Fréttablaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 37
LÍFIÐ 26. OKTÓBER 2012 • 7 aða fresti, þá aðallega að bíða eftir niðurstöðum. Þetta gerði ég í tvö ár eða þar til móðir mín greindist í þriðja skiptið með krabbamein aðeins 58 ára gömul. Hún hafði sjálf eins og ég verið í auknu eftirliti með blóðprufum og myndatökum en því miður fékk hún meinvörp frá brjóstakrabba- meininu síðan 2008 í beinin og það er ólæknandi.“ Ákvað að bíða ekki eftir krabbanum Eftir þessa röð áfalla breyttist viðhorf Valdísar gagnvart brjóstnámi. „Ég og maðurinn minn tókum þá ákvörðun í sameiningu að bíða ekki eftir því að greinast með krabbamein heldur láta fjarlægja þessa ógn sem fyrst. Í framhaldi fórum við hjónin saman í viðtöl til lýtalækna og reyndum að fá eins miklar upplýsingar um brjóst- nám og hægt var. Á þessu tíma fékk ég símtal frá yndislegri konu sem einnig hafði farið í gegnum svona fyrirbyggjandi aðgerð. Við hittumst og hún leiddi mig í gegnum sína sögu, sem er mér ómetanlegt. Það breytti öllu fyrir mig að eiga hana að og geta fengið upp- lýsingar og sjá brjóst, ör og annað eftir svona aðgerð.“ Fimm daga á sjúkrahúsi Ákvörðun var tekin og Valdís fór í brjóstnám þann 30. janúar á þessu ári. „Aðgerðin gekk mjög vel og var ekki eins sársaukafull og ég átti von á, enda fékk ég mikið af verkja- lyfjum.“ Valdís lá inni á sjúkrahúsi í fimm daga. „Mamma var mjög dugleg að reka mig á fætur til þess að gera æfingar sem hjálpaði til við batann. Annars fékk ég ómetanlega hjálp úr öllum áttum. Tengdamóðir mín Hildur, sem búsett í Noregi, kom til landsins og sá um heimilið og dætur okkar á meðan Elli, eiginmaður minn, var að vinna og halda mér félagsskap. Stóra systir mín frá Dalvík kom til okkar nokkrum vikum eftir aðgerð- ina og bjó hjá okkur í eina viku og sá um allt heimilið. Svo kom hann Andri mágur minn, en hann er lýta- læknir í Svíþjóð, og er sérsvið hans einmitt uppbygging á brjóstum eftir brottnám. Þegar ég fór í aðgerðina fylgdist hann með henni. Það var gott að vita af honum og mikill stuðn- ingur. Ég verð öllu þessu fólki ævin- lega þakklát fyrir hjálpina.“ Geirvörtur úr eyrnasneplunum Valdís var í sjö vikur frá vinnu sem var nauðsynlegt til að ná góðum bata. Í aðgerðinni voru bæði brjóstin tekin, ásamt geirvörtum, öllum vef og fitu. „Sem sagt allt hreinsað enda eru í dag mjög litlar líkur á að ég fái brjóstakrabbamein. Þá voru settir svokallaðir vefþenslupokar undir brjóstvöðvann sem voru síðan fylltir af saltvatni í nokkrum skömmtum. Í byrjun maí voru svo þessir pokar fjarlægðir og sílikon sett í staðinn, þá var ég um það bil þrjár vikur frá vinnu. Fyrir nokkrum vikum fór ég svo og lét búa til geirvörtur með því að taka bita úr eyrnasneplunum og sauma á brjóstin, þessi litla aðgerð gekk líka mjög vel og ég er í raun- inni enn þá að gróa.“ Í næsta mán- uði fær Valdís svo tattú á Landspítal- anum í stað vörtubaugsins. „Þetta er búið að vera langt ferli sem tekur þó senn enda og ég sé ekki eftir neinu. Hún Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir hefur gefið mér ótrúlega flott og heil- brigð brjóst og hún hefur reynst mér afar vel. Ég mun svo halda áfram í stöðugu eftirliti og fara á sex mán- aða fresti í sónar og blóðprufu vegna eggjastokkanna alveg til fertugs en þá verða þeir fjarlægðir.“ Ekkert feimnismál Eftir þessa lífsreynslu telur Val- dís nauðsynlegt að stofnaður verði stuðningshópur fólk á Íslandi með breytt BRCA gen. „Það er nauðsyn- legt að geta talað við aðra í sömum sporum og deilt sinni reynslu. Þó svo að við séum ekki öll veik eða komin með sjúkdóm þá erum við með genagalla sem er flókið fyrirbæri og erfitt enda þarf oft að taka mjög erf- iðar ákvarðanir út frá því.“ Spurð um það hvort henni hafi ekki fundist óþægilegt að opinbera sögu sína segist hún strax hafa tekið þá ákvörðun að tala opinskátt um reynslu sína. „Fyrir mér er þetta ekki feimnismál og ég ákvað það líka að taka sjálfa mig og aðstæður ekki of alvarlega og reyna að vera jákvæð. Svo hefur verið mikil hjálp í því að sjá húmorinn í öllum þessum erfið- leikum en þar koma maðurinn minn og dæturnar sterk inn. Þau hafa átt auðvelt með að fá mig til að brosa og hlæja í gegnum þetta allt sem er ómetanlegt. En markmiðið með því að segja sögu mína er vissulega það að vekja athygli á BRCA og deila minni upp- lifun af brjóstnáminu, sérstaklega fyrir konur sem eru í sömu sporum og ég var fyrir ári síðan og eru að velta því fyrir sér hvað þær eiga að gera.“ Mamma er hetjan Valdís segist hafa fengið einstakan stuðning við þessa stóru ákvörðun. „Ég er svo ótrúlega heppin að eiga marga góða að, eiginmann, for- eldra, tengdaforeldra, börn, syst- kini, vini, samstarfsfélaga og vinnu- veitendur. Allir hafa sýnt mér mik- inn stuðning sem ég verð ævinlega þakklát fyrir.“ Valdís segir móður sína vera hetj- una í þessu öllu saman og reyndar föður sinn líka sem gengur í gegn- um sjúkdóminn með henni. „Ég fæ illt í hjartað þegar ég hugsa til þess að hún sé með ólæknandi krabba- mein. Hún er svo ótrúlega sterk og dugleg. Hún tekur sig til á hverjum degi, hún er stanslaust í erfiðri meðferð þó svo að það sjáist ekki á henni, en þetta tekur mikið á og hún er orðin þreytt og þollítil. Hún er fyrirmyndin mín og styrkur í einu og öllu.“ Að lokum langar mig til að segja: „Lífið er stutt, njótum lífsins og verum glöð, það eru forréttindi að vera heilbrigður.“ Valdís verður í kvöld í ýtarlegra viðtali ásamt móður sinni í Íslandi í dag, strax að loknum kvöld fréttum á Stöð 2.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.