Fréttablaðið - 22.10.2012, Qupperneq 41
| FÓLK | 3HEIMILI
■ FALLEGT Skandinavísk
hönnun hefur alltaf þótt eftir-
sóknarverð. Vinsældir hennar
hafa þó aukist til muna á
undanförnum árum, sérstak-
lega hjá ungu fólki. Vörumerki
eins og Iittala frá Finnlandi
sést orðið víða. Reyndar voru
þær vörur afar vinsælar á sjö-
unda og áttunda áratug síðust
aldar en vinsældirnar dvínuðu
síðan um tíma. Annað norrænt
merki, Bang & Olufsen, hefur
aldrei farið úr tísku. Það þykir
bera vott um smekkvísi og
góðan efnahag að
velja það merki.
Skandinavísk
hönnun kom fyrst
fram árið 1950.
Hönnunin átti
það sammerkt
að einkennast af
einfaldleika þótt
hún hefði glæsilegt
yfirbragð. Í fyrstu
var reynt að hafa
hönnunina á viðráðanlegu
verði fyrir alla með lágmarks
framleiðslukostnaði. Hún
hefur þróast yfir í að vera bæði
vönduð og dýr.
Þessi norræna hönnun hefur
með árunum orðið umfjöllunar-
efni helstu arkitekta og fræði-
manna þegar fjallað er um
afbragðs hönnun. Fyrir utan
ofantöld fræg Skandinavísk
vörumerki má nefna, Arabia
frá Finnlandi, Electrolux frá
Svíþjóð, IKEA frá Svíþjóð,
Georg Jensen frá Danmörku,
Marimekko frá Finnlandi, Royal
Copenhagen frá Danmörku og
Orrefors frá Svíþjóð. Fatamerki
hafa sömuleiðis náð miklum
vinsældum og má þar nefna
H&M og Filippa K svo einhverj-
ir séu nefndir.
Þá eru ótaldir gamlir
meistarar á borð
við Arne
Jacobsen
og Alvar
Aalto og
svo ein-
hverjir
séu
nefndir.
EFTIRSÓTT
HÖNNUN
■ VÖRUR FRÁ VÍK PRJÓNS Í SKANDINAVÍU
Vörur Víkur Prjónsdóttur eru nú fáanlegar í versl-
uninni Karrusel í Kaupmannahöfn en Karrusel var
stofnuð fyrr á þessu ári af Sigríði Ellu Jónsdóttur,
Kristínu Kristjánsdóttur og Hrafnhildi Guðrúnar-
dóttur. Þá stendur yfir sýningin Smart Process í
Helsinki þar sem Vík Prjónsdóttir er meðal þátt-
takenda og sýnir værðarvoðir og trefla.
VÍK PRJÓNSDÓTTIR Í KARRUSEL
KOMDU MEÐ MÁLIN og við
hönnum, teiknum og gerum
þér hagstætt tilboð
FAGMENNSKA Í FYRIRRÚMI
Þú nýtur þekkingar og
reynslu og fyrsta flokks
þjónustu.
VIÐ KOMUM HEIM TIL ÞÍN,
tökum mál og ráðleggjum
um val innréttingar.
ÞÚ VELUR að kaupa inn-
réttinguna í ósamsettum
einingum, samsetta, eða
samsetta og uppsetta.
HREINT OG KLÁRT
Við sníðum innrétt-
inguna að þínum
óskum. Þú getur fengið
skúffur og útdregin
tauborð undir véL-
arnar, einnig útdreginn
óhreinatausskáp,
kústaskáp o.m.fl .
Fataskápar og sérsmíði
Baðherbergi
Uppþvottavélar
Helluborð Ofnar
Háfar
RAFTÆKI
TILBOÐ
AFSLÁTTUR
25%
AF ÖLLUM
INNRÉTTING
UM
Í OKTÓBER
GÓ KAUP
VEGNA GÓÐRA UNDIRTEKTA HÖFUM VIÐ
ÁKVEÐIÐ AÐ FRAMLENGJA HAUSTTILBOÐ
OKKAR UM EINN MÁNUÐ
NÚ ER LAG AÐ GERA
Glæsilegar innréttingar á tilboðsverði
Vandaðar hillur Pottaskápar Þvottahúsinnréttingar
ÁBYRGÐ - ÞJÓNUSTA
Fríform annast alla þjónustu.
(Trésmíðaverkstæði, raftækjaviðgerðaverkstæði).
VÖNDUÐ RAFTÆKI
Á VÆGU VERÐI
friform.is
Viftur