Fréttablaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 29
OFNAR & GÓLFHITAKERFI
FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012
Danfoss er þekktasta nafnið í hitakerfum á Íslandi.
heita vatnsins hér á landi. Á
þessum tíma hefur Danfoss verið
leiðandi í framleiðslu og þróun
stjórnbúnaðar fyrir ofnhitakerfi um
allan heim. Danfoss hefur haldið
stöðu sinni á markaðinum, með
stöðugri þróun og eru þekktir
fyrir hágæða vöru og þjónustu
eins og FJVR frárennslishitastillana
(retúrloka) og RA2000 lofthitastilla
(túrloka) fyrir ofnhitakerfin. Einnig
má nefna þrýstijafnarana og
mótþrýstijafnarana (slaufulokana) í
inntaksgrindum hitakerfa.
Tvíátta þráðlaus samskipti tryggja
áreiðanlegar merkjasendingar og
gera kleift að prófa allar þráðlausar
tengingar við herbergishitastilla
til að ganga úr skugga um að þær
séu virkar. Einfaldleiki búnaðarins
veldur því að fagmaður er mjög
fljótur að setja hann upp og stilla.
Síðan sér sjálfvirka greiningarkerfið
til þess að viðhald verður leikur
einn. Herbergishitastillarnir fást í
mismunandi gerðum fyrir tilteknar
aðstæður. Þráðlausa CF2 kerfið er
bylting í þróun gólfhitastýringa. Það
er einstaklega einfalt í uppsetningu
og auðvelt í notkun, en um leið
býður það upp á fjölmarga nýja og
einstaka möguleika til að stjórna
gólfhitakerfum.
Í framhaldi af þróun þráðlausra
stýringa fyrir gólfhitakerfin tók
Danfoss næsta skref. Eftir nokkurra
ára vöruþróun og prófanir tókst
Danfoss að búa til minnsta
rafeindastýrða ofnhitastillinn á mark-
aðnum. Með því að nota nýjustu
tækni getum við nú boðið einfaldan,
auðveldan og fallegan ofnhitastilli
með einstakri innbyggðri virkni.
Vörulínan sem heitir living by
Danfoss samanstendur af living eco®
sem er sjálfstæður rafeindastýrður
ofnhitastillir og living connect®
sem er þráðlaust stjórnkerfi með
ofnhitastillum, herbergishitanemum
og stjórnstöð.
Þróun living by Danfoss vörulínunn-
ar hefur staðið undanfarin fjögur ár.
Við spurðum neytendur hverju þeir
sæktust eftir í virkni ofnhitastillis.
Niðurstöður þeirrar könnunar hafa
verið leiðarljós við hönnun og
þróun living eco ofnhitastillisins
hjá Danfoss. Niðurstaðan er snjall
ofnhitastillir sem hægt er að forrita
á einfaldan hátt til að mæta þörfum
nútíma fjölskyldunnar við stjórnun á
hitakerfi heimilisins.
Heita vatnið er dýrmæt orku-
lind fyrir okkur íslendinga, en ekki
ótæmandi. Þess vegna eigum við að
fara eins vel með hana og við getum.
Í yfir 50 ár hefur stjórnbúnaður frá
Danfoss staðið vörð um nýtingu
Í lok tuttugustu aldar fjölgaði
mjög gólfhitakerfum í hýbýlum
fólks. Það má segja að Danfoss hafi
verið leiðandi frá upphafi fram á
daginn í dag í þeirri byltingu.
CF 2 gólfhitastýringin frá Danfoss
er sú vinsælasta á markaðnum í
dag vegna áreiðanleika og þeirra
fjölmörgu möguleika sem hún
býður upp á. Einnig að kerfið er afar
einfalt í uppsetningu og auðvelt í
notkun. Á móðurstöðinni eru allt
að 10 útgangar fyrir ýmsar gerðir
af mótorlokum. Þegar herbergis-
hitastillarnir hafa verið tengdir
þráðlaust við móðurstöðina er kerfið
tilbúið til notkunar.
living by Danfoss
Nýju living eco® og living connect®
ofnhitastillarnir frá Danfoss gera
það auðvelt að hafa réttan herberg-
ishita og spara um leið orku. Til
dæmis getur ofnhitastillirinn lækkað
hitastig sjálfkrafa á nóttunni, einnig
þegar fólk opnar glugga eða er
fjarverandi. Með því að skipta út
hefðbundna ofnhitastillinum fyrir
nýjan rafeindastýrðan er hægt að ná
allt að 23% orkusparnaði.
Að opna glugga til að hleypa inn
fersku lofti leiðir til sóunar á orku
í hitakerfinu ef ekki er lækkað á
hefðbundnu ofnhitastillunum. Með
nýju living eco® og living connect®
ofnhitastillunum er hægt að forðast
orkusóun þar sem hann lokar
sjálfkrafa fyrir upphitun þegar hann
skynjar snögga kælingu við það að
gluggi er opnaður.
Nýju ofnhitastillarnir notast við PID
reglunartækni sem færir okkur
snjalla og nákvæma hitastýringu.
Kostir PID reglunar framyfir
hefðbundna stjórnun sem notast er
við í sjálfvirkandi hitastillum, að því
nær sem við komumst kjörhitastigi
því minni verður breyting á opnun
lokans. Þetta leiðir til þess að hitastig
sveiflast óverulega yfir eða undir sett
mörk. Þetta er mögulegt vegna þess
að living by Danfoss ofnhitastillarnir
eru búnir mjög nákvæmum skref-
mótor (step motor) sem færir spindil
lokans í skrefum allt niður í 4/1000
úr mm.
Living by Danfoss ofnhitastillarnir eru
með innbyggða tölvu sem ákveður
hvort og hvenær upphitunar er þörf
til að uppfylla þarfir notandans.
Þetta köllum við “lærða aðlögun”
sem þýðir að hver ofnhitastillir
finnur sína eigin leið til þess að
stjórna upphitunni byggða á stað-
setningu hans, stærð herbergisins
og utanaðkomandi upphitun t.d. frá
sólarljósi.
Ef þú vilt að herbergishitinn sé 20°C
klukkan átta að morgni áætlar ofn-
hitastillirinn hvenær þörf er á að
auka upphitun til þess að ná settu
marki. Þetta gæti þýtt að rétt væri
að hefja upphitun klukkan 7:20 eða
kannski ekki fyrr en 7:40. Ofnhita-
stillarnir ákveða þetta með því að
skoða hitastig síðustu sjö daga og
þannig reikna út hvenær upphitun
ætti að hefjast til að ná settu marki
á tilsettum tíma.
tæki fyrir heimilið sem heldur
nákvæmlega því hitastigi sem óskað
er eftir í hverju herbergi fyrir sig. Eitt
af því sem gerir þennan ofnhitastilli
áhugaverðan fyrir íslenska notendur
er lokaliðkunin. Hann hreyfir
ofnlokann sjálfvirkt reglulega óháð
hitasveiflum og kemur þannig í veg
fyrir festur í lokanum.
Þráðlausa living connect® hitastýri-
kerfið er kerfi sem samanstendur
af stjórnstöð Danfoss LinkTMCC
sem gerir kleift að stjórna allt að
30 þráðlausum ofnhitastillum í
hitakerfi heimilis eða skrifstofu.
Ofnhitastillarnir hafa innbyggðan
sendi og móttakara sem notar litla
orku. Ofnhitastillirinn notar tvær AA
rafhlöður sem orkugjafa og er líftími
rafhlöðunnar allt að tvö ár.
Það er samdóma álit þeirra sem
sett hafa upp living eco® og living
connect® ofnhitastillana hversu
auðvelt það er. Hin mismunandi
millistykki sem fylgja gera það að
verkum að hægt er að nota þá á
flestar gerðir ofnloka á framrás óháð
framleið anda.
Rannsóknir sýna að kjörhitastig
svefnherbergis er 17°C svo einstak-
lingar geti notið heilbrigðs svefns.
Yfir daginn er 21°C það hitastig sem
best er þegar fólk vinnur, lærir eða
slakar á. Með nýja rafeindastýrða
ofnhitastillinum getur notandinn
tryggt rétt hitastig á hvaða tíma
sólahringsins sem er. Notandinn
getur valið milli forstillts kerfis með
fyrirfram ákveðinni tímaskiptingu
milli þæginda og lækkaðs hitastigs
sem og stillt sín eigin tímabil. Við
lengri fjarveru er hægt að lækka
hitastig og láta svo ofnhitastillana
Nýju living eco® og living connect®
ofnhitastillarnir eru hluti af living
by Danfoss vörulínunni sem hlaut
hin virtu red dot verðlaun fyrir
vöruhönnun. “red dot” er alþjóðlega
viðurkennd gæðamerking fyrir fram-
úrskarandi hönnun. Hún staðfestir
að nýju ofnhitastillarnir uppfylla ekki
eingöngu gæðastaðla heldur líta út
og virka betur en aðrir.
Meira en 4000 vörur frá 57 löndum
voru sendar til skoðunar hjá hinni
heimsþekktu red dot dómnefnd..
Dómnefndin ákvað að veita living
by Danfoss rafeindastýrðu ofnhita-
stillunum verðlaun fyrir meðal ann-
ars framúrskarandi nýsköpun, virkni
og áreiðanleika.
Þetta einfaldar lagerhald þar sem
aðeins er um eina gerð af hitanema
að ræða.
hækka það aftur í það þæginda-
hitastig sem óskað er eftir þegar
áður en komið er til baka.
Nánari upplýsingar er hægt að
nálgast á:
hiti.danfoss.is og
www.living.danfoss.is
Danfoss hefur starfað hér í áratugi, áður í samstarfi við Héðinn verslun hf. sem
Danfoss A/S keypti árið 1999 og var þá nafni fyrirtækisins breytt í Danfoss
hf. Færri vita kannski að Danfoss er stórt, alþjóðlegt fyrirtæki sem starfar í 6
heimsálfum. Fyrirtækið sérhæfir sig í alhliða lausnum fyrir hita- og kælikerfi. En
Danfoss er eini framleiðandinn í heiminum sem býður hitastjórnbúnað fyrir öll
stig hitadreyfingar, allt frá borholunni inn á heimilin.
Ein auðveldasta og ódýrasta leiðin
til að minnka orkunotkun og auka
þægindi hitakerfisins er að uppfæra
ofnhitastillana á heimilinu í living
eco®. Með stafrænni tækni hefur
tekist að gera ofnhitastillinn sem
hingað til hefur verið sjálfvirkandi og
vélrænn að snjöllu rafeindastýrðu