Fréttablaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 8
26. október 2012 FÖSTUDAGUR8
ÞÝSKALANDSFORSETI VIÐ MINNIS-
MERKIÐ Minnismerkið er lítil tjörn með
þrístrendri súlu sem nýtt blóm er lagt á
daglega. NORDICPHOTOS/AFP
ÞÝSKALAND, AP Minnismerki um
örlög rómafólks og sintafólks,
sem áður var kallað sígaunar, á
tímum nasistanna var afhjúpað í
Berlín á miðvikudag.
Hundruð þúsunda róma og
sinta voru myrt í útrýmingar-
búðum nasista, en örlög þeirra
hafa fallið í skuggann af örlögum
gyðinga. Einn þeirra sem lifði
hildarleikinn af hefur kallað
þetta „gleymdu helförina“.
Það voru þau Angela Merkel
kanslari og Joachim Gauck for-
seti sem í sameiningu af hjúpuðu
minnismerkið, sem ísraelski
listamaðurinn Dani Karavan var
fenginn til að gera. - gb
Minnismerki vígt í Berlín:
Helfarar róma-
fólks minnst
Hrafnhildur vill 5. sæti
Hrafnhildur Ragnarsdóttir, stjórnmála-
fræðingur og formaður kvennahreyf-
ingar Samfylkingarinnar, sækist eftir
fimmta sæti í prófkjöri flokksins í
Reykjavík.
PRÓFKJÖR
Helena sækist eftir 3.-4. sæti
Helena Þ. Karls-
dóttir, lögfræðingur
á Akureyri, gefur
kost á sér í þriðja til
fjórða sæti á lista
Samfylkingarinnar
í Norðausturkjör-
dæmi. Helena er
ritari flokksins og
situr í stjórn og
framkvæmdastjórn. Hún er einnig
varaþingmaður.
Anna sækist eftir 4.-5. sæti
Anna Margrét Guðjónsdóttir, ráðgjafi
og atvinnurekandi, býður sig fram í
fjórða til fimmta sæti á lista Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík. Anna Margrét
er fyrsti varaþingmaður flokksins í
Suðurkjördæmi.
Hlédís vill annað sæti
Hlédís Sveinsdóttir
gefur kost á sér í
annað sæti á lista
Samfylkingarinnar
í Norðvesturkjör-
dæmi. Hlédís á
meðal annars fyrir-
tækið Eigið fé og
var formaður Beint
frá býli. Hlédís er
með BA-gráðu í
heimspeki, hagfræði og stjórnmála-
fræði og hefur stundað meistaranám
í lýðheilsufræðum.
ALÞINGI Sveitarfélög sem oft
standa frammi fyrir miklum
vanda þegar kemur að því að
tryggja skólahald verða að geta
leitað allra leiða til að svo megi
verða. Þetta kom fram í máli
Þorgerðar Katrínar Gunnars-
dóttur, þingmanns Sjálfstæðis-
flokks, á Alþingi í gær. Í óundir-
búnum fyrirspurnartíma kallaði
hún eftir úrskurði innanríkisráð-
herra vegna skólahalds í Tálkna-
firði þar sem sveitarstjórnin fól
í haust Hjallastefnunni rekstur
grunnskólans.
Þorgerður Katrín taldi ekkert
í lögum um
grunnskóla
meina sveitar-
félögum að fela
einkaaðilum
rekstur þeirra
og kvaðst óttast
að önnur sjón-
armið myndu
ráða för í
úrskurði ráð-
herra en vel-
ferð barnanna, svo sem andúð
Vinstri-grænna á einkarekstri í
skólakerfinu eða fyrirmæli Kenn-
arasambandsins.
Ögmundur áréttaði að fara
þyrfti að lögum við rekstur
grunnskóla og sveitarfélög gætu
ekki leitað hvaða lausna sem
væri.
Hann sagðist eiga von á
að heyrðist frá ráðuneytinu
„innan skamms“ vegna málsins.
„ Margur heldur mig sig,“ sagði
hann líka og kvaðst beina því til
Þorgerðar að „tala fyrir eigin
hönd þegar hún gerir því skóna
að menn fylgi þröngri pólitískri
línu og taki við skipunum annarra
þegar verið er að komast að fag-
legri niðurstöðu“. - óká
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kallar eftir úrskurði ráðherra vegna Tálknafjarðar:
Telur ekkert banna einkarekstur
ÞORGERÐUR K.
GUNNARSDÓTTIR
STJÓRNMÁL Forsætisráðherrar
Norðurlandanna munu funda í
Helsinki í næstu viku.
Ráðherrarnir munu funda með
forsætisráðherrum Eystrasalts-
ríkjanna á mánudag, þar sem
meðal annars verður rætt um
fjármálakreppuna og orkumál.
Á þriðjudag munu forsætisráð-
herrarnir meðal annars funda
með leiðtogum Grænlands,
Álandseyja og Færeyja. Þá
munu þeir funda með forsætis-
nefnd Vestnorræna ráðsins.
- þeb
Norðurlandaráð í næstu viku:
Ráðherrarnir
funda í Helsinki
FJÁRSÝSLUMAÐUR Muhammad Ali, tólf
ára, sést hér reykja innan um rollurnar
sínar. Það er nóg að gera hjá honum
því fórnarhátíð múslíma, Eid al-Adha,
er gengin í garð. Þá fórna múslímar
kindum, geitum, kameldýrum og kúm
til heiðurs Abraham. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
TÆKNI Microsoft setur í dag á markað nýja út-
gáfu af Windows, útbreiddasta tölvustýrikerfi
heims. Nýja útgáfan nefnist Windows 8 og felur
hún í sér mestu breytingar sem gerðar hafa
verið á Windows-stýrikerfinu í 17 ár.
Viðmót nýja stýrikerfisins er gjörólíkt fyrri
kynslóðum þess en það er hannað fyrir allt í
senn hefðbundnar tölvur, spjaldtölvur og snjall-
síma. Þannig tekur á móti notendum litrík upp-
stilling ferhyrndra reita sem veita nýjustu upp-
lýsingar úr lykilforritum og öðrum forritum
sem notandinn velur. Þá er auðvelt að kveikja
á forritum í gegnum nýja viðmótið sem í raun
tekur við af Start-takkanum kunnuglega.
Frá og með deginum í dag munu flestar nýjar
borð- og fartölvur auk ýmissa snjallsíma og
spjaldtölva keyra á Windows 8. Nýja viðmótið er
sérstaklega hannað fyrir snertiskjái en í raun
má segja að Windows 8 sé tvíhöfða skepna. Til
hliðar við nýja viðmótið er nefnilega að finna
hið gamalgróna Windows-skjáborð sem hefur
verið grunnur stýrikerfisins síðan í 1995 útgáfu
þess.
Hugmyndin er sú að notendur geti gengið að
sama stýrikerfinu hvort sem er í gegnum borð-
tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma. Segja má að
með þessu sé Microsoft að bregðast við þeim
breytingum sem orðið hafa á tölvumarkaðnum
á síðustu árum þar sem vinsældir snjallsíma og
spjaldtölva hafa grafið mjög undan sölu hefð-
bundnari tölva.
Telja sumir tæknispekingar að tveggja-við-
móta nálgunin í Windows 8 sé of flókin og að
það miklar breytingar hafi verið gerðar á stýri-
kerfinu að þær geti fælt íhaldssamari notendur
frá.
Microsoft-menn sjálfir segja stýrikerfið
hins vegar mjög einfalt og hafa gert lítið úr
áhyggjunum. Þá hefur Steve Ballmer, for-
stjóri Microsoft, kallað nýjar tölvur sem hafa
verið sérhannaðar fyrir Windows 8, og eru
allt í senn með snertiskjá, mús og lyklaborð,
bestu tölvur sem gerðar hafa verið.
Í öllu falli er ljóst að Microsoft tekur
áhættu með þeim miklu breytingum sem
gerðar hafa verið á Windows og verður spenn-
andi að sjá hvort fyrirtækið, sem hefur orð á
sér fyrir varfærni, uppskeri í samræmi við
áhættuna.
magnusl@frettabladid.is
Windows sett í nýjan búning
Microsoft hefur í dag sölu á nýrri kynslóð af Windows, vinsælasta stýrikerfi heims. Í nýju útgáfunni felast
mestu breytingar sem gerðar hafa verið á Windows í 17 ár og er Microsoft talið taka mikla áhættu.
WINDOWS 8 Steve Ballmer, forstjóri Microsoft, kynnir hér útlit nýja viðmótsins sem er að finna í Windows 8.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP