Fréttablaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 30
KYNNING − AUGLÝSINGOfnar & gólfhitakerfi FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s 512-5432 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Tengi hefur í rúman áratug selt hágæða gólfhitalausnir, til dæmis frá þýska fram-leiðandanum Uponor. Gólfhitalausnirn-
ar eru sérstaklega hentugar fyrir íslenskar að-
stæður enda hafa þær verið mjög vinsælar und-
anfarin ár að sögn Halldórs F. Halldórssonar,
sölustjóra lagna deildar Tengis. „Við bjóð-
um upp á þrjár tegundir lausna. Í fyrsta lagi
erum við með kerfi sem hefur 30 mm einangr-
un sem sett er undir sem undirlag. Rörin eru
síðan heftuð þar ofan á. Síðan bjóðum við upp
á varmaleiðnidúk sem er einungis 4 mm sem
hefur minna einangrunargildi en 30 mm lausn
okkar. Rörin fara einnig ofan á hann og þau eru
boruð niður með spennum. Svo bjóðum við
líka upp á lausn frá Uponor sem er þunnlagn-
arkerfi sem hefur 15 mm heildarþykkt, en þau
kerfi eru gríðarlega vinsæl hjá okkur.“
Halldór segir síðasttöldu lausnina vera sér-
staklega vinsæla þegar kemur að endur nýjun
eldri húsa. „Í slíkum húsum er oft vandi með
gólfhæðina og ekki hægt að koma fyrir neinni
einangrun. Því er notaður takkadúkur sem er
límdur við grunnað gólf. Ofan í hann koma
svo rörin sem eru 9,9 mm í þvermál og að
lokum er flotað yfir. Þessi lausn hefur gefist
sérstaklega vel.“
Ólíkar stýringar
Gólfhitalausnir Tengis innihalda ýmist þráð-
lausar eða víraðar stýringar. Þráðlausa stýr-
ingin er dýrari lausn að sögn Halldórs en
býður á móti upp á mun fleiri möguleika en
sú víraða. „Stjórnbúnaðurinn er með þráð-
lausa hitanema og einnig með upplýsinga-
skjá sem er tengdur við móðurstöð. Upplýs-
ingaskjárinn gefur upplýsingar um hvern
og einn hitastilli og gefur notandanum
tækifæri til að stilla hámarks- og lágmarks-
hita. Þetta er til dæmis sérstaklega hentugt
í her bergjum þar sem hætta er á að fiktað
sé í stillinum. Þá er hægt að læsa honum á
ákveðnu hitastigi.“
Hann bendir á að einnig sé hægt að stilla
inn á upplýsingaskjáinn ef íbúðareigandi fer
í frí. Þannig er hægt að stilla inn hvenær farið
er úr húsi og hvaða hitastigi óskað er eftir þar
á meðan viðkomandi er staddur er lendis.
„Hægt er að stilla hvenær komið er heim.
Þannig stýrir kerfið hitastiginu á meðan
íbúar eru fjarverandi og keyrir sig upp áður
en þeir koma heim til sín aftur.“
Þægindi skipta máli
Halldór segir að það sem þurfi helst að hafa í
huga þegar gólfhitalausnir séu keyptar sé að
gólfhitinn sé í yfirborði gólfflatarins og með
tilheyrandi undirlagi. „Þar á ég við einangr-
unina og varmaleiðandi dúkinn. Það er dýr-
ara að gera þetta svona og þess vegna hafa
menn stundum valið að binda rörin beint í
járnagrindina áður en steypt er. Sú lausn er
þó slæmur kostur því svörunin verður mjög
hæg. Ef þú ert með nýtt hús viltu hafa svör-
unina góða. Ef húseigandi hækkar hita stigið
til dæmis um 2-3 gráður vill hann ekki bíða
í margar klukkustundir eftir hitanum. Því
er mikilvægt að velja lausn sem hentar best
hverju sinni og þar eru þessi undirlög algjört
undirstöðuatriði. Fólk þarf að hafa það í huga
að það er nefnilega ekki mikill viðbótar-
kostnaður sem fer í undirlagið á móti þeim
þægindum sem fólk fær í staðinn.“
Allar nánari upplýsingar um gólfhita-
lausnir Tengis veita starfsmenn lagnadeildar.
Góðar lausnir og úrvalsþjónusta
hjá lagnadeild Tengis
Starfsmenn Tengis hafa áralanga reynslu við ráðgjöf og sölu gólfhitalausna. Við val á gólfhitalausnum er undirlagið lykilatriði ásamt
stjórnbúnaði. Tengi býður upp á margvíslegar lausnir fyrir ólíkar þarfir viðskiptavina.
Dæmigerður stjórnbúnaður fyrir gólfhita. Þráðlausir
hitanemar, móðurstöð, upplýsingaskjár og stjórn-
stöð sem stýrir framrás gólfhitans eftir útihita ásamt
dreifikistu og uppblöndun. MYND/VALLI Dreifikista fyrir gólfhita með uppblöndun. MYND/VALLI
Gólfhitalausnir frá Tengi eru sérstaklega hentugar fyrir íslenskar aðstæður að sögn Halldórs F. Halldórssonar, sölustjóra lagnadeildar Tengis. MYND/VALLI