Fréttablaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 44
KYNNING − AUGLÝSINGOfnar & gólfhitakerfi FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 20124 Skreyti með tilgang Heatwave eftir hollenska hönnuðinn Joris La- arman er skraut-krúsidúlla sem liðast um vegginn, en ofninn varð til þegar hönn- uðurinn ætlaði sér að finna skreyt- ingu nauðsynlegan tilgang. Ofnar þurfa mikið yfirborð til að skila sem mestum hita og skreyti og flúr hafa einmitt mikið yfirborð. Flúrið í ofninum hefur því ekki einungis þann tilgang að vera til skrauts heldur aðallega nota- gildi. Sjá: www.jorislaarman.com Ofnar fyrir augað Hiti er nauðsynlegur í híbýlum og ofnar verða að vera í hverju herbergi. Útlit ofna er þó oftar en ekki óspennandi. Ýmsir hönnuðir hafa þó í gegnum tíðina útfært ofna sem eru meira en bara hitagjafar. Blush eftir Þórunni Árnadóttur Prjónaður hitagjafi Sænski hönnuðurinn Hedvig Af Ekens- tam notaði hitalagnir til þess að búa til ofn sem hún kallar Knitted heat. Hedvig festi lögnina saman í lykkjur og bjó til léttan og sveigjanlegan ofn sem hægt er að aðlaga hverju rými. Sjá: www.hedvigafekenstam.wor- dpress.com Líffæri inni í stofu Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður hannaði ofninn Blush með skírskotun til blóðrása- kerfis líkamans. Ofninn er málaður með sérstöku lakki sem skiptir litum við mis- munandi hitastig. Ofninn er blár þegar hann er kaldur en rauður litur færist yfir hann þegar hitinn fer yfir 30 gráður. Sjá: www.thorunndesign.com Knitted Heat eftir Hedvig Af Ekenstam. Heatwave eftir Joris Laarman. Á heimasíðu Orkuseturs er að finna mikinn fróðleik um allflest sem tengist húshitun. Þetta eru meðal annars upplýsingar um ein- angrun, vatnsnotkun, kostnað og kjörhitastig. Algengt hitastig á íslenskum heimilum er um 23 til 25 gráður. Rannsóknir sýna hins vegar að kjörhiti innandyra sé 20 gráður. Þannig skapist bestu loftgæðin án þess þó að fólki verði kalt. Gott er að hafa í huga að fyrir hverja gráðu sem hitinn er hækkaður hækkar húshitunarkostnaður um 7%. Þannig er hægt að lækka hitann í svefnherbergjum niður í 18 gráður. Í geymslum og bílskúrum eða rýmum sem ekki eru notuð að staðaldri mætti jafnvel lækka hitann niður í 15 gráður. Þannig er hægt að spara örlítið í kyndingu. Loftun í heimahúsum er einnig mikilvæg. Sumir vilja ávallt hafa glugga opna svo ferskt loftið streymi inn. Það er hins vegar ómarkviss leið til að hafa loftskipti sem sóar mikl- um hita og þar með fjármunum. Heillavænlegra og skilvirkara er að opna alla glugga vel í 10 til 15 mínútur og loka þeim þess á milli. Með því er ekki verið að henda peningum út um gluggann jafnt og þétt. Með því að raða húsmunum rétt er einnig hægt að minnka orku- tap. Húsgögn sem sett eru upp við útvegg draga úr loftstreymi við kaldan útvegginn og koma þar með í veg fyrir að loftið kólni. Sé þeim hins vegar stillt upp fyrir framan ofna truflar það eðlilega hringrás loftsins um rýmið og hindrar geislun frá ofninum. Þykk gluggatjöld sem ná yfir ofna gera slíkt hið sama. Heimild: www.orkusetur.is Góð ráð við húshitun Snjóhús um víða veröld. Ofnar virðast hannaðir til að safna ryki og óhreinindum, ekki síst í þröngum raufum og baka til þar sem ryksugan nær ekki til. Með lítilli fyrirhöfn og einföldum aðgerðum er leikur einn að gera ofna heimilisins skínandi hreina og reiðubúna til hlýrrar vetrarveru. ● Taktu til ryksugu, heitt sápuvatn í fötu, langt prik og rykklút, breitt límband, handklæði og tuskur. ● Byrjaðu á að ryksuga inn í, ofan á og undir ofninum, eins langt og ryksugan nær til. ● Reyrðu rykklút á enda priksins og límdu fastan að ofanverðu. ● Breiddu handklæði undir ofninn og ýttu prikinu í rifur ofnsins ofan frá. Með því nærðu að ýta niður hlutum og óhreinindum sem fallið hafa ofan í rifurnar. ● Vindið nú mjúka tusku upp úr sápuvatni og þvoið ofninn að utan verðu. Þerrið með þurrum klút til að varna ryðmyndun. ● Strjúkið einnig yfir vegginn ofan við ofninn þar sem hitaút- streymi festir gjarnan ryk og önnur óhreinindi við veggi. ● Ryksugið ofna reglulega til að koma í veg fyrir óhreininda- söfnun. ● Best er að hreinsa ofna á sumrin þegar þeir eru ekki í notkun. ● Slökkvið á ofnum og látið kólna áður en þrifið er að vetri til. ● Séu ofnar of þröngir fyrir prik og klúta má nota þrýstiloft til að blása úr þeim ryk og óhreinindi. Hreinasta heimilisprýði Gamaldags ofnar eru sannkallað stofustáss, eins og þessi silfurmálaði og flúraði hér, en það eykur enn á yndi ofna heimilisins að hafa þá tandurhreina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.