Fréttablaðið - 22.10.2012, Page 54
22. október 2012 MÁNUDAGUR26
MÁNUDAGSLAGIÐ
„Vogue hefur boðað komu sína
hingað í næsta mánuði og ætlar
að mynda stóran tískuþátt,“ stað-
festir Anna Margrét Björnsson,
kynningarfulltrúi tónlistarhúss-
ins Hörpu, og segir um leið að
húsið sé orðið eftirsótt myndefni.
Sjónvarpsstöðvar, tímarit og
fyrirtæki víða að úr heiminum
sækjast eftir að fá að mynda í
tónlistarhúsinu við sæinn. Sem
dæmi má nefna bækling bíla-
framleiðandans Hyundai, þar
sem Harpa leikur lykilhlutverk,
og haustbækling bandarísku
verslunarkeðjunnar Blooming-
dales sem var myndaður í Hörpu
í sumar.
Tískubiblían Vogue er þekkt
fyrir stóra myndaþætti þar sem
fræg nöfn í tískuheiminum koma
oftar en ekki við sögu. Anna Mar-
grét vill ekki gefa meira upp að
svo stöddu um tökuna, en stað-
festir að um stóran myndaþátt sé
að ræða.
Anna Margrét segir starfs-
fólk Hörpu taka fyrirspurnum á
borð við þessar fagnandi, enda sé
þetta fyrst og fremst góð land-
ANNA MARGRÉT BJÖRNSSON: GLERHJÚPURINN HEILLAR
Vogue myndar tísku í Hörpu
HARPA Í TÍSKU Vogue hefur nú bæst í hóp fjölmiðla og fyrirtækja sem vilja mynda í Hörpu, en tískubiblían tekur myndir í
myndaþátt í húsinu í næsta mánuði. Anna Margrét Björnsson, kynningarfulltrúi Hörpu, segir húsið vera eftirsótt myndefni enda
sé hönnun hússins að stimpla sig inn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Listi yfir þau tímarit og sjónvarpsstöðvar sem hafa myndað í og við
Hörpu upp á síðkastið:
● Japanski sjónvarpsþátturinn „Discovery of the World‘s
Mysteries“ þar sem fjallað var ítarlega um Hörpu
● Hyundai-auglýsingabæklingur
● Bloomingdales-bæklingur
● SVT 1 – sænska ríkissjónvarpið
● BBC
● ZDF – þýska ríkissjónvarpið
● Bandaríski ljósmyndarinn Lauren Greenfield
● Sjónvarpsþátturinn Househunters verður tekinn
upp í Hörpu á næstunni
● Sanlih News Channel – taívanska sjónvarpið
● Hollenski Bachelor-þátturinn.
HARPA Í SVIÐSLJÓSINU
kynning og góð kynning á hús-
inu á erlendri grund. „Við erum
stöðugt að fá fyrirspurnir erlend-
is frá um leyfi til að mynda í hús-
inu. Við gleðjumst yfir því að
Harpa er að verða nýtt kennileiti
á Íslandi. Ég tel að glerhjúpur
Hörpu heilli, enda er hann bæði
einstakur og fallegt listaverk.“
Anna Margrét útskýrir að öllum
sé að sjálfsögðu frjálst að mynda
í opnum svæðum Hörpu. „En sé
ætlunin að mynda í auglýsinga-
skyni þarf að fá leyfi hjá okkur.
Séu ljósmyndir af Hörpu notaðar
í auglýsingaherferðum, eins og
í tilviki Hyundai, er greidd höf-
undarréttargreiðsla. Húsið er
að stimpla sig inn á alþjóðlegum
vettvangi og það má jafnvel segja
að Harpa sé að komast í tísku.“
alfrun@frettabladid.isaf Gulu línunni frá Heilsu
GMP Náttúrulegt-Gæðavottað
Framleitt samkvæmt ströngustu gæðakröfum undir eftirliti
frá Bandaríska matvæla og lyfjaeftirlitunu (FDA) og GMP vottað.
„Tighten Up með Archie Bell
& The Drells. Þá fer maður
dansandi af gleði inn í erfiðan
mánudag.“
Þorsteinn Kári Jónsson, einn af for-
sprökkum Meistaramánaðar.
Um þrjú hundruð manns frá fjölmiðlum víða í
heiminum verða á meðal gesta á Airwaves-
hátíðinni sem hefst í Reykjavík í lok mánað-
arins. Fjöldinn er álíka mikill og mætti á
hátíðina í fyrra.
„Þetta er ómissandi fyrir okkur til
að breiða út boðskapinn. Við erum lítið
festival en stórt vörumerki. Svona
umfjöllun er mikilvæg fyrir okkur til
að keppa við að láta heiminn vita af
okkur,“ segir Kamilla Ingibergsdóttir
hjá Airwaves.
Meðal þeirra fjölmiðla sem eiga
fulltrúa á hátíðinni í þetta sinn eru
BBC Radio, bandaríska tónlistar-
síðan Paste Magazine, The Indep-
endent, Vice TV, Rolling Stone
með blaðamanninn David
Fricke í fararbroddi,
Gaffa, Berlingske
Tidende, danska- og
norska ríkis útvarpið
og bandarísku
útvarpsstöðvarnar KEXP og KCRW. Einnig
mætir til landsins fólk frá Quint Mag-
azine í Dubai, LE TV frá Kína og blaða-
menn frá japönsku tímariti og vefsíðu.
Rússneskir, pólskir og þýskir blaða-
menn verða einnig á svæðinu.
Fólk frá hátíðum á borð við
Euroconic, by:Larm, G! Festival,
CMJ í New York, Spot Festival og
Canadian Music Week verður einn-
ig með augun á innlendum jafnt
sem erlendum flytjendum.
Bækistöðvar erlendu gestanna
verða á Hótel Plaza í Aðalstræti.
„Við búumst við því að um sex
þúsund manns fari í gegnum
fjölmiðlamiðstöðina á Plaza og
við erum að búa okkur vel undir
það,“ segir Kamilla. - fb
Erlent fjölmiðlafólk 300 talsins
FRICKE MÆTIR David Fricke, einn virtasti
blaðamaður tímaritsins Rolling Stone,
mætir annað árið í röð.
Nýtt smáforrit frá fyrirtækinu
Locatify kom út á fimmtudag. For-
ritið nefnist Strollon London; Your
Personal Audio Guide og er unnið
í samvinnu við breska fyrirtækið
Strollon.
Hjónin Leifur Björn
Björnsson og Steinunn
Anna Gunnlaugsdóttir
reka Locatify sem sér-
hæfir sig í framleiðslu
leiðsöguforrita.
„Strollon er fyrir-
tæki sem býr til
leiðsagnir sem
gefnar eru út á
snjallsíma. Við
bjóðum svo upp
á tæknina til
að gera þetta
á ódýran og
skilvirkan hátt,“ útskýrir Leifur
Björn.
Verkefnið er það fyrsta sem
Locatify selur og segir Leifur að
fyrirtækið sé að ganga í gegnum
viss tímamót um þessar mundir.
„Við erum að fara úr rannsóknar-
ham í söluham. Áður keyrðum við
aðallega á styrkjum en
nú erum við farin að
selja leyfin. Við erum
einnig að vinna verk-
efni með skólum í
Noregi þannig að það
eru spennandi tímar
fram undan.“ - sm
Spennandi tímar
TÍMAMÓT Hjónin
Leifur Björn Björns-
son og Steinunn
Anna Gunnlaugs-
dóttir reka Locatify.
„Það er svo mikil gróska í
íslenskri fatahönnun að mér
fannst við hæfi að gera heila bók
og sýna heiminum hvað er í gangi
hérna,“ segir ljósmyndarinn og
stílistinn Charlie Strand sem á
heiðurinn af ljósmyndabókinni
Icelandic Fashion Design sem
kemur út í vikunni.
Bókin inniheldur umfjallanir og
veglega myndaþætti um tíu hönn-
uði. Charlie Strand hefur verið
búsettur hér á landi síðastliðin
fimm ár en hann er hálfur Íslend-
ingur. Icelandic Fashion Project
á að vera heimild um þann ört
stækkandi iðnað sem fatahönnun
er á Íslandi í dag og gefa um leið
útlendingum sem sækja landið
heim smá innsýn inn í íslenskan
tískuheim.
Þeir hönnuðir sem fjallað er
um í bókinni eru Steinunn, Bóas,
Eygló, Royal Extreme, ELM,
Munda, Vera Þórðardóttir, E-Label
og Arna Sigrún.
„ Mér fi nnst
þessir tíu hönn-
uðir endurspegla
hönnunarsenuna
hérna. Hönnuðirn-
ir eru jafn ólíkir
og þeir eru margir.
Þeir eru einnig allir á mismunandi
stað á ferli sínum sem mér fannst
mikilvægt,“ segir Strand, sem var
rúmt ár að vinna bókina í sam-
vinnu við hönnuðina sjálfa, teikn-
ara og grafískan hönnuð.
Strand hefur áður gefið út bók-
ina Icelandic Pro-
jects sem er um
íslenska list, tísku
og tónlist. Útgáfu-
hóf fyrir Icelandic
Fashion Design
verður næstkom-
andi fimmtudag í
bókabúð Máls og
menningar.
- áp
Bók um íslenska fatahönnun
BÓK UM TÍSKU Ljósmyndarinn og stíl-
istinn Charlie Strand einblínir á íslenska
fatahönnuði í bókinni Icelandic Fashion
Design sem kemur út í vikunni.
MYND/MAGNUSANDERSEN.CO
ICELANDIC FASHION
DESIGN