Fréttablaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 2
26. október 2012 FÖSTUDAGUR2
Ómissandi á pi
réttina,í ofn- og pasta
salatið.á tortillurnar og
Heimilis
STUR
NÝJUNG
ÍSLENSKUR OSTUR
100%
SKIPULAGSMÁL Isavia hefur verið
synjað um leyfi til að setja upp
ný aðflugsljós við Suðurgötu út af
enda vestur/austurbrautar Reykja-
víkurflugvallar. Isavia sagðist
þurfa að uppfylla kröfu frá Flug-
málastjórn.
„Að þessu uppfylltu skapast skil-
yrði til þess að takmarka umferð
flugvéla yfir miðborg Reykjavíkur,
frá því sem nú er, um allt að tutt-
ugu prósent,“ sagði í erindi Isavia.
Skipulagsráð synjaði erindinu
að svo stöddu með vísan til þess
meðal annars að leita þurfi álits
Umhverfisstofnunar og Minja-
verndar og meta umhverfisáhrif.
- gar
Minnka má flug yfir miðbæ:
Fá ekki að setja
upp aðflugsljós
NÝJU AÐFLUGSLJÓSIN Ekki upp í bili.
DANMÖRK Talið er að þjófar hafi
um tíu ára skeið fjarlægt frá
danska þjóðskjalasafninu skjöl
um Dani í þjónustu Þjóðverja í
seinni heimsstyrjöldinni. Danskir
fjölmiðlar greindu frá því í gær
að tveir menn hefðu verið hand-
teknir vegna málsins. Eftir leit í
fjórum íbúðum telur lögreglan að
flest stolnu skjalanna séu komin
í leitirnar.
Annar hinna handteknu er
sagður hafa verið í gengi útlend-
ingahatara á níunda áratug síð-
ustu aldar. Sá hefur einnig verið
viðriðinn fíkniefnamál. Hinn
maðurinn hefur ekki hlotið dóm,
að því er greint er frá á fréttavef
Politiken. - ibs
Danir í þjónustu Þjóðverja:
Þjófnaður í
þjóðskjalasafni
UMHVERFISMÁL Áhyggjur eru meðal
íbúa í Grafarholti vegna staðsetn-
ingar bensínstöðvar ÓB við hlið
Ingunnarskóla.
„Íbúarnir telja að ef slys eða
óhapp yrði sé bensínstöðin of
nálægt skólanum,“ segir Berg-
hildur E. Bernharðsdóttir, for-
maður Íbúasamtaka Grafarholts.
Hún kveður þessar raddir hafa
komið fram á aðalfundi íbúa-
samtakanna sem haldinn var í
Ingunnar skóla í vor.
Að tillögu fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins samþykkti skóla- og
frístundaráð Reykjavíkur 19.
september að óska eftir því að
skipulagsráð og umhverfis- og
samgönguráð borgarinnar skoðuðu
möguleika á breyttri staðsetningu
bensínstöðvar ÓB við Kirkjustétt í
samráði við eiganda stöðvarinnar.
Stöðin, sem reist var árið 2005,
er skammt frá félagsmið stöðinni
Fókus og frístundaheimilinu
Stjörnu landi auk Ingunnarskóla.
„Árum saman hafa foreldrar
barna í Ingunnarskóla gert athuga-
semdir við staðsetningu stöðvar-
innar svo nærri fjölmennasta skóla
hverfisins og meðal annars kvartað
yfir því að í ákveðnum vindáttum
berist bensínfnykur inn í skóla-
húsnæðið,“ sagði í tillögunni sem
einnig fól í sér ósk um gerð lög-
fræðilegs álits á því hvort stað-
setning stöðvarinnar samræmist
reglum, meðal annars um fjarlægð
milli bensínstöðvar og bygginga
þar sem fólk dvelur um lengri tíma.
„Það stendur ekki til af okkar
hálfu að flytja stöðina og við höfum
ekki fengið neinar form legar
athugasemdir frá aðstand endum
barna eða til þess bærum yfir-
völdum um okkar starfsemi. ÓB
stöðin er einfaldlega á þeim stað
þar sem henni var fyrir mörgum
árum úthlutað samþykktri lóð á
samþykktu deiliskipulagi,“ segir
Jón Ólafur Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri sölusviðs ÓB.
Færanlegar skólastofur sem
hefur verið komið fyrir við Ingunn-
arskóla eru nálægt lóðamörkunum.
„Maður veltir þá fyrir sér hvort
þessar skólastofur eru komnar inn
á skipulag og hvort þær verði þarna
til framtíðar,“ segir Jón.
Guðlaug Erla Gunnarsdóttir,
skólastjóri Ingunnarskóla, segir ÓB
vissulega óþægilega nálægt en skól-
inn sjálfur hafi ekki gert athuga-
semdir við staðsetningu bensín-
stöðvarinnar. „Þetta hefur ekki
komið inn á borð skólans,“ segir
Guðlaug.
Samkvæmt skipulagssviði borg-
arinnar eru öll tilskilin leyfi fyrir
hendi vegna ÓB við Kirkjustétt.
Málið verði tekið fyrir af skipulags-
ráði fljótlega. gar@frettabladid.is
Óttast um skólabörn
vegna bensínstöðvar
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur vill láta kanna hvort flytja megi bensínstöð
ÓB í Grafarholti fjær Ingunnarskóla. Talsmaður ÓB segir stöðina á samþykktri
lóð. Engar athugasemdir hafi borist. ÓB hafi engin áform um að flytja stöðina.
ÓB VIÐ KIRKJUSTÉTT Á aðalfundi Íbúasamtaka Grafarholts í vor heyrðust raddir um
að öryggi barna og unglinga í Ingunnarskóla kynni að vera í hættu vegna nálægðar-
innar við bensínstöð ÓB. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SVÍÞJÓÐ Svíþjóð, Þýskaland,
Belgía, Holland, Lúxemborg og
Frakkland vilja stöðva straum
hælisumsókna frá vesturhluta
Balkanskaga. Umsóknum um
hæli til landanna hefur fjölgað
mjög frá því að íbúar Serbíu,
Albaníu og Bosníu-Herzegovínu
gátu fyrir tveimur árum komið
til Evrópusambandslanda án
vegabréfsáritunar.
Næstum öllum um sóknum
hælisleitenda frá þessum
löndum á Balkanskaga er hafnað
en vegna þess hversu margar
þær eru, um tuttugu prósent
allra umsókna frá hælis leit-
endum, þykja þær íþyngjandi.
Alls hafa umsóknir frá svæðinu
verið tuttugu þúsund á undan-
förnum árum. - ibs
Umsóknum um hæli hafnað:
Straumur
umsókna frá
Balkanskaga
DANMÖRK Foreldrar og nem-
endur við skóla í Óðinsvéum í
Danmörku hafa komið til varnar
kennara sem sakaður er um kyn-
þáttaníð.
Kennarinn hefur viðurkennt
að hafa sagt „ég er orðin svo
þreytt á ykkur múslímunum sem
skemmið kennslustundir“ við
hóp drengja. Hún hefur beðist
afsökunar en telur sig ekki hafa
sýnt kynþáttafordóma.
Formaður foreldrafélags skól-
ans hefur nú skrifað bréf í dag-
blað. „Við erum ekki rasistar.
En við verðum að þora að vera
hreinskilin um það sem gengur á
innan veggja skólans.“
Hann segist sýna því skilning
að aga hafi þurft drengina sem
hafi truflað kennslustund. - þeb
Sakaður um kynþáttaníð:
Foreldrar til
varnar kennara
TÓKÝO, AP Tepco, sem rekur kjarn-
orkuverið í Fukushima í Japan, á
í verulegum vandræðum með að
finna geymslustað fyrir tugi þús-
unda tonna af geislavirku vatni.
Vatnið var notað til að kæla kjarna-
ofna kjarnorkuversins sem varð
fyrir verulegum skemmdum í jarð-
skjálfta í mars 2011.
Um 200.000 tonn af geislavirku
vatni, sem jafngilda vatnsmagni
ríflega 50 sundlauga í Ólympíu-
stærð, eru nú geymd í risastórum
geymum sem settir hafa verið upp
í kringum kjarnorkuverið. Tepco
er hins vegar að verða uppiskroppa
með landrými þrátt fyrir að hafa
þegar hoggið niður fjölda trjáa í
nágrenni kjarnorkuversins.
Fyrirtækið gerir ráð fyrir að
þurfa geymslupláss fyrir ríflega
400.000 tonn til viðbótar á næstu
þremur árum, þar sem grunnvatn
lekur reglulega inn í verið.
Yfirvöld í Japan hafa miklar
áhyggjur af mögulegum afleið-
ingum þess ef mengað vatnið
sleppur út í náttúruna en vísinda-
menn hafa varað við alvarlegum
umhverfisskaða og mögulegum
áhrifum á heilsu manna.
- mþl
Yfirvöld í Japan glíma enn við afleiðingar kjarnorkuslyssins í Fukushima:
Geislavirkt vatn veldur vanda í Japan
FUKUSHIMA Í JAPAN Gríðarlegt magn
vatns var notað til að kæla kjarnorku-
verið í Fukushima eftir að jarðskjálfti olli
skemmdum á því í mars 2011.
NORDICPHOTOS/AFP
ALÞINGI Þór Saari, þingmaður
Hreyfingarinnar, velti því upp á
Alþingi í gær hvort nóg væri að
gert til að vernda náttúrufar á
Þingvöllum og Mývatni.
Í svörum Svandísar Svavars-
dóttur, umhverfis- og auðlinda-
ráðherra, kom fram að hún hefði
fundað með sérfræðingum um
málið. Sagði hún áhyggjur fyrst
og fremst af beinum áhrifum
manna á náttúruna, þar á meðal
áhrifum umferðarmengunar á
vatnið sjálft og seyru vegna frá-
veitna frá sumarbústöðum. - óká
Skoða þarf bein áhrif manna:
Vill ræða málið
betur á Alþingi
ISLAMABAD, AP Faðir hinnar 15 ára gömlu Malölu
Yousufzai, sem varð fyrir skotárás í heimabæ
sínum þann 9. október, segir dóttur sína hafa
heitið því að snúa aftur til Pakistan þegar hún
hefur náð sér af sárum sínum.
Malala hefur árum saman barist fyrir skóla-
göngu stúlkna og opinberlega gagnrýnt talibana
sem fóru um skeið með völdin í Swat- dalnum
í Pakistan þar sem hún býr. Hóf hún ellefu
ára gömul að skrifa blogg undir dulnefni þar
sem hún lýsti lífi undir stjórn talibana í Swat-
dalnum.
Malala var skotin í höfuðið af vígamanni sem
tilheyrir hreyfingu talibana þann 9. október að
því er virðist vegna baráttu sinnar.
Malala var í kjölfarið flutt á sjúkrahús í Bret-
landi þar sem hún er á hægum batavegi. Tali-
banar hafa hótað því að drepa hana snúi hún
aftur til Pakistan en þrátt fyrir hótanirnar segir
faðir hennar hana staðráðna í að fara heim.
Almenningur, sem og stjórnvöld í Pakistan,
hefur harðlega fordæmt skotárásina á Malölu.
- mþl
Lætur hótanir talibana sem vind um eyru þjóta og hyggst halda áfram baráttunni:
Malala hyggst snúa aftur til Pakistan
MALALA YOUSUFZAI Malala dvelur nú á Queen Elizabeth-spítal-
anum í Birmingham á deild sem sérhæfir sig í meðferð alvarlegra
skotsára. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS
Runólfur, er umræðan um
nagladekk á hálum ís?
„Nagladekk eru best á hálum ís.“
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra bifreiðaeiganda, segir
umræðu um skaðsemi nagladekkja
orðum aukna. Við vissar aðstæður sé
best að vera á negldum hjólbörðum.
„Árum saman hafa
foreldrar barna í Ing-
unnarskóla gert athugasemdir
við staðsetningu stöðvarinnar
svo nærri fjölmennasta skóla
hverfisins.“
ÚR TILLÖGU SJÁLFSTÆÐISMANNA
Í SKÓLA- OG FRÍSTUNDARÁÐI