Fréttablaðið - 22.10.2012, Qupperneq 48
22. október 2012 MÁNUDAGUR20
sport@frettabladid.is
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN skoraði mark Cercle Brugge í 2-1 tapi liðsins fyrir Mechelen í belgísku
úrvalsdeildinni um helgina. Þetta var hans fyrsti leikur í byrjunarliði og annað mark í jafnmörgum leikjum en
Eiður gekk til liðs við félagið fyrr í mánuðinum. Cercle Brugge er þó neðst í deildinni með fjögur stig.
Lengjubikar karla
Breiðablik - Tindastóll 59-76 (30-33)
Keflavík - Haukar 105-70 (58-35)
KR - KFÍ 91-76 (48-39)
Fjölnir - Stjarnan 88-103 (46-58)
EHF-bikar kvenna
Tertnes IL - Fram 35-21 (15-10)
Fram - Tertnes IL 21-18 (10-6)
Tertnes IL vann samanlagt, 53-42. Báðir leikirnir
fór fram á heimavelli Fram.
Valur - Valencia 35-27 (18-10)
Valur vann samanlagt, 64-47. Báðir leikirnir fóru
fram á Spáni.
EHF-bikar karla
HK - RK Maribor Branik 25-42 (11-20)
RK Maribor Branik - HK 35-25 (19-11)
RK Maribor Branik vann samanlagt, 77-50. Báðir
leikirnir fóru fram í Slóveníu.
N1-deild karla
Fram - ÍR 34-27 (16-11)
Haukar - Valur 28-23 (15-11)
Mörk Hauka (skot): Stefán Rafn Sigurmannsson
7/5 (9/6), Árni Steinn Steinþórsson 7 (10), Gylfi
Gylfason 6 (8), Jón Þorbjörn Jóhannsson 3 (4),
Adam Haukur Baumruk 2 (3), Tjörvi Þorgeirsson 2
(6), Gísli Jón Þórisson 1 (4), Gísli Kristjánsson (1),
Varin skot: Giedrius Morkunas 7 (18, 39%), Aron
Rafn Eðvarðsson 5/1 (17/2, 29%).
Hraðaupphlaup: 7 (Árni St. 2, Gylfi 4, Adam 1).
Fiskuð víti: 6 (Stefán Rafn 1, Árni Steinn 1, Jón
Þorbjörn 2, Adam 1, Gísli 1)
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Vals (skot): Gunnar Malmquist 5/1 (6/1),
Finnur Ingi Stefánsson 5 (9), Atli Már Báruson 4
(8/1), Magnús Einarsson 3 (6), Gunnar Harðarson
2 (2), Hjálmar Þór Arnarson 1 (1), Sigfús Sigurðs-
son 1 (1), Daði Laxdal Gautason 1 (4), Agnar
Smári Jónsson 1 (5).
Varin skot: Lárus Helgi Ólafsson 5/1 (15/2, 33%),
Hlynur Morthens 3 (21/4, 14%).
Hraðaupphlaup: 8 (Gunnar 3, Finnur Ingi 2, Atli
Már 1, Gunnar 1, Daði Laxdal 1)
Fiskuð víti: 2 (Atli Már 1, Magnús 1)
Utan vallar: 2 mínútur.
N1-deild kvenna
Grótta - Stjarnan 19-27 (8-14)
Fylkir - Afturelding 16-14 (9-8)
HK - Selfoss 27-25 (12-13)
FH - Haukar 25-21 (11-10)
Enska úrvalsdeildin
Fulham - Aston Villa 1-0
1-0 Chris Baird (83.).
Liverpool - Reading 1-0
1-0 Raheem Sterling (28.).
Manchester United - Stoke 4-2
1-1 Wayne Rooney (26.), 2-1 Robin van Persie
(43.), 3-1 Danny Welbeck (45.), 3-2 Michael Kig-
htly (58.), 4-2 Wayne Rooney (64.).
Norwich - Arsenal 1-0
1-0 Grant Holt (19.).
Swansea - Wigan 2-1
1-0 Pablo (64.), 2-0 Michu (66.), 2-1 Emmerson
Boyce (68.).
Tottenham - Chelsea 2-4
0-1 Gary Cahill (16.), 1-1 William Gallas (46.), 2-1
Jermain Defoe (53.), 2-2 Juan Mata (65.), 2-3 Juan
Mata (68.), 2-4 Daniel Sturridge (90.).
West Brom - Manchester City 1-2
1-0 Shane Long (66.), 1-1 Edin Dzeko (79.), 1-2
Edin Dzeko (91.).
West Ham - Southampton 4-1
1-0 Mark Noble (46.), 2-0 Kevin Nolan (47.), 2-1
Adam Lallana (63.), 3-1 Mark Noble (71.), 4-1
Modibo Maiga (86.)
Sunderland - Newcastle 1-1
0-1 Yohan Cabaye (3.), 1-1 Demba Ba, sjálfsmark
(85.).
QPR - Everton 1-1
1-0 David Hoilett (2.), 1-1 Julio Cesar, sjálfsmark
(33.).
STAÐAN
Chelsea 8 7 1 0 19-6 22
Man. United 8 6 0 2 21-11 18
Man. City 8 5 3 0 17-9 18
Everton 8 4 3 1 15-9 15
Tottenham 8 4 2 2 15-12 14
West Brom 8 4 2 2 12-9 14
West Ham 8 4 2 2 12-9 14
Fulham 8 4 1 3 16-11 13
Arsenal 8 3 3 2 13-6 12
Swansea City 8 3 2 3 14-12 11
Newcastle 8 2 4 2 9-12 10
Liverpool 8 2 3 3 10-12 9
Stoke City 8 1 5 2 8-9 8
Sunderland 7 1 5 1 6-8 8
Norwich City 8 1 3 4 6-17 6
Wigan Athletic 8 1 2 5 8-15 5
Aston Villa 8 1 2 5 6-13 5
Southampton 8 1 1 6 13-24 4
Reading 7 0 3 4 8-14 3
QPR 8 0 3 5 7-17 3
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Helgi Valur Daníelsson
hefur verið fastamaður í landsliði
Lars Lagerbäck en missti af síð-
ustu tveimur leikjum vegna veik-
inda. Hann fór með liðinu til Alb-
aníu en var kominn með hita strax
við komuna til Tírana. Eftir leik-
inn fór hann aftur til síns heima
í Svíþjóð og náði sér fljótt og vel.
„Það er reyndar ekki vitað
nákvæmlega hvað var að hrjá
mig,“ segir Helgi Valur við Frétta-
blaðið. „Það var engin niðurstaða
sem fékkst úr öllum þeim rann-
sóknum sem gerðar voru og talið
líklegast að þetta hafi verið ein-
hvers konar vírussýking. Það er
ekki talið að þetta hafi verið neitt
hættulegt þó svo að það sé vissu-
lega óþægilegt að vita ekki hvað
þetta var.“
Aldrei fundið fyrir öðru eins
Helgi Valur segir að hann hafi
veikst nokkuð illa aðfaranótt
fimmtudags en leikur Íslands
gegn Albaníu fór fram á föstudeg-
inum. „Ég vaknaði með svakaleg-
an hausverk og verk fyrir brjóst-
inu. Ég hef aldrei fundið fyrir öðru
eins áður. Ég gisti því á sjúkrahús-
inu næstu nótt og var betri daginn
eftir.“
Þegar íslenska liðið hélt heim
á leið til þess að spila við Sviss á
Laugardalsvellinum hélt Helgi
Valur aftur til síns heima. Ísland
tapaði leiknum, 2-0, og var einn-
ig án Arons Einars Gunnarssonar
sem tók út leikbann. Þeir spiluðu
saman á miðju Íslands í fyrstu
tveimur leikjum liðsins í undan-
keppni HM 2014 með ágætum
árangri.
„Það er alltaf svekkjandi að
missa af leikjum en það er lítið
við því að gera þegar maður veik-
ist,“ segir hann. „Það er langt í
næsta keppnisleik með landsliðinu
og margir leikmenn sem banka á
dyrnar. Það eina sem ég get gert
er að standa mig með mínu félags-
liði fram að næsta leik.“
Síðan Lagerbäck tók við íslenska
landsliðinu hefur Helgi Valur verið
valinn reglulega og notið trausts
landsliðsþjálfarans.
„Maður er í raun enn svekkt-
ari fyrir vikið því mér finnst ég í
fyrsta sinn vera í mikilvægu hlut-
verki í landsliðinu. Ég hef fengið
traust frá þjálfaranum og vil auð-
vitað taka þátt í flestum leikjum.
Maður vill auðvitað ekki tapa sæt-
inu sínu.“
Helgi Valur hefur spilað í Sví-
þjóð í sex ár og neitar því ekki að
það hafi ef til vill hjálpað til að
landsliðsþjálfarinn sé sænskur og
vel að sér í sænska boltanum.
Ari Freyr í miklum metum
„Hann fylgist auðvitað vel með
öllum leikmönnum. Það getur
þó verið að hann horfi á sænsku
deildina aðeins öðruvísi augum
en margir Íslendingar enda hefur
hann tekið leikmenn þaðan sem
hlutu ekki náð fyrir augum fyrri
þjálfara, eins og Ara Frey [Skúla-
son] sem hefur þó verið í miklum
metum hér úti í mörg ár,“ segir
Helgi Valur.
Ísland mætir næst Andorra í
æfingaleik ytra þann 14. nóvem-
ber næstkomandi en næsti leikur
í undankeppni HM 2014 verður
gegn Slóveníu í mars á næsta ári.
eirikur@frettabladid.is
Ég vil spila í öllum leikjum
Helgi Valur Daníelsson missti af báðum landsleikjum Íslands fyrr í mánuðinum
vegna veikinda. Hann þurfti að gista á sjúkrahúsi í Albaníu en hefur náð sér á
fullu. Helgi Valur stefnir á að endurheimta sæti sitt í íslenska landsliðinu.
HELGI VALUR Fagnar hér marki í leik með sænska liðinu AIK. NORDICPHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Valur tryggði sér
sæti í 3. umferð EHF-bikar-
keppni kvenna með því að vinna
spænska liðið Valencia Aicequip
örugglega í tveimur leikjum um
helgina. Valur vann samanlagt,
64-47, og skoraði Þorgerður Anna
Atladóttir flest mörk Valskvenna
eða fimmtán talsins í leikjunum
tveimur.
Valur mætir næst rúmenska
liðinu HC Zalau og fara leikirnir
fram um miðjan nóvember.
Karlalið HK og kvennalið
Fram eru hins vegar úr leik í
EHF-keppninni. Fram vann Tert-
nes IL frá Noregi í gær en tapaði
samanlagt. - esá
Evrópukeppnin um helgina:
Stórsigrar Vals-
kvenna á Spáni
ENSKI BOLTINN Chelsea heldur
áfram sigurgöngu sinni í ensku
úrvalsdeildinni. Marki undir í
síðari hálfleik gegn Tottenham á
White Hart Lane tók Juan Mata til
sinna ráða í síðari hálfleik. Spán-
verjinn skoraði tvö mörk og lagði
upp eitt í frábærum sigri í Lund-
únaslagnum.
„Ég fékk Mata til Chelsea þegar
ég var þar, þannig að frammistaða
hans kemur mér ekkert á óvart,“
sagði Andre Villas-Boas, stjóri
Tottenham, sem var rekinn frá
Chelsea á síðustu leiktíð.
Manchester-liðin City og Unit-
ed deila öðru sæti deildarinnar.
Wayne Rooney skoraði tvö mörk
og sjálfsmark í 4-2 heimasigri á
Stoke. Öll athyglin beindist þó
að Rio Ferdinand sem neitaði að
klæðast bol með slagorði gegn
kynþáttafordómum í upphitun
leiksins. „Ég mun taka á þessu.
Þetta er vandræðalegt fyrir mig,“
sagði Skotinn sem fullyrti fyrir
leikinn að Ferdinand myndi klæð-
ast bolnum.
Dramatíkin var mikil á The
Hawthorns, heimavelli West Brom,
þar sem Man. City var í heimsókn.
Englandsmeistararnir spiluðu
manni færri í sjötíu mínútur en
tókst samt að tryggja sér sigur.
Varamaðurinn Edin Dzeko þurfti
aðeins ellefu mínútur til þess að
skora tvisvar og tryggja City 2-1
sigur. Bosníumaðurinn hefur skor-
að sex mörk í deildinni þrátt fyrir
mikla bekkjarsetu. Dzeko kom
einnig af bekknum og tryggði City
sigur í síðasta útileik liðsins gegn
Fulham.
„Ég vil ekki verða þekktur sem
bjargvættur af bekknum. Ég vil
spila,“ sagði Dzeko eftir leikinn.
Báðum leikjum gærdagsins
lauk með 1-1 jafntefli. QPR mis-
tókst að vinna sinn fyrsta sigur á
tímabilinu er liðið mætti Everton
á heimavelli en gestirnir misstu
Steven Pienaar af velli með rautt
spjald snemma í síðari hálfleik.
Þá máttu erkifjendurnir Sunder-
land og Newcastle sættast á skipt-
an hlut. Newcastle komst snemma
yfir en missti svo Cheick Tiote af
velli með rautt spjald. Sunderland
jafnaði leikinn með sjálfsmarki
Demba Ba í lok leiksins. - ktd, esá
Edin Dzeko og Juan Mata stálu senunni í sigrum liða sinna um helgina:
Frábær endurkoma City og Chelsea
TRYGGÐI SIGURINN Edin Dzeko fagnar
sigurmarki sínu um helgina.
HANDBOLTI Forráðamenn þýska
úrvalsdeildarfélagsins Tusem
Essen eru sagðir afar áhugasam-
ir um að fá Ólaf Stefánsson til
liðs við félagið. Hann staðfesti á
dögunum að hann væri hættur að
spila með íslenska landsliðinu en
hann er nú án félags eftir að AG
fór á hausinn nú í sumar.
Fullyrt er í dönskum og þýsk-
um fjölmiðlum að Ólafur hafi
áhuga á að koma sér að hjá félags-
liði og er Maik Handschke, þjálf-
ari Essen, sagður vilja gjarnan fá
kappann til sín.
„Það væri draumi líkast fyrir
alla leikmenn að fá slíkan leik-
mann til félagsins,“ sagði Fabian
Böhm, einn leikmanna Essen, við
þýska fjölmiðla. „Það væri í raun
ólýsanlegt.“ - esá
Aftur í þýska boltann?
Ólafur orðaður
við Essen
HANDBOLTI Haukar héldu sigur-
göngu sinni í N1-deild karla
áfram í gær þegar liðið vann
nokkuð þægilegan fimm marka
sigur á Valsmönnum, 28-23.
Haukar höfðu frumkvæðið allan
leikinn þótt ungt Valslið hefði
ekki játað sig sigrað fyrr en loka-
flautið gall.
„Ef þú greinir liðið sem við
erum með þá eru margir að stíga
sín fyrstu skref í fullorðinsbolta,“
sagði Patrekur Jóhannsson, þjálf-
ari Vals, sem situr í 6. sæti deild-
arinnar með þrjú stig. Á toppnum
tróna Haukamenn með níu stig af
tíu mögulegum.
„Nei, ég hafði aldrei áhyggjur
en var þó aldrei rólegur. Maður
verður að halda mönnum á tánum
og mér fannst menn vera að
berjast fyrir þessu,“ sagði Aron
Kristjánsson þjálfari Hauka. - ktd
N1-deild karla í handbolta:
Haukar ósigr-
aðir á toppnum
HINGAÐ OG EKKI LENGRA Daði Laxdal
Gautason fékk óblíðar viðtökur hjá
Haukavörninni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM