ótengt öðrum.“ - óká
Orkuverkefni í Helguvík:
Samnýta orku
fyrirtækjanna
DÓMSTÓLAR Forsvarsmaður smíða-
fyrirtækis í Reykjavík gæti átt
von á 50 til 60 milljóna króna sekt
verði hann fundinn sekur um und-
anskot á virðisaukaskatti og opin-
berum gjöldum árin 2008 til 2011.
Mál á hendur manninum, sem
er 41 árs gamall, var þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu
viku.
Fest er í lög að upphæð sektar
fyrir undanskot skatta nemi þre-
faldri upphæð undanskotsins.
Samkvæmt ákæru skilaði mað-
urinn ekki virðisaukaskatti sem
nemur tæplega 16,8 milljónum
króna og tæplega 2,1 milljón af
opinberum gjöldum. - óká
Stakk undan VSK og gjöldum:
Á von á tug-
milljóna sekt
DÓMSTÓLAR Ungur maður er
ákærður fyrir þrjár líkamsárás-
ir sem áttu sér stað fyrir framan
Hressingarskálann og inni í versl-
un 10-11 í Lækjargötu í Reykjavík
aðfaranótt laugardagsins 21. ágúst
2010. Þá var hann tvítugur.
Fram kemur í ákæru að fyrsta
árásin teljist sérlega hættuleg. Þá
sló hann mann í andlitið og spark-
aði ítrekað í höfuð hans og líkama
þar sem hann lá í jörðinni. Í versl-
un 10-11 réðst hann svo fyrst á
stúlku og svo á annan mann.
Sá sem fyrst varð fyrir árás við
Hressó krefst tæplega 1,3 millj-
óna króna í bætur. Hinn maðurinn
krefst 850 þúsund króna, en stúlk-
an einskis. - óká
Barði mann og annan:
Bótakröfur upp
á 2,15 milljónir
BÍÐUR EFTIR VIÐSKIPTAVINUM Á
búgripamarkaði í Pakistan beið þessi
úlfaldasali eftir viðskiptavinum.
NORDICPHOTOS/AFP
FRAKKLAND Vitnisburður Zainab al-Hilli, sjö
ára stúlku sem lifði af skotárás í Frakk-
landi, hefur breytt þeirri mynd sem franska
lögreglan hafði gert sér af atburðarásinni.
Svo virðist sem hjólreiðamaður, sem
fannst látinn skammt frá bifreið fjölskyldu
stúlkunnar, hafi fyrst verið skotinn.
Að því búnu hafi morðinginn beint vopni
sínu að föður stúlkunnar, sem hafði séð það
sem gerðist. Loks hafi hann snúið sér að
öðrum úr fjölskyldunni sem sátu í bifreið-
inni.
Foreldrar stúlkunnar létu þar lífið ásamt
ömmu hennar, en sjálf særðist hún illa af
skotsári. Systir hennar, hin fjögurra ára
gamla Zeena, lifði einnig af skotárásina með
því að fela sig undir fótum móður sinnar í
aftursæti bifreiðarinnar.
Svo virðist sem faðirinn, Saad al-Hilli,
hafi verið fyrir utan bifreiðina ásamt eldri
stúlkunni þegar skotið var á hjólreiðamann-
inn. Hann hafi síðan reynt að aka burt, en
fest bílinn í gljúpum jarðvegi og þar af
leiðandi hafi fjölskyldan ekki komist undan
morðingjanum.
Með rannsókn á vettvangi hefur að sögn
lögreglu tekist að staðfesta frásögn stúlk-
unnar.
Fjölskyldan bjó í Bretlandi en var á ferða-
lagi í Frönsku Ölpunum þegar morðinginn
varð á vegi hennar.
- gb
Sjö ára stúlka veitir mikilvægar upplýsingar um morðin sem framin voru í Frönsku ölpunum í september
Hjólreiðamaðurinn var skotinn fyrst
MORÐSTAÐURINN Í FRÖNSKU ÖLPUNUM Tvær breskar
stúlkur, sjö og fjögurra ára, lifðu skotárásina af.
NORDICPHOTOS/AFP