Fréttablaðið - 26.10.2012, Page 12

Fréttablaðið - 26.10.2012, Page 12
26. október 2012 FÖSTUDAGUR12 FRÉTTASKÝRING: Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna Eins og við var að búast voru áhrif veiðigjalda á íslensk sjávarútvegsfyrir- tæki í forgrunni aðalfundar Landssambands íslenskra útvegsmanna í gær. Átaka- línurnar voru skýrar í ræðum atvinnuvegaráð- herra og formanns sam- takanna. Eins kom fram á fundinum að blikur væru á lofti varðandi markaðsmál íslensks sjávarútvegs. Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, reifaði í upphafsræðu fund- arins þá sýn útgerðarinnar í landinu, sem hefur legið fyrir lengi, að breytingar á lögum um stjórn fiskveiða væri atlaga að greininni og þá ekki síst að hækkun veiðigjalda. Hann sagði að fjölmörg fyrirtæki myndu ekki rísa undir gjaldtökunni og þau sem hefðu hrygg til að standa undir henni stæðu löskuð eftir. „Fjárfestingar, þróunarstarf og nýsköpun dragast saman og fyrirtæki sem byggja afkomu og rekstur sinn á starfsemi sjávar- útvegsfyrirtækja veikjast. Hér er um sannkallaðan landsbyggðar- skatt að ræða þar sem megin- starfsemi sjávarútvegsins er utan höfuð borgarsvæðisins,“ sagði Adolf í ræðu sinni. Átök á vinnumarkaði Adolf vék að sameiginlegum hagsmunum útgerðarinnar og sjó- manna í landinu í ræðu sinni; að útgerðin og sjómenn deili kjörum í hlutaskiptakerfi. Það kerfi sagði Adolf að gæti ekki haldist óbreytt ef veiðigjöldin stæðu. Skattlagn- ingin myndi fela í sér átök á vinnumarkaði með tilheyrandi tjóni. Adolf spurði: „Stjórnvöld halda því fram að skattlagn ingin muni ekki hafa áhrif á launa- kjör sjómanna. Hvernig má það vera, að ef ríkið tekur 10-20% af tekjunum sé útgerðum ætlað að greiða um 40% í laun og launa- tengd gjöld af þeim fjármunum sem fyrirtækin hafa ekki?“ Undir lok ræðunnar sagði Adolf: „Ég skora á atvinnuvega- ráðherra að hlusta á þau rök sem fram hafa verið færð af okkar hálfu og annarra og beita sér fyrir endur skoðun laganna um veiðigjöld til að forða því tjóni sem við blasir.“ Aðalfundur en ekki jarðarför Steingrímur J. Sigfússon atvinnu- vegaráðherra steig næstur í pontu og tók það fram fyrst af öllu að hans sýn væri á allt öðrum nótum en komið hefði fram hjá formanni LÍÚ. Greinin stæði styrkum fótum og væri vel aflögufær. Hann sagðist því ætla að ávarpa fundarmenn á þeim nótum að hann væri staddur á aðalfundi LÍÚ en ekki jarðarför. Hann spurði, í samhengi við jákvæðar afkomutölur útgerðarinnar að undanförnu, hvernig hljóðið hefði verið á fundum LÍÚ fyrr á árum þegar útgerðin var sannarlega í erfiðleikum. Þetta féll í mis jafnan jarðveg hjá fundarmönnum og heyrðist kallað úr sal að ráðherra ætti að skammast sín. Steingrímur gaf stöðu þjóðar- búsins frá hruni töluvert vægi í ræðu sinni. Hann sagði það nauð- synlegt því að þeir sem færu með stjórn landsins gætu ekki leyft sér þann munað að horfa eingöngu á þröng hagsmunamál einnar greinar. „Það þarf að reka fleira en sjávarútvegsfyrirtæki. Það þarf að reka Ísland,“ sagði Steingrímur og ljóst að hann vísaði til þess að allir þyrftu að leggja sitt til – ekki síst sjávarút- vegurinn í landinu. Markaðsmál áhyggjuefni Markaðir fyrir sjávarafurðir var sennilega eini snertipunkturinn í ræðum þeirra Adolfs og Steingríms þar sem þeir voru á sömu línu. Þeir deila þeirri skoðun að blikur séu á lofti á mörkuðum og að óvissan hafi aukist verulega að undanförnu. Erfiðir tímar blasa við, sagði Adolf. Steingrímur sagði að sterkir markaðir Íslendinga í Evrópu væru að gefa eftir. Á sama tíma lægi fyrir að framboð á þorski úr Barentshafi myndi aukast stórlega á næsta ári og makríl- deilan gæti spilað inn í þessa mynd: „Til dæmis þannig að vinir okkar Norðmenn komi þeim skilaboðum á framfæri í Bretlandi að þeir þyrftu ekki að hafa áhyggjur af því að loka á íslenskan fisk þar sem þeir gætu séð um að fylla í skarðið með þorski úr Barentshafi,“ sagði ráðherra og hvatti menn til að sameinast því krappur dans gæti verið fram undan á komandi mánuðum. Átakalínurnar skýrar sem aldrei fyrr RÁÐHERRA Það var þungt yfir ráðherra á fundi LÍÚ en það sama má segja um þá sem hlýddu á eldmessu Steingríms. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FORMAÐURINN Adolf sagði að greinin hefði tapað miklum tíma vegna „varnar- baráttu sem komin er til af manna- völdum“. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þegar umbúðunum hefur verið flett af orðskrúðinu blasir innihaldið við – einfaldlega ríkisvæðing sjávarútvegsins. ADOLF GUÐMUNDSSON FORMAÐUR LÍÚ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.