Fréttablaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 12
26. október 2012 FÖSTUDAGUR12
FRÉTTASKÝRING: Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna
Eins og við var að búast
voru áhrif veiðigjalda á
íslensk sjávarútvegsfyrir-
tæki í forgrunni aðalfundar
Landssambands íslenskra
útvegsmanna í gær. Átaka-
línurnar voru skýrar í
ræðum atvinnuvegaráð-
herra og formanns sam-
takanna. Eins kom fram á
fundinum að blikur væru á
lofti varðandi markaðsmál
íslensks sjávarútvegs.
Adolf Guðmundsson, formaður
LÍÚ, reifaði í upphafsræðu fund-
arins þá sýn útgerðarinnar í
landinu, sem hefur legið fyrir
lengi, að breytingar á lögum
um stjórn fiskveiða væri atlaga
að greininni og þá ekki síst að
hækkun veiðigjalda. Hann sagði
að fjölmörg fyrirtæki myndu
ekki rísa undir gjaldtökunni og
þau sem hefðu hrygg til að standa
undir henni stæðu löskuð eftir.
„Fjárfestingar, þróunarstarf
og nýsköpun dragast saman og
fyrirtæki sem byggja afkomu og
rekstur sinn á starfsemi sjávar-
útvegsfyrirtækja veikjast. Hér er
um sannkallaðan landsbyggðar-
skatt að ræða þar sem megin-
starfsemi sjávarútvegsins er utan
höfuð borgarsvæðisins,“ sagði
Adolf í ræðu sinni.
Átök á vinnumarkaði
Adolf vék að sameiginlegum
hagsmunum útgerðarinnar og sjó-
manna í landinu í ræðu sinni; að
útgerðin og sjómenn deili kjörum
í hlutaskiptakerfi. Það kerfi sagði
Adolf að gæti ekki haldist óbreytt
ef veiðigjöldin stæðu. Skattlagn-
ingin myndi fela í sér átök á
vinnumarkaði með tilheyrandi
tjóni. Adolf spurði: „Stjórnvöld
halda því fram að skattlagn ingin
muni ekki hafa áhrif á launa-
kjör sjómanna. Hvernig má það
vera, að ef ríkið tekur 10-20% af
tekjunum sé útgerðum ætlað að
greiða um 40% í laun og launa-
tengd gjöld af þeim fjármunum
sem fyrirtækin hafa ekki?“
Undir lok ræðunnar sagði
Adolf: „Ég skora á atvinnuvega-
ráðherra að hlusta á þau rök sem
fram hafa verið færð af okkar
hálfu og annarra og beita sér
fyrir endur skoðun laganna um
veiðigjöld til að forða því tjóni
sem við blasir.“
Aðalfundur en ekki jarðarför
Steingrímur J. Sigfússon atvinnu-
vegaráðherra steig næstur í pontu
og tók það fram fyrst af öllu að
hans sýn væri á allt öðrum nótum
en komið hefði fram hjá formanni
LÍÚ. Greinin stæði styrkum
fótum og væri vel aflögufær.
Hann sagðist því ætla að ávarpa
fundarmenn á þeim nótum að
hann væri staddur á aðalfundi
LÍÚ en ekki jarðarför. Hann
spurði, í samhengi við jákvæðar
afkomutölur útgerðarinnar að
undanförnu, hvernig hljóðið hefði
verið á fundum LÍÚ fyrr á árum
þegar útgerðin var sannarlega í
erfiðleikum. Þetta féll í mis jafnan
jarðveg hjá fundarmönnum og
heyrðist kallað úr sal að ráðherra
ætti að skammast sín.
Steingrímur gaf stöðu þjóðar-
búsins frá hruni töluvert vægi í
ræðu sinni. Hann sagði það nauð-
synlegt því að þeir sem færu
með stjórn landsins gætu ekki
leyft sér þann munað að horfa
eingöngu á þröng hagsmunamál
einnar greinar. „Það þarf að reka
fleira en sjávarútvegsfyrirtæki.
Það þarf að reka Ísland,“ sagði
Steingrímur og ljóst að hann
vísaði til þess að allir þyrftu að
leggja sitt til – ekki síst sjávarút-
vegurinn í landinu.
Markaðsmál áhyggjuefni
Markaðir fyrir sjávarafurðir var
sennilega eini snertipunkturinn í
ræðum þeirra Adolfs og Steingríms
þar sem þeir voru á sömu línu. Þeir
deila þeirri skoðun að blikur séu
á lofti á mörkuðum og að óvissan
hafi aukist verulega að undanförnu.
Erfiðir tímar blasa við, sagði Adolf.
Steingrímur sagði að sterkir
markaðir Íslendinga í Evrópu
væru að gefa eftir. Á sama tíma
lægi fyrir að framboð á þorski
úr Barentshafi myndi aukast
stórlega á næsta ári og makríl-
deilan gæti spilað inn í þessa
mynd: „Til dæmis þannig að
vinir okkar Norðmenn komi
þeim skilaboðum á framfæri í
Bretlandi að þeir þyrftu ekki að
hafa áhyggjur af því að loka á
íslenskan fisk þar sem þeir gætu
séð um að fylla í skarðið með
þorski úr Barentshafi,“ sagði
ráðherra og hvatti menn til að
sameinast því krappur dans gæti
verið fram undan á komandi
mánuðum.
Átakalínurnar skýrar sem aldrei fyrr
RÁÐHERRA Það var þungt yfir ráðherra á fundi LÍÚ en það sama má segja um þá sem hlýddu á eldmessu Steingríms.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FORMAÐURINN Adolf sagði að greinin
hefði tapað miklum tíma vegna „varnar-
baráttu sem komin er til af manna-
völdum“. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þegar umbúðunum
hefur verið flett af
orðskrúðinu blasir innihaldið
við – einfaldlega ríkisvæðing
sjávarútvegsins.
ADOLF GUÐMUNDSSON
FORMAÐUR LÍÚ