Fréttablaðið - 22.10.2012, Blaðsíða 16
FÓLK|HEIMILI
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
HEIMA VIÐ | BERGÞÓR PÁLSSON, SÖNGVARI
■ Bergþór Pálsson söngvari er 55 ára í
dag og hefur í nógu að snúast bæði við
söng og heimastörf. Hann gaf sér þó
tíma til að svara nokkrum léttum spurn-
ingum.
Hvað ert þú helst að fást við þessa
dagana? Eins og venjulega er ég að sýsla
við undirbúning á hinum og þessum
tækifærissöng við brúðkaup, jarðarfarir,
afmæli o.s.frv. Auk þess þarf ég alltaf að
hugsa til lengri tíma, í augnablikinu er ég
að vinna í dagskrá fyrir tónleika í Wash-
ington í vor. Auk þess kenni ég svolítið.
Stendur þú í einhverjum framkvæmd-
um á heimilinu eða hefur nýlokið við?
Varla er hægt að kalla það framkvæmdir,
en fyrir skömmu málaði ég útidyra-
hurðina í sænskrauðum lit og er býsna
hamingjusamur með það.
Ertu duglegur að breyta og bæta heima
við? Ég held að undirmeðvitundin sé
alveg að fara að ákveða dag til að fara í
geymsluna. Það er með ólíkindum hvað
maður getur safnað að sér drasli sem
engin not eru fyrir, en af einhverjum
óskiljanlegum ástæðum hummar maður
alltof oft fram af sér að ráðast á það.
Eins og það er nú gaman þegar það er
búið! Mér finnst gaman að færa til hús-
gögn og skipta út skrautmunum (sem
stundum finnast í geymslunni þegar
maður lagar þar til!), en ég er samt til-
tölulega ánægður með fyrirkomulagið
eins og það er.
Er einhver hlutur sem þig langar sér-
staklega mikið í þessa dagana? Ég ríf oft í
hár mér þegar ég er að reyna að ná sléttri
plastfilmu úr pakkanum, þannig að mig
langar í plastrúllu upp á vegg, en hef ekki
fundið. Þar sem ég á afmæli í dag, verður
mér kannski að ósk minni (er ekki hægt að
síkríta svona?).
Hver er uppáhaldshluturinn þinn í eld-
húsinu? Sítrónupressan fína. Sítrónuvatn
er undrameðal sem heldur mér kraft-
miklum, meðan kaffi gerir mig slappan og
þreyttan.
Hver er uppáhaldsstaðurinn
þinn á heimilinu? Hornið í
sjónvarpssófanum þar sem
ég vinn alltaf ýmislegt í
höndum og anda niður í
kvið til að reyna að halda
jafnvægi í lífsins ólgusjó,
meðan sjónvarpið malar.
Oft skrúfa ég samt niður í
því. Stundum skiptir mað-
ur um stöð, en ánægðast-
ur var ég þegar ég upp-
götvaði að ég gat hlustað
á Rás 1 í sjónvarpinu. Það
er svo heimilislegt!
FAGURKERI
Bergþór Pálsson er
nokkuð ánægður með
heimilið sitt.
HAMINGJUSAMUR MEÐ ÚTIHURÐINA
Nýtt námskeið hefst 26. septemberNýtt námskeið hefst 24. ok óber
BÓKHALD, ÁRSREIKNINGAGERÐ,
SKATTARÁÐGJÖF.
Fæst í heilsubúðum, apótekum og
heilsuhillum stórmarkaðanna.
Í Konjak eru náttúrulegar glucomannan trefjar sem einnig bæta meltinguna.
Viðurkennt af EFSA Matvælastofnun Evrópu
VILT ÞÚ LÉTTAST HRATT
OG ÖRUGGLEGA?
www.gengurvel.is
Taktu inn 2 töflur af KONJAK + STÓRT
glas af vatni 3x á dag hálftíma fyrir máltíð
Þegar töflurnar leysast upp í maga myndast massi
sem fyllir vel upp í magasekkinn og veldur seddu-
tilfinningu og þú borðar minna!
Líður þér eins og
að sjóði á þér?
Hita- og svitakóf er oft fylgikvilli breytingarskeiðs kvenna
Chello hefur bætt líðan fjölda kvenna á
þessu annars frábæra tímaskeiði.
Chello er náttúrulegt efni og fæst í þremur tegundum:
Chello fæst í heilsubúðum, apótekum
og heilsuhillum stórmarkaðanna
Náttúruleg lausn á
breytingarskeiðinu
www.gengurvel.is
facebook:
Chello fyrir
breytingarskeiðið
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Grænn án
Soja
Rauður fyrir konur
yfir fimmtugt
Blár fyrir konur
undir fimmtugt
BESTU BROTIN ÚR
ÍSLANDI Í DAG
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
www.saft.is
ÞÚ BERÐ ÁBYRGÐ
Á ÞVÍ SEM ÞÚ SEGIR
OG GERIR Á NETINU!