Fréttablaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 54
26. október 2012 FÖSTUDAGUR34 Leikhús ★★★★★ Nýjustu fréttir Leikhópurinn VaVaVoom í sam- starfi við Þjóðleikhúsið. Höfundar: Sigríður Sunna Reynis- dóttir, Sara Martí Guðmundsdóttir og leikhópurinn VaVaVoom. Leik- stjóri: Sara Martí Guðmundsdóttir. Í Kúlunni var á dögunum frumsýnt verk sem lætur engan ósnortinn. VaVaVoom Theater er nýtt mynd- rænt leikhús með bækistöðvar í Lundúnum og Reykjavík. VaVa- Voom var stofnað árið 2011 af Söru Martí og Sigríði Sunnu Reynis- dóttur sem kynntust við nám í Central School of Speech and Drama. Þær hafa fengið til liðs við sig hóp vel menntaðra listamanna úr ýmsum greinum og frá ýmsum heimshornum, sem hér hefur spunnið saman verk sem fjallar um ágengni fjölmiðla og neyslu þeirra. Nýjustu fréttir, hverjar svo sem þær eru, heltaka aðalpersónuna án þess að eiginlegt innihald þeirra skipti hana nokkru máli. Sviðsmyndin er veggur sem skipt er niður í marga glugga en vekur um leið hughrif fyrstu síðu blaðs þar sem gluggarnir eru eins og greinar og dálkar. Einn glugg- inn opnast með skröltandi rúllu- gardínu og þar situr höfuðlaus brúða í rauðum silkislopp sem les stórt dagblað, hlustar á útvarps- fréttir, horfir á hverja stöðina á fætur annarri sem gusast út úr sjónvarpinu um leið og viðkomandi er að fá sér morgunmat sem er allt- af eins og líklega étinn ósjálfrátt meðan orð verða að höggum og setningar að hljóðum. Höfuðlausu brúðunni stjórna tvær konur sem fara með henni út í veröldina, út á vettvang fréttanna. Hnötturinn úr pappamassa snýst og rauðsloppur velur sér stað og sá staður verður til fyrir augum áhorfenda á hreint undraverðan hátt. Agnarlítil hús spretta upp úr dagblöðum og þar gefur hljóðmyndin til kynna hvað er um að vera. Hvort heldur er verið að varpa sprengjum eða pap- arazzi-ljósmyndarar á fleygiferð. Pierre-Alain Giraud og Ingi Bekk eru skrifaðir fyrir hljóð- myndinni sem var ágeng og hug- vitssöm. Sérstaklega áhrifaríkar myndir komu upp í huga áhorfenda þegar hin rauðklædda vera var að fletta stóru dagblaði og tónlist og hljóðmyndir lýstu hverri opnu, hvort sem um síðuna um fræga fólkið var að ræða eða lýsingu á stríðsátökum. Verkinu er hugvit- samlega skipt niður í fjóra þætti og framvinda verksins mjög skýr. Þegar veran fer út í heim birtist hún okkur sem lítil fingrabrúða og var það í einu orði heillandi. Spurningin um það hversu mikið af fjölmiðlafárinu við þolum og hvenær við hreinlega breytumst sjálf í fárið er allsráðandi í þessu ferðalagi sem var algert konfekt fyrir bæði eyru og augu. Að sitja og fletta blaðinu á meðan útvarp og sjónvarp eru stillt á fullt eru aðstæður sem allir kannast við. Hér var sú hversdagslega iðja sett á fljúgandi ferð og leik myndin, sem Eva Signý Berger er skrifuð fyrir, ásamt mjög smart mynd- bandshönnun þeirra Pierre-Alain Giraud og Inga Bekk, gerði það að verkum að maður vildi bara fá meira að sjá og heyra. Hér er greinilega unnið af þekkingu, hugvitssemi og hugsjón. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Glimrandi sýning um ágengni fjölmiðla og fíknina að ánetjast þeim. Heillandi sýning um fréttafíkn HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Föstudagur 26. október ➜ Upplestur 09.00 Framhaldsskólanemar verða með upplestur í allan dag í söfnum Borgarbókasafns. Lesið verður í tvo tíma á hverju safni og endar lesturinn í aðal- safni klukkan 19-21. Búast má við að vel á þriðja hundrað nemendur taki þátt í maraþoninu sem Ari Eldjárn lokar með léttu uppistandi. Öllum er velkomið að leggja við hlustir. Nánari dagskrá má finna á Borgarbokasafn.is. ➜ Tónlist 21.00 Hljómsveitin Lame Dudes verður í hrekkjótta gírnum á Danska barnum í kvöld. Þeir munu leika seiðandi blús- skotna tóna. Aðgangur er ókeypis. 22.00 Dúndurfréttir verða með tónleika á Græna Hattinum, Akureyri. Spilað verður það besta í klassísku rokki frá böndum eins og Pink Floyd, Deep Purple og Led Zeppelin. Miðaverð er kr. 2.900. 22.00 Borko, Reykjavík! og Þórir Georg halda tónleika á Faktorý. Aðgangseyrir er kr. 1.000. 22.00 Kristjana Stefáns og tríó munu flytja nokkra vel valda blússtandarda auk frumsaminna á Café Rosenberg. Aðgangseyrir er kr. 2.000. 23.00 Eiki og Bleiki skemmta á Ob-La- Dí-Ob-La-Da Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000. ➜ Fyrirlestrar 12.00 C. Augustine Kong, PhD heldur fyrirlestur á fræðslufundi Vísindafélags Íslendinga. Fundurinn er haldinn í sam- starfi við Þjóðminjasafn Íslands, í fyrir- lestrarsal safnsins, og fer hann fram á ensku. 12.00 Konfúsíusarstofnunin Norðurljós og Heimspekistofnun kynna fyrirlestur Steve Coutinho, Er eitthvað til sem heitir daoísk heimspeki? Fyrirlesturinn fer fram í stofu 101 í Árnagarði Háskóla Íslands og er aðgangur ókeypis. 20.00 Haraldur Erlendsson yfirlæknir heldur fyrirlestur um Sri Vidya, iðkunar- tækni hennar, sögu og tengsl við Ísland. Fyrirlesturinn fer fram í húsi Lífspeki- félagsins að Ingólfsstræti 22. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Maður er bæði spenntur og smá hnútur í manni,“ segir Þorbjörg Höskuldsdóttir myndlistar- maður spurð hvernig það leggist í hana að opna fyrstu einkasýn- inguna í átta ár. Sýningin sem um ræðir nefnist Ásýnd fjarskans og verður opnuð í Listasafni Reykja- nesbæjar klukkan 18 í dag. „Það er alltaf spenna í manni,“ segir Þorbjörg. „Maður er að leggja sjálfan sig á borðið og bíða dóms. En það er líka voðalega gott að sjá af rakstur vinnu sinnar kom- inn heim og saman upp á vegg.“ Verkin á sýningunni eru öll landslagsmálverk og Þorbjörg segist hafa lokið þeim öllum á þessu ári en þau hafi verið í vinnslu í tvö til þrjú ár. En hvað kom til að hún sýndi ekki í allan þennan tíma? „Tími hrunsins hjá okkur var nú ekkert spenn- andi fyrir sýningar,“ segir hún. „Það voru fáir sem voru á þeim nótunum að sýna og ég hugsaði ekkert út í það. Reyndi bara að safna í sarpinn. En það var ósköp gott að fá þetta boð frá Listasafni Reykjanesbæjar til að sparka sér í gang.“ Þorbjörg á að baki langan og glæstan feril í myndlistinni, hélt fyrstu einkasýninguna árið 1972 og nú er verk eftir hana að finna í öllum helstu listasöfnum landsins. Hún segist þó ekki hafa gert sér grein fyrir því að í ár væru fjöru- tíu ár frá fyrstu sýningu hennar. „Ég hef verið þrautseig við þetta í gegnum árin,“ segir hún, „en ég hafði ekkert hugsað út í að þetta væri afmælisár, það gerir þetta enn þá skemmtilegra.“ - fsb Fyrsta sýning Þorbjargar í átta ár FJÖRUTÍU ÁRA FERILL Svo skemmtilega vill til að í ár eru fjörutíu ár frá fyrstu einkasýningu Þorbjargar. – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 6 14 68 1 0/ 12 Gildir til 31. október Lægra verð í Lyfju 20% afsláttur Fíflablöð og birki Vatnslosandi. Dregur úr bjúg og stirðleika í liðum. Léttur og einfaldur í notkun Keðjubroddar ársins 2012 lÍs en kus Faxafeni 8 // 108 Reykjavík // Sími 534 2727 // www.alparnir.is Hinir vinsælu MICROspikes hálkubroddar Göngubroddar Sveigjanlegir - léttir - auðveldir og pakkast vel. Snjóþrúgur Til sölu og til leigu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.